Er nú með hliðarblogg þar sem ég mun segja kraftaverkasögur af þeim sem prófa Lifewave plásturinn! hehe..

Hér í blogginu hef ég skrifað eins og stendur í heitinu ýmislegt súrt og sætt úr mínu lífi. Stundum heitar skoðanir og stundum bara krútt færslur. Ég var upphaflega að hugsa um að skrifa hér um nýjasta "sportið" mitt, plástrasöluna, en fannst það vera svolítið brot á mínum bloggvinum sem kannski hafa bara engan áhuga á svoleiðis dæmi.

Aftur á móti vil ég gjarnan að þeir sem hafa áhuga fylgist með og því bjó ég til nýtt blogg "on the side" eins og Kristján, heiti ég Ólafsson, myndi orða það! LoL

Jæja, ég er s.s. orðin tvískipt á blogginu og ég fagna að sjálfsögðu vinum á báðum stöðum. Nýja bloggið mitt er hér.

Besti plásturinn væri auðvitað kreppuplástur og bíð ég spennt eftir að hann verði fundinn upp!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auður Proppé

Ha,ha, þá verðurðu að komment tvisvar við færslurnar hjá mér   Bless, farin á hina síðuna

Auður Proppé, 14.2.2009 kl. 19:21

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Heyrðu mig, ég bað um yngingarplásturinn mannstu! og snuð í kjölfarið!

Gleðilegan valentínusardag vinkona! hihihih

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.2.2009 kl. 19:34

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Flott hjá þér!

aðrir mættu taka þig til fyrirmyndar og aðskilja t d pólitísk skrif frá öllu óskyldu efni sem fólki langar stöku sinnum að skrifa um.

Einni sem tekst þetta þó mjög vel á einni og sömu bloggsíðunni og er alltaf jafn einlæg er Ólína Þorvarðar - já og auðvitað líka Jenný Baldurs, ég má alls ekki gleyma þeim snilldarpenna.

Marta B Helgadóttir, 14.2.2009 kl. 20:53

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þú segir nokkuð

Ía Jóhannsdóttir, 15.2.2009 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband