Pólsk brúðkaupsveisla ... !

Bróðir minn fór í brúðkaup til Póllands og var merkilegt að heyra hvernig brúðkaupsveislan fór fram.

Klukkan þrjú um daginn var snætt og var boðið upp á vatn og gosdrykki með matnum. Þegar búið var að snæða voru borðin rýmd og Vodkaflöskum raðað á borðin!Gasp Þá var snafsað og dansað .. og svo kom meiri matur og meira vodka. Svona gekk þetta víst til um 4 um morguninn! .. Ég spurði auðvitað hvort allir hefðu ekki verið ,,á skallanum" en svo var víst ekki. Enginn lafði fram á borðið eins og sést nú oft í íslenskum "dönnuðum" veislum.

Þegar ég fór að hugsa þetta, þá man ég eftir íslenskri brúðkaupsveislu þar sem ,,hellt var upp á" gestina fyrir matinn á meðan brúðhjónin voru í myndatöku  - það fór ekki vel fyrir sumum veislugestunum hehe..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland


Fríða Eyland, 1.10.2007 kl. 10:05

2 Smámynd: Fríða Eyland

Ég hef tvisvar farið í brúðkaupsveislur þar sem kaffi var sterkasti drykkurinn get engan vegin gert uppá milli hvor var leiðinlegri, báðar misheppnaðar. Eftirminnilegasta brúðkaupsveisla sem ég hef farið í var tók 25 tíma og það var alvöru veisla. Mikið af góðum mat (ekki majó-sukk) miklu víni, gleði, hlátri og dansi, Ræðurnar þær allra bestu sem ég hef heyrt.

Í góðum veislum er mikið af góðum mat sem fer mjög vel með víni, trúlega áttar fólk sig ekki á þessu sem borðar lítið, þá er hætta á að vínið  hafi meiri áhrif en  óskandi er hehe

Fríða Eyland, 1.10.2007 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband