Málþing um hjúskap og staðfesta samvist

  Mig langar að vekja athygli á eftirfarandi:

MÁLÞING UM HJÚSKAP OG STAÐFESTA SAMVIST

Mynd með frétt

Hópur presta í samvinnu við samtökin ´78 býður upp á málþing um hjúskap og staðfesta samvist í samfélagi okkar. Málþingið verður haldið í sal Þjóðminjasafns Íslands föstudaginn 19. október kl. 13:30 - 16:00. Allir áhugasamir eru boðnir hjartanlega velkomnir að taka þátt í umræðum um þessi mikilvægu mál.

Dagskrá:

13:40 - 13:55  Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir siðfræðingur fjallar um hjónabandið og mælir fram með þeirri skoðun að það skuli standa opið öllu fullveðja fólki í samfélagi okkar sem vill lifa saman í skuldbindandi ástartengslum. 

 

14:00 - 14:15 Hulda Guðmundsdóttir kirkjuþingsmaður og MA í guðfræði mun mæla fram með þeirri leið að hjónaband karls og konu og staðfest samvist fólks af sama kyni verði ekki sameinuð heldur skuli hvort um sig halda sérkennum sínum sem jafngild sambúðarform sem prestar fái umboð til að staðfesta að lögum.  

 

14:20 - 14:40 Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur mun lýsa lagaumhverfi hjónabands og staðfestrar samvistar.

Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth flytja ástarljóð.

15:00-15:15 Feðgarnir Kristján Kolbeins og Eyjólfur Kristopher Kolbeins lýsa samskiptum sínum, en sonurinn er hommi.

Kaffiveitingar og tónlist

15:40 - 16:30  Pallborðsumræður þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum ásamt fulltrúum frá Samtökunum 78

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Hæhæ...þetta er svo spennandi! má ég stela þessu og setja á mitt blogg

Sunna Dóra Möller, 17.10.2007 kl. 09:33

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Endilega! ... láta sem flest vita.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.10.2007 kl. 10:17

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þeinkjú

Sunna Dóra Möller, 17.10.2007 kl. 10:24

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe var einmitt að svara þessu á blogginu hjá Sunnu Dóru.  Ég skil ekki þann tvískinnung sem er hjá fólki sem prédikar umburðarlyndi og kærleika. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2007 kl. 19:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband