Smá öpdeit á hvaðeraðgerast...

Í fyrsta lagi var ég að horfa á ruglþáttinn ,,America´s got talent" ..með David Hasselhoff, úfff... how low can you go! GetLost .. að vísu veitir ekki af smá heiladauða eftir hrikalega krefjandi og úttaugandi vinnuviku.

I dag fór einkasonurinn til Flórída að heimsækja tvíburasystur sína. Ég keyrði hann útávöll, kjamsaði og knúsaði og síðan kvöddumst við. Yndislegur strákur og alltaf uppáhaldssonur hehe..

Man ekki hvort ég var búin að monta mig nógu mikið en síðan í febrúarlok hef ég brætt af mér 7 smjörlíkisstykki. Er s.s. mjög umhverfisvæn miðað við nýjustu fréttir. Erum líka búin að þurrka rykið af hjólunum á heimilinu, fengum ,,hjólavírusinn" í Danmark! .. Að vísu er meira púl að hjóla hér en þar. Tekur 10 mín að hjóla niður Elliðárdalinn en 30 mín upp, held það sé ca. rétt mæling hjá mér - svo ég hugsa að ég haldi mig bara við að hjóla niðureftir eða þannig.

Fór í Smáralindina í dag og keypti mér sumarboli í Zöru - en þeir eru ódýrir en samt bara alveg ágætir. Verslaði síðan Ecco sandala en þeir eru DÝRIR en mjög góðir. Nú er nebbnilega kominn árstíminn til að vera berrössuð á tánum og þá er nauðsynlegt að eiga góða sandala. Tounge ..

Ég er s.s. ready for summer! Here comes the sun, dirírirí ... Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er ótrúlega holt að hjóla, held ég hafi sest tvisvar upp í bíl í þessari viku, ef ekki bara einu sinni!
Búin að hjóla fram og til baka næstum tvisvar á dag á sama staðinn þessa dagana og mun það vera þannig út næstu tvær vikur!
En þá brenni ég ekki af mér neinu
Eigum við að skipta??


En gaman að segja frá því, þá var ég að hlusta á þetta lag með Bítlunum bara í dag

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.5.2008 kl. 22:14

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég á ekkert hjól og það eina sem ég hef brennt undanfarið eru kóteletturnar á grillinu í fyrrakvöldEn ég er búin að ákveða að kaupa mér hjól, með regnhlíf

Jónína Dúadóttir, 17.5.2008 kl. 07:12

3 identicon

Sæl Jóhanna.

7 Smjörlíkisstykki og sandalar.----- Af og Á.

Hafðu það sem best.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 09:16

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott ertu stelpa.  Vildi að ég væri svona dugleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2008 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband