Föstudagur, 23. maí 2008
La, la, la, la, (this is my) life goes on ...
Í morgun fór ég í vinnuna með fullan haus af kvefi og það virðist nú bara magnast ef eitthvað er.
Fékk að fara úr vinnunni um hádegið því að útförin hans Björns frænda míns fór fram í dag kl. 13:00, frá Dómkirkjunni. Hún var mjög virðuleg og falleg, bæði biskupinn og sr. Hjálmar Jónsson sáu um helgihald. Önnur útför fór fram í dag, en það var útförin hennar frænku minnar í Bandaríkjunum. Eva Lind fór sem fulltrúi fjölskyldunnar og tók frændfólk okkar henni fagnandi og var þakklátt.
Blessuð sé minning þeirra beggja ... bikar minn er eiginlega barmafullur þetta árið, en í janúar sl. missti ég bestu vinkonu mína úr krabbameini. Vonum að það sé í gildi að allt sé þegar þrennt er.
Í kvöld fór ég svo í allt annan gír, eða Eurovision gírinn - en við vorum boðin til vinafólks og var það notalegt að gleyma sér yfir því. Var ánægð fyrir hönd Regínu og Friðriks Ómars og Íslendinga allra að við náðum í úrslitakeppnina.
Lífið heldur áfram. Njótum okkar nánustu meðan við höfum þau í kringum okkur. Látum ekki smámálin verða að stórmálum, það skiptir engu máli hvernig fólk kreystir tannkremstúpur....
Eigið góða nótt og góðan morgundag
Ákváðum að mæta skrautleg í Júróvisjónstíl til að hvetja "okkar fólk" ...
Fylgst með sjónvarpinu, Ólöf Ásta kíkir á myndasmiðinn...
Kannski lélegi söngvarinn með síða hárið sé að syngja þarna ...
"Flokkurinn" fagnar Svo þarf að nærast!
La, la, la, la, life goes on...
Athugasemdir
Mínar innilegustu samúðarkveðjur til þín Jóhanna mín
Og góða nótt..
Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.5.2008 kl. 01:15
Vúhú..... jei jei jei.. ji hvað við erum ánægð hérna í Delray með að við komumst áfram!! Ekkert smá svekkt yfir því að vera í háloftunum meðan Júróvision er en kannski að maður sjái bara endursýningu.. þó það sé ekkert sambærilegt við að horfa beint:) Jæja vorum að koma af Indiana Jones.. ágæt mynd þar á ferð:)
Knús á þig mamma mín
Vala, Jake, Tobbi og Simbi
Jóhanna Vala (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 02:08
Jónína Dúadóttir, 23.5.2008 kl. 06:04
Þessi síðhærði!! OMG, hver sagði honum að hann gæti sungið? Jösses.
Þið eruð voða fín. Og flöggin, ég dey.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2008 kl. 07:19
Votta þér samúð mína Jóhanna mín
Þetta var flott hjá Friðrik og Regínu, núna verður aftur gaman að fylgjast með aðalkeppninni. Mikið rosalega eruð þið fín þarna, með fána og alles ég ætti kannski að versla mér fána fyrir laugardagskvöld?
Huld S. Ringsted, 23.5.2008 kl. 08:31
Takk fyrir fallegar kveðjur -
Varðandi gærkvöldið þá vita þeir sem þekkja mig hvað ég hef gaman af svona uppákomum, þemakvöldum og gera svona soldið klikk grín. Ef á annað borð er verið að horfa á Eurovision þá bara ganga alla leið!!!!.. Fór með þessa fána í Húsdýragarðinn á sumardaginn fyrsta líka og Henrik svigeson tók eftir því að við vorum nú eiginlega þau einu með fána! ..
Ég hélt annars með Dönum, svona í næsta sæti á eftir íslenska laginu.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.5.2008 kl. 09:26
Sæl Jóhanna.
Ég sendi samúðarkveðjur til þín og þinnar fjölskyldu, um leið og ég samgleðst yfir gengi okkar fólks í gærkvöldi.
Hafðu það sem best með þínum nánustu:
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 10:00
Ég samhryggist þér innilega. Þetta er mikill missir á stuttum tíma.
Það vill svo til að ég var rétt áðan að blogga, eftir að hafa orðið hugfangin að frásögnum af Birni frænda þínum (vissi auðvitað ekki að hann hafi verið frændi þinn).
Laufey B Waage, 23.5.2008 kl. 10:50
Takk Laufey mín, þetta var merkileg tilviljun! Ísland er svo lítið land að einhvern veginn virðumst við öll tengjast. Jú, jú, Dr. Björn var föðurbróðir minn og faðir hennar Ingibjargar Elsu frænku og bloggvinkonu. Hún skrifar þó nokkuð um umhverfissiðfræði og er vel að sér í þeim málum.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.5.2008 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.