Óbrigðull megrunarkúr .. nýjasta æðið!

Ef mar ætlar á sólarströnd verður mar að vera mjór - er þa ekki ?

Hoppandi í bleiku bikiní í blaki - er þa ekki ?

Hér er bleiki bikiníkúrinn (ath! aðeins má borða rauðleitan mat)..

Morgunmatur:

1 rautt epli (best lífrænt ræktað) og  4 glös af vatni

Hádegismatur:

1/2 rauðkálshöfuð skorið smátt, 1 rauðlaukur og appelsínusafi kreistur útá

3 glös vatn

Kaffitími:

1 glas blóðappelsínusafi, 1 tómatur m/ólífuolíu salt og pipar

2 glös vatn

Kvöldmatur:

Laxasneið, rifnar gulrætur og sætar kartöflur bakað, síðan rauð paprika í strimlum

1 glas vatn

Kvöldhressing:

2 glös rauðvín (fitubrjótur) Rosemount - Cabernet Sauvignon þrúga heppilegast 

Borðið svona annan hvern dag í 4 vikur - má borða allt annað hinn daginn ef þú gengur 5 km þann dag.

Óbrigðull og þú verður aðalkroppurinn!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband