Miðvikudagur, 18. október 2006
Viltu finna milljón - hver ekki ?
Já - er enn heilaþvegin af "The Secret" .. Power of Attraction.. fór í leiðangur í Vesturbæinn til að fá lánaðan diskinn og horfði á hann aftur.
Summary:
1) "Gratitude" ....Byrjaðu á því að þakka fyrir hvern dag, og fyrir það sem þú átt og hefur í dag.
2) Skrifaðu lista yfir það sem þú vilt, andlegt og veraldlegt. Hver vil ég vera ? Hvaða hluti vil ég fá sem gera mig glaðari ? Hvert vil ég ferðast ? ... það má meira að segja óska sér að finna milljón kall eða meira!
3) Sáðu óskinni og vökvaðu hana í huganum, upplifðu þig í því ástandi sem þú vilt vera: vellíðan, sól, frið, ást, hamingju o.s.frv. Haltu áfram "step by step" .. að vera bjartsýn/n..og vittu til.. ekki hætta að vökva (áríðandi)
Mikilvægt er að segja ekki.. "ég vil ekki vera blönk" - heldur "ég vil eiga nóg" .. "Ekki "og "á móti" eru óæskileg orð.
Það þarf að finna heiminn vinna með sér - (ekki á móti sér)...
Þetta eru gömul sannindi og ný - þurfum bara að stunda þau ... sbr. "Trúin flytur fjöll"....
Jæja - ætla að eiga góðan dag í dag, átti skemmtilegan kvöldverð með Hemma, Tobba, Völu og Magga í gær. Ætla að eiga skemmtilegan dag í dag.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.