Kínablogg númer fimm!

Kína VI 007 Þarna er mín komin í miðborg Sanya, fyrir aftan er fólk að gúffa í sig núðlum og næsta hús við er nú bara MacDonalds. Þetta er ekki merkilegur staður með fornminjum eða fallegum byggingum - eða það gátum við ekki séð við okkar fyrsta lúkk.

Tókum mynd af byggingunni þar sem Miss World fer  fram, þar er mynd m.a. af Unni Birnu utan á:

Kína VI 010

Fórum út að borða með Hr. og Frú Englandi í gær og áttum mjög gott kvöld með þeim. Erum komin með heimboð og alles. Brjáluð flugeldasýning og músík - allt gert til skemmtunar hér! Kína VI 021Kína VI 027Kína VI 029Kína VI 034

Hér fyrir ofan er hægt að sjá skemmtilega kínverska grúppu sem spilaði undir borðhaldi og svo er erum við þarna tvær drottningarmæður og ein vinkona í miðið. Sú sem er lengst til hægri er Frú Wales. LoL Sem sagt ekki leiðinlegt hjá okkur!

Í kvöld förum við að horfa á "Dress Rehersal" og lofa ég myndum af Ungfrúnni fljótlega. Höfum mjög lítið hist, aðeins í flugumynd eins og sumir segja.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Charlotta R. M.

Frábært að fylgjast með, það verður Miss World stemning hjá mér á morgun.....íha!!!!

Charlotta R. M., 30.11.2007 kl. 20:09

2 identicon

Hæ hæ elsku systir, sendum góða strauma til Kina, við verðum með ykkur mæðgum í huga .... og Skjá 1 ........ á morgun hjá Lottu!  Stuð og stemning!! ´

Knús og krams;

Hulda Kristín

Hulda Kristín (IP-tala skráð) 1.12.2007 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband