Extreme makeover - home edition

Fór í eitt af mínum breytingaköstum í morgun, - hef ekki fengið svoleiðis kast lengi.  Dæmi: Einu sinni þegar bóndi minn flaug burt um helgi - málaði ég stofuna upp á nýtt. Í annað skipti reif ég niður falskt loft í forstofu og þil og málaði og sparslaði allt upp á nýtt. Í morgun breytti ég svefniherberginu í hótelherberg! Errm... eða þannig fannst að vísu dóttur sambýlingsins það koma út.

Hún var í gær kosin ungfrú FÁ OG hreppti einnig þann vafasama titil: flottasti rassinn! Það munar ekkert um það!!! Miss Ass; var henni strýtt hér. Þegar maður æfir dans í marga tíma á dag þá er ekkert skrítið að vera með flottan afturenda. En skrítinn titill samt sem áður.

Mín eigin dóttir er á fullu að taka þátt í ungfrú Reykjavík - og stödd í "The Big Apple" eða New York þessa stundina með sambýliskonu föður síns að kaupa kjól fyrir keppnina. Glæsilegar dömur allt í kringum okkur ;) .. enda glæsilegir foreldrar! hehe...Whistling Well.. er þreytt eftir átökin við extreme makeover - en ánægð!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband