Færsluflokkur: Bloggar
Miðvikudagur, 12. mars 2008
Sjálfskipað fangelsi ..
![]() |
Of þungur fyrir gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 12. mars 2008
Þekki eitt mjög gott íslenskt-mexíkóskt samstarf!
Maðurinn hennar Maju fyrrverandi samstarfskonu m/meiru er nefnilega frá Mexíkó og voru þau að opna veitingastaðinn Santa María á Laugavegi 22a. Fluttu að vísu tengdamömmu hennar inn til að aðstoða í eldhúsinu! ..
Svona fyrir ykkur sem eruð að pæla í því hvort réttara er að segja mexíkóskt eða mexíkanskt þá er víst réttara að segja hið fyrrnefnda, alveg eins og við segjum amerískt en ekki ameríkanskt.
Olé !
![]() |
Samvinna Mexíkó og Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 12. mars 2008
Ég með nýju klippinguna..
Þegar yngri dóttir mín kom heim frá útlöndum - fannst henni mamma þyrfti að fá sér unglegri klippingu. Geri að sjálfsögðu allt sem sérstakur tískuráðunautur ráðleggur og hér er ég eftir nýju klippinguna.. eða hvað ??


Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 11. mars 2008
Mín daglega símastjörnuspá...
Stjörnuspáin fyrir konur fæddar 21.11.1961 er svona:
Ástartilfinningar þínar eru sterkar en smá spenna í loftinu.
..Best er að ,,chilla" með vinum
..eða slappa af með ástinni þinni.
..
Þessi spá passar alltaf eins og flís við rass! .. talandi um rassa, þá sparkaði ég í rassinn á fröken flensu, komin í vinnuna og með vini mínum hr. íbúfen, sem er ómissandi við þessar aðstæður. Væri til í að sparka í fleiri rassa (þar kemur spennan sem er í loftinu) en er alltaf prúð og geri allt tilað halda friðinn. Í kvöld ætla ég að chilla með dætrum mínum ..
og að því loknu slappa af með ástinni minni.
Love all serve all.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 10. mars 2008
Transformers .. og konan bryður íbúfen og drekkur engiferte
Vala mín er nú komin heim með fullar töskur af ýmsu góssi frá henni Ameríku. Fullt fyrir afmæli Mánalings í apríl, Transformers þetta og hitt.. allt verður í Transformers stílnum!
Tekið upp úr töskum.. Eva, Máni og Henrik mætt á svæðið ..
Alikálfinum var ekki slátrað, en gott Brunchborð var útbúið þegar ,,týnda dóttirin" kom heim úr útlegðinni..


Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 8. mars 2008
Silvía nótt í American Idol ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 8. mars 2008
Samantekt yfir hvað er í gangi..
Það er alltaf nóg í gangi hjá mér .. en nú ætla ég að stikla á stóru.
Í dag er afmælisdagurinn hennar Birnu sem er nú eiginkona míns fyrrverandi. Ég er montin af því hvað hann náði sér í sæta konu og þakklát fyrir hvað hún hefur reynst börnunum mínum vel. Þau eru að fara að kíkja á hana í sveitina, núna á afmælisdaginn.
Á morgun kemur Valan mín heim úr langri útlegð í Texas og ætlum við systir hennar að bruna í Keflavík og sækja þessa elsku.
Eva mín (tala við hana á hverjum degi) lét Mánaling sleppa sundnámskeið vegna kvefs en var að fara til Birtu frænku að greiða henni fyrir árshátíð, en Eva er alltaf fljót til að hlaupa til og aðstoða.
Tobbinn (tvíburi Völunnar) er í útgerð í Bláfjöllum, þ.e.a.s. vinnur þar alla daga vikunnar - en ætlar síðan að taka frí í maí og heimsækja systur sína til Flórída. Ég fæ kannski að troða mér í ferðatösku og fara með. Annars nóg að gera í maí en þá erum við að fara í fermingu til Kongens Köbenhavn - öll systkinin og mamma og einhver slatti af afkvæmum! Gaman gaman..
Þarna er Tobbi með litla Mánaling frænda sinn en hann var fékk það virðulega hlutverk að vera guðfaðir! ...
Þá eru nú börnin upptalin en svo á auðvitað fjögur frábær ,,skábörn" .. sem eru öll í mismunandi stússi eftir aldri o.fl...
