Mánudagur, 7. september 2009
Stytt prédikun um feminisma frá 2002
Prédikun um feminismann flutt í Kvennakirkjunni árið 2002 .. mín hefur sko lengi verið að!
10.11.2002 |
Í Langholtskirkju, 10. nóvember 2002 |
Prédikun: Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðinemi. Bæn Leiddu mig Guð - eftir þínu réttlæti, sestu niður með mér og rabbaðu við mig, gjörðu beina brautina þína fyrir mér svo ég sjái hvert ég á að fara. Gefðu mér daglegt brauð og hjálpaðu mér við að fá að taka þátt í að baka það. Því að þú ert vinkona mín og vinur og ert með mér í gleði og sorg. Amen |
Þori ég get ég vil ég (innskot 2009, þessi klausa hér á undan var sérstaklega sett inn í því við vorum mörg orðin þreytt á skrítnum mannaráðningum innan kirkjunnar og klíkuskap).. Feminismi er kvenfrelsi skv. orðabók, en hann er vissulega túlkaður á mismunandi vegu. Það eru til dæmis til róttækir feministar sem vilja bara allt karlkynið burt. Fyrir mér er það afskaplega fráhrindandi hugsun og hlýtur að vera í andstöðu við sköpun Guðs. En þið vitið að það er líka til kristið fólk sem vill samkynhneigða burt og það er einnig í andstöðu við sköpun okkar í Guðs mynd. Við erum öll sköpuð í Guðs mynd, konur og karlar, gagnkynhneigð eða samkynhneigð eða bara ókynhneigð ... og okkur er ætlað það verk, í sameiningu, ekki bara körlum að yrkja þessa jörð og gæta hennar og sundlauga hennar, baka brauð og borða það. Það er að mörgu að gæta. Kvennakirkjuna taldi ég óþarfa áður en ég kynnti mér hana. Mér fannst að það ætti ekkert að vera að skipta hlutunum upp í kvenna og karla. Ég hef að vísu aldrei viljað karla í saumaklúbbinn minn. Sumt er kvenna og sumt er karla og njótum þess. Sumt er sam - og þá verður það að standa undir nafni sem slíkt. Sam-félagið okkar er til dæmis bæði fyrir kvenkyns og karlkyns manneskjur. Sömuleiðis kirkjan. Kvennakirkjan stendur undir nafni sem kvenna - kirkja og er ekkert að fela það. Saman tökum höndum/ við sjáum nýjan dag/ Á vinnustað og víðar/ við syngjum þennan brag Verði okkur öllum að góðu. " |
Svona var ræðan mín árið 2002!
Var eiginlega sjálf búin að gleyma þessari prédikun, en langaði núna til að deila