Fimmtudagur, 26. mars 2009
Með Dalai Lama á koddanum ;-)
Nú fer bráðum að gefast tími til að hugleiða. Ég lýsti því yfir við morgunverðarborðið í gærmorgun að mig langaði svo til að lesa bókina um Dalai Lama og minn elskulegi hefur augljóslega hlustað í það skiptið, því í gærkvöldi var bókin komin á koddann.
Ég náði aðeins að lesa nokkrar blaðsíður, en var þá alveg búin. Það er búið að vera svakalega mikið að gera undanfarið, bæði í vinnu og einkalífi og hef ekki haft tíma til að skrifa neitt hér, né skrifa athugasemdir hvorki hjá sjálfri mér né öðrum. Kíki við hjá bloggvinum um helgina! ...
Ég er nú búin að mæta tvisvar í spinning og tími nr. 2 var aðeins skárri en nr. 1. Finn að þolið mitt er ekki upp á marga fiska, en komst í 100% púls í gær - að vísu standandi á hjólinu undir einhverju brjáluðu Tinu Turner lagi! ..
Í dag tekur annar fjörugur dagur í vinnunni við, er að undirbúa næstu lotu og byrjuð að taka við umsóknum - svo eru sjúkrapróf á morgun. En eftir prófin á morgun þá fæ ég Mánalinginn, elsku ömmustrák.
Við munum auðvitað hafa kósý kvöld og njóta þess að vera saman. Stundum langar mig bara að vera "gamaldags" amma, sem er alltaf til taks fyrir barnabörnin - það kemur vonandi að því. Kannski geri ég breytingar á lífi mínu eftir lestur Dalai Lama?
Athugasemdir
Já Dalai Lama þú segir nokkuð.
Ía Jóhannsdóttir, 26.3.2009 kl. 09:16
Jónína Dúadóttir, 26.3.2009 kl. 09:20
Gaman er að lesa Lama en ég gæti vel trúað að ég kíki á kallinn er hann kemur á klakann.
Hilmar Gunnlaugsson, 26.3.2009 kl. 16:11
Ég hef aldrei heyrt um Dalai Lama, bara eitthvað lag!
knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.3.2009 kl. 19:52
Það er nú hægt að fara í rúmið með verri manni en Dalai Lama
Laufey B Waage, 27.3.2009 kl. 09:48
Er með bókina hér efst í ólesna bunkanum. Tek til við hana næst.
Knús í helgina.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.3.2009 kl. 14:31
Bókin um Dalai Lama er á óskalistanum hjá mér, panta hana á bókasafninu. Eða fer bara á safnið hennar Jenný sem á allar bækur.
Auður Proppé, 28.3.2009 kl. 15:36
Takk fyrir athugasemdir, hér hefur fjölskyldan verið í fyrsta sæti - mamma kom í heimsókn í dag, systur mínar og systursonur, dóttir og tengdasonur og síðast en ekki síst er Máni ömmustrákur hér og ætlar sér sko ekkert að fara heim, gistir nótt nr. 2 - svo það verður kósýkvöld í kvöld! ..
Dalai Lama lofar góðu; ég er mjög Dalai Lamísk í mér- vil rækta hið góða en kæfa hið illa .. en það kostar þrotlausa vinnu!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.3.2009 kl. 17:52
Róslín - gúglaðu Dalai Lama - plís!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.3.2009 kl. 17:53
Ég gúglaði hann, fékk þessa fínu mynd af honum;
http://kamelopedia.mormo.org/images/c/c7/Dalai_Lama.jpg
Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.3.2009 kl. 18:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.