Elskulegur maðurinn minn (var ekkert búinn að gleyma honum) er nú búinn að vera með flensu í fjóra daga og vona að það fari nú að brá af honum. Gef honum Yogi karlmannate til að flýta fyrir bata!
Í dag er að renna upp 26. dagur heilsusamlegs lífs. Sem innifelur í sér góða hreyfingu í Laugum, þar sem ég geng á ,,Cross-trainer" - hætt að hlaupa á hamstursbrettinu - en fer líka í ýmis tæki sem gera mig sterka. Borða ekki sykur og drekk ekki alkóhól. Farin eru tæp sex smjörlíkisstykki og einhverjir ómældir sentimetrar. Það verður sko ekkert lát á þessu, því þetta er sko bara gaman. Ég sleppi að vísu líka kaffi - en það er af viðkvæmummagaástæðum. Sá það samt í Opruh einhvern tímann (og ekki lýgur Oprah) að ef þú hættir að drekka kaffi og drykkir í staðinn græn te myndir þú léttast um einhver x kíló á mánuði. Sel það ekki dýrara en ég keypti það og man ekkert stærðina á x-inu. - Því miður!
Well.. Þetta er nú í gangi hjá mér og mínum, hvað er í gangi hjá þér ? hehe..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 7. mars 2008
Róbert ryksuga ... ????...
Á einhver þarna úti svona irobot ryksugu? .. Langar að heyra reynslusögur. Ég hef heyrt af þessu og kíkt á netið en er svoldið veik fyrir Robba þar sem ég fæ í bakið að því að ryksuga á hefðbundinn hátt! ..
Hægt að lesa allt um þennan Róbót hérna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 7. mars 2008
Úti er alltaf að snjóa ... ekki gráta elskan mín, þó þig vanti ...
Ég hef á tilfinningunni að þessi vetur verði endalaus .. kíki daglega inn á heimasíðu dótturinnar sem býr þessa stundina í Texas - á leið að flytja til Flórída - þar sem hún er að skreppa í blak á ströndinni eða lýsa hitastigi sem er yfirleitt milli 20 og 30 gráður. Annars varð víst uppi fótur og fit hjá Texasbúum í gær því það féllu 3 snjókorn eða kannski rúmlega. Henni fannst uppnám þeirra svolítið fyndið, enda vön íslenskri veðráttu.
Já úti er alltaf að snjóa, mig vantar enn sykur, kaffi og brennivín í mitt líf .. en ætla ekkert að gráta það! ... Hélt ég væri að smitast af flensu húsbóndans í gær, en snéri vörn í sókn og fór í afneitun. Er að vona að hugurinn sé nógu sterkur til að bægja þessum fj... burtu. Og svo auðvitað heilsusamlega lífið. Fæ mér regluleg engifer til forvarna. Hef tröllatrú á því. Bjartsýni lengi lifi! ...
Jæja, mér er ekki til setunnar boðið hér heima, þarf að koma prinsinum (fyrrv.fimmáring) í leikskólann og mér sjálfri auðvitað líka til vinnu. Ákvað að breyta honum í prins þar sem hann er auðvitað ,,le petit prince" okkar hér. Fylgir honum mikil sól og mikið bros.
Heyrðu, by the way ...eigðu dásamlegan dag í snjónum!
Lausleg þýðing:
Maður sér ekki vel
nema með hjartanu.
Hið mikilvæga
er ósýnilegt
með augunum.
Litli prinsinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 6. mars 2008
"Stöðumælir" við hvert rúm - það er málið! ...
Paulo Coelho telur þetta vera að meðaltali 11 mínútur! ... frábær bók..
Ellefu mínútur
Paulo Coelho
Þýð.: Guðbergur Bergsson
Þegar Paulo Coelho var á Ítalíu árið 1999 fékk hann í hendur handrit, ævisögu brasilísku vændiskonunnar Soniu. Frásögnin heillaði Coelho og eftir mikla undirbúningsvinnu varð Ellefu mínútur til. Sagan segir frá Maríu sem fer til Genfar í von um betra líf en endar sem vændiskona. Hún verður heltekin af kynlífi en þegar hún kynnist ungum listamanni fer verulega að reyna á hugmyndir hennar og hún þarf að velja á milli kynlífs, kynlífsins vegna, og þess að finna ljósið innra með sjálfri sér og njóta þess sem ástin býður upp á. Hér glímir höfundur við ýmsar ögrandi spurningar og hefur bókin verið þýdd á um 40 tungumál.
![]() |
Kynmök taki sjö til þrettán mínútur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)