Sunnudagur, 4. janúar 2009
Glæsikonur með handklæðahettur ..
Hulda stóra systir og Addý mágkona áttu afmæli í gær, 3. janúar. Ég hefði getað verið með glæsilega mynd af þeim hér á blogginu, en gleymdi myndavélinni þar sem ég mætti í afmæliskaffi sem Addý mágkona hélt fyrr í kvöld, en þær halda afmæli til skiptis annað hvert ár.
Þær fengu nefnilega voða fínar handklæðahettur sem þær mátuðu fyrir veislugesti við mikla kátínu.
Þær eru auðvitað hin mestu glæsikvendi báðar. Við lásum upp úr stjörnuspá Moggans fyrir árið og Hulda systir á möguleika á að hitta hinn fullkomna mann (fyrir sig) og þær báðar að gera einhvern fullkominn success í bisness í september að mig minnir. Að vísu gildir þessi spá fyrir allar steingeitur (a.m.k. á Íslandi).
Síðuritari (sporðdreki) á að passa sig extra vel í umferðinni, svolítið "mean" að koma með svona komment í stjörnuspá.
Ég spái sjálfri mér (og öllum sem vilja þiggja mína spá) algjöru trompári andlega og líkamlega!
Athugasemdir
Ég þigg þína spá með þökkum, hún er sú besta sem ég hef séð hingað til
Jónína Dúadóttir, 4.1.2009 kl. 08:26
Takk fyrir góða spá fyrir okkur sporðdreka.
Ía Jóhannsdóttir, 4.1.2009 kl. 09:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.