Rekin vegna bloggfærslu?

Var að lesa fréttir á visir.is og sá þá frétt um Moggabloggara sem er ein af fyrstu bloggvinkonum mínum.

Fréttin byrjar:

"Birna Magnúsdóttir hefur starfað sem vagnstjóri hjá Strætó bs. í um tíu ár. Fyrir skömmu var hún strokuð útaf starfsmannalistanum og hefur enga atvinnu fyrir utan skúringar í kirkju. Birna segist hafa fengið þau svör að brottreksturinn mætti rekja til bloggfærslu og stuðning sinn við fyrrverandi trúnaðarmann félagsins. Birna hefur oftar en ekki fengið hrós frá farþegum fyrir góðann akstur."

Sjá frétt nánar hér.

Ég óska Birnu góðs gengis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ótrúlegt alveg hreint, hvað sumir eru viðkvæmir. Að vera rekin fyrir að styðja f. starfsmenn fyrirtækisins er nú hámark öfundsýkis!

Eigðu góða  helgi mín kæra Jóhanna

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.7.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Hafdís Lilja Pétursdóttir

Fer ekki að vera ráð að hafa engar opinberar skoðanir eða skoðanir almennt sem stangast á við skoðanir Stóra bróðurs? 

Hafdís Lilja Pétursdóttir, 3.7.2008 kl. 21:37

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég veit ekki en mér finnst þjóðfélagið vera orðið svo kallt og miskunarlaust.

Sterk tilfinning í þá átt þessa dagana.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2008 kl. 21:41

4 Smámynd: Tiger

 Þetta er náttúrulega hið mesta bull bara. Ætli þeim sé stætt á því að reka hana fyrir að hafa skoðanir eða fyrir að styðja við félaga eða vini eða fyrrum samstarfsfólk? I wonder ..

Æi, þjóðfélagið er klikkað á mörgum köntum - þetta er einn kanturinn. Vona bara að hún leiti réttar síns og athugi hvort þetta sé löglegt. En, kannski er þetta löglegt - en þá algerlega siðlaust bara .. vegni henni bara vel vonandi.

Knús á þig rúsínan mín og hafðu ljúfa nótt ..

Tiger, 4.7.2008 kl. 02:45

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hver húfan upp af hvor annari dag eftir dag í okkar blessaða þjóðríki og hver önnur furðulegri.  Ég er hætt að botna í þessu anskotans bulli.  Eru eintómir vitleysingar þarna við völd hvort sem það heitir ríkisstórn eða stjórnendur hjá hinu opinbera?

Kveðja inn í góðan dag Jóhanna mín.   

Ía Jóhannsdóttir, 4.7.2008 kl. 06:47

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Þetta hlýtur að ganga til baka, leiðinlegt ef fólk má ekki hafa skoðanir.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.7.2008 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband