Þriðjudagur, 17. október 2006
Markmið fyrir sam- og hjónabönd...
Váts, vakna alltaf með nýjar hugljómanir á hverjum degi!.... Var að hugsa um allar þessar kennsluáætlanir og markmið og lesa um hvað markmiðasetning er mikilvæg í sölu, í starfi og í kennslu. Já leyndarmál velgengni er m.a. MARKMIÐASETNING auk hugarfarsins!!!... er alltaf að fatta ný leyndó.
Það þarf að setja langtímamarkmið og þrepamarkmið! Sko:
Hvaða markmið hefur samband X og z ?
* að gera bæði að betri og þroskaðri persónum
* að veita þeim báðum gleði (og unað)
* að gera fallegt heimili ?
*o.s.frv... eftir hvað við á...
Þrepamarkmið .. t.d. dag frá degi:
Markmið dagsins..
* ganga í klukkutíma saman
* koma glöð heim úr vinnunni
blablabla...
Fylgist oft með pörum sem eru svolítið pirruð á hvoru öðru afþví að það sem hinn aðilinn er að fara að gera kemur á óvart.. Ef þau settu fram sín markmið á morgnana ... þá ynnu þau saman að því að allt gengi upp og púsluðu sínum markmiðum saman .. does this make sense ?
Þetta kemur svolítið til af því að karlar geta ekki lesið hugsanir okkar kvenna og við förum oft í fýlu ef þeir fatta ekki hvað við erum að hugsa og hvað við viljum.. Þess vegna skellum við því bara á blað og hengjum uppá töflu .. What do I want.. Best ég seti þetta skýrar fram seinna.. Varð bara að kasta þessu hingað svo ég myndi ekki gleyma þessu..
Markmið dagsins í dag hjá mér:
* Taka svolítið til áður en ég fer í vinnuna
* Ganga vel í vinnunni - og muna Pollýönnu
* Hitta Hr. X eftir vinnu
* Elda góðan mat í kvöld
* Lesa og læra í kvöld og undirbúa verkefni
* Hreyfing .. how about it ??
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.