Ágæt læknisráð á Þorra ?

Læknisfræði Óðins bónda á Stóru-Völlum

Ég las þessa grein í Morgunblaðinu (pappírsútgáfunni)  í maí og bloggaði þetta þá en  þar sem margir þjást nú af flensu  langar mig að deila hugmyndum Óðins bónda með ykkur, ætla ekki að hafa fleiri orð um það en leyfi þeim sem vilja lesa að njóta:

Læknisfræði – Ný uppgvötun ..

1. ÞAÐ var seint í febrúar 2007 að undirritaður fékk kvef og nefrennsli töluvert. Mér hugkvæmdist að loka alveg fyrir loftstreymið upp í nefið og nefgöngin með bómull í báðar nasir og anda með munninum í 1–2 daga og nefrennslið stoppaði alveg. Öndun þar eftir var eins og venja er. Streptókokkarnir hafa hreinlega drepist með stöðvun á loftstreymi upp í nefið. Þetta varð fljótvirk lækning sem gagnaðist mér vel. Engin meðöl voru notuð.
2. Ég fann fyrir verk í eyra, sennilega eyrnabólgu. Þá kom það mér í hug að sjóða lambasvið tvisvar og þegar ég hafði borðað þessa tvo kjamma með stuttu millibili hvarf verkurinn alveg í eyrunum. Þessi milda fita í sviðunum hafði þessa fljótu lækningu. Ég hef oft lesið það í Guðs bók Biblíunni að prestar Drottins áttu alltaf að fá feitustu stykkin af kindinni, bringuna og rófubeinið, svo það hlýtur að hafa verið eitthvað hollt við þessa fitu. Líkami okkar þarf milda fitu, annars geta viðkvæmustu hlutar líkamans orðið eins og hálfþurrkaðir þorskhausar, sem geta valdið Alzheimer og innvortis bólgum. Forðast ber herta jurtaolíu, líka bakstur.
Óðinn Pálsson, bóndi á

Stóru-Völlum í Landsveit. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Það er þá ástæða fyrir því að mér líður alltaf vel eftir að eta svið. Það er alltaf að koma betur í ljós með fituna þ.e. hún er nauðsynleg. Það var kallað Rabbit (kanínu/héra) sindrome en fólk veiktist og dó í gamladaga þegar skortur var á veiði en nóg að kanínukjöti. Það er engin fita í kanínukjöti. Það var sama með hreindýrakjöt á veturna hjá Eskimóum/inuitum en ef þeir sem bjuggu langt frá sjó þá sem áttu ekki fitu (mör) á hrundu þeir úr sulti. Sjá Vilhjálm Stefásson heimskautafara. Næringarfræðingar eru farnir að refera í hann í dag. Ég sá á markaði hjá indíánum í Perú en þeir seldu mör á mörkuðunum. Góð líking með þorskhausanna örugglega mikið til í því. 

Valdimar Samúelsson, 12.2.2008 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband