Miðvikudagur, 15. apríl 2009
Rangur maður í vitlausu húsi?
Hún gekk hægum skrefum eftir sandinum, norðangarrinn lét öllum illum látum og þeytti upp mittissíðu hári hennar, en hún fann ekki til kulda, fann aðeins heitt hjartað slá hraðar eftir því sem fætur hennar báru hana nær vitavarðarhúsinu. Hann beið hennar þar í bláu duggarapeysunni, með tóbaksklútinn og dökkann úfinn kollinn - ómótstæðilegur, svo grófur en jafnframt svo ólýsanlega mildur. Hún var sú eina sem þekkti djúpstæð leyndarmál hans...
.. í næsta kafla
Hann greip ákveðið í hana og hélt þéttingsfast, hann tók andköf yfir þessari englaveru og fann heit læri hennar í gegnum þunnt efnið í pilsinu, þá án nokkurar viðvörunar var gömlu vitahurðinni hrundið upp; Ástþór Magnússon var mættur á svæðið, hann horfði sínum flóttalegu augum á parið, hann lét sér ekki bregða - hóf upp raust sína og söng: ..
Ég er rangur maður
Á röngum tíma
Í vitlausu húsi
Ég er rangur maður
Á röngum tíma
Í vitlausu húsi
jejeje
Athugasemdir
Hahaha
Sigrún Jónsdóttir, 15.4.2009 kl. 17:39
Smá "erótískt" grín í gangi hér
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.4.2009 kl. 17:46
Heheheheheheh........... það verður bara að hafa gaman að allri þessari vitleysu.
Ía Jóhannsdóttir, 15.4.2009 kl. 19:23
Hahahaha..óboj
Ragnheiður , 15.4.2009 kl. 20:19
Gerist ekki pólitískari en þetta þessa dagana!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.4.2009 kl. 21:35
Jóhanna, þú ert skáld!
Kannski ekki að atvinnu en þú hefur hæfileika
Sigurður Þórðarson, 15.4.2009 kl. 22:38
Þúrt álfur, en fínn álfur...
Steingrímur Helgason, 15.4.2009 kl. 22:42
Sæl Jóhanna.
Aumingja Ástþór
Kær kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 01:11
Jónína Dúadóttir, 16.4.2009 kl. 06:22
Góðan og glaðan dag! .. Takk fyrir innlit og takk fyrir kveðjur.
Siggi - ég er að vonast til að verða hin nýja Barbara Cartland, .. mínus allar pillurnar - hef heyrt hún hafi tekið 100 "vitamínpillur" á dag!
Já Þórarinn, aumingja Ástþór, ekki alveg að meika það!
Steingrímur, sérlega ánægð með álfshlutverkið, stefni að því að verða huldukona síðar - en aldrei tröll!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.4.2009 kl. 08:04
Góð .
Laufey B Waage, 16.4.2009 kl. 09:06
Hehehe sannarlega óvæntur endir Jóhanna mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.4.2009 kl. 09:17
.. Takk fyrir innlitið Laufey og Ásthildur!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.4.2009 kl. 09:27
og Jónína auðvitað!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.4.2009 kl. 09:29
Takk fyrir hressilegan morgunhlátur! Mj-ö-g óvæntur endir ;)
Hlédís, 16.4.2009 kl. 09:51
Hvenær kemur fyrsta bókin elskuleg? Ég mun kaupa hana.
Knús til þín
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.4.2009 kl. 13:21
Hahaha, þú ert óborganleg dúllan þín.
Rut Sumarliðadóttir, 16.4.2009 kl. 13:25
Þú ert óborganleg, Barbara mín!
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 17:27
100 vítamín ???? Úff þvílíkur eðal háls sem konan hefur haft. Ég fæ nú bara verk í vélindað!
www.zordis.com, 16.4.2009 kl. 19:15
Ok frábært æðislegt nýja íslandi er cool Þarna kom svar við hruni bankanna SPYRILL = HVAR ERU ALLIR PENINGARNIR SVAR = NÝTINGARÉTTUR ÞEIR VORU ÞARNA ÓNOTAÐIR SVO KOMU ALLATAF FLEIRI SEÐLAR ÞETTA VAR EKKI HÆGT AÐ LÁTA SKEMMAST INNÍ GEYMSLU SPYRILL = ÞÁ ER ALLT Í LAGI ÞIÐ VORU BARA AÐ NOTA PENINGA SEM VORU FARNIR AÐ SKEMMAST .... ÞAÐ FER GREINILEGA ENGIN VÍKINGUR Í FANGELSI MIÐAÐ VIÐ ÞETTA,, FYRIR HINA SEM SKILJA EKKI TXT FYRIR OFAN ÞÁ VIRKAR HREINSUN SVONA Í BANKAKERFINU... >>>>>>>>>>
Abra ka dabra Reyna aftur
Abra la blabla Reyni aftur
Abra hahaha poom
Frábært það virkaði þú ert saklaus núna
Zippo (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 20:56
snilld.
Brynjar Jóhannsson, 16.4.2009 kl. 21:37
Bailey, 16.4.2009 kl. 21:38
Þú ert krútt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.4.2009 kl. 15:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.