Mánudagur, 11. febrúar 2008
Af hverju ertu að þessu ?
Ég var að fá í hendurnar áhugaverða bók um Tourette-heilkennið en hún er sérstaklega skrifuð fyrir börn og ungt fólk. Höfundar eru Uttom Chowdhury og Mary Robertson, en hún er þýdd á íslensku af Boga Bjarnasyni og Kristjáni Hreinssyni. Mér sýnist hún við fyrstu sýn einstaklega þægileg - og oft er efni sem sett er fram fyrir börn eitthvað sem við fullorðin eigum hreinlega auðveldara með að skilja!
Bók þessi er gefin út á Íslandi í desember 2007 og er íslensk þýðing bresku bókarinnar Why Do You Do That?
Af hverju ertu að þessu? er skrifuð af læknunum Mary Robertson og Uttom Chowdhury, sem bæði eru vel þekkt á sínu sviði. Hinn heimsþekkti knattspyrnumarkvörður Tim Howard, sem sjálfur hefur Tourette, skrifar formála að bókinni.
Í bókinni eru auk þess reynslusögur barna og unglinga með Tourette og einnig frásagnir systkina. Eru þær sögur fengnar víðs vegar að úr heiminum og eina af þeim skrifaði íslensk stúlka sem á bróður með Tourette.
Bókina má panta í tölvupósti, tourette hjá tourette.is, eða með því að hringja í 840-2210.
Athugið að verð hennar er aðeins 1.300.- krónur.
Hún mun einnig verða seld í nokkrum bókaverslunum og er heldur dýrari í verslununum sem nemur bæði virðisaukaskatti og verslunarálagningu.

Flokkur: Menntun og skóli | Breytt 13.2.2008 kl. 15:12 | Facebook
Athugasemdir
Það sem er svo oft erfitt við þessa fötlun er að henni fylgja svo oft aðrar fatlanir eins og ofvirkni og athyglisbrestur. Kona sem ég vinn með á tvær yngri systur, báðar með Tourette og ADHD. Mjög erfitt skal ég segja þér.
Það er rétt að stundum er gott að láta skýra út fyrir sér hlutina eins og maður sé barnungur. Svona eins og maðurinn þinn gerði svolítið á Laugardaginn, mjög skilmerkilegt og á góðu máli. Var að blogga um það á mínu bloggi.
Halla Rut , 11.2.2008 kl. 13:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.