Auðvelt að bræða mig !

Sambýlingurinn  og ská-sonurinn (4 ára) komu að sækja mig í vinnuna í gær, fórum í húsgagnaskoðunarleiðangur sem Junior hafði ekki mikla þolinmæði í og sýndi "fríska" takta. Komum heim og sama fjörið hélt áfram við matarborðið og ég orðin býsna þreytt og lúin eftir mat lagði mig aðeins uppí rúm. Á eftir trillaði sá ungi og fór að kyssa mig og knúsa og sagði svo: "Mér finnstú alltaf svo sæt" og brosti sínu blíðasta Smile .. Öll óþekkt var strokuð út og fyrirgefin .. svo ég flokkast víst sem auðveld!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband