Smá kvart og kvein....

Æ, mig auma, var að taka á móti fína rúminu mínu en það komu bara engir stimamjúkir burðarmenn með! Bara einn lítill strákur í joggingbuxum með píparatilburði kom á sendibíl með dýnuna mína stóru, ÞUNGU, fínu. Ég, með snemmbæra hrörnun í baki og ein heima til að taka á móti herlegheitunum sit hér með minn auma hrygg. Stelpan mín fékk senda heim dýnu frá Betra bak um daginn og með hana komu tveir hressir gaurar og settu á áfangastað! .. Kvöddu og bless. Litli strákurinn sem kom með mitt rúm bað um sexþúsundkall því að flutningurinn væri ekki innifalinn!!..

Á ekki að vara mann við svona ?? .. Well, vara ykkur alla vega við að ef þið verslið í Rekkjunni að hafa einhvern með gott bak heima við til að bera OG þið borgið sendinguna!

Æ hvað er gott að geta vælt í einhvern..LoL

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko, þetta á að vera á hreinu þegar kaupin eru gerð.  Bæði að það kostar extra að fá vöruna heim og að heimilisfólk sé í standi til að bera.

Nú snöggfauk í mig.  Þetta er ömurleg þjónusta.

En til hamingju með rúmið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.4.2008 kl. 18:23

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Já, svona getur fín sölumennska rokið út um gluggann, ef henni er ekki fylgt eftir alla leið. Fékk fína þjónustu í búðinni (að ég hélt). En auðvitað skrítið að spyrja ekki fólk hvort það treysti sér að taka á móti og hvort það vilji að þeir panti bíl eða vilji hreinlega gera það sjálft! Á kannski frænda með stóran bíl eða eitthvað.  Þekki þetta af eigin raun þegar ég var á hjólum í kringum viðskiptavini í legsteinasölu, fólkið fór sátt við allt, en svo klikkaði maðurinn í uppsetningunni - steinninn skakkur eða skítugur og þá voru mín almennilegheit rokin út í veður og vind líka. Ef einn hlekkur klikkar þá klikkast kúnninn!  ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.4.2008 kl. 18:29

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

 Sammála henni Jenný, ekki góð þjónusta þetta ! En til lukku með rúmið

Jónína Dúadóttir, 21.4.2008 kl. 18:50

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sammála Jenný, þetta er til skammar fyrir þetta fyrirtæki og þeir sem auglýsa stíft sín rúm fyrir bakveika!! ætli þetta sé einn líðurinn í því að selja fleiri rúm til bakveikra

Til lukku með nýja rúmið, vonandi lifði bakið þitt burðinn af

Huld S. Ringsted, 21.4.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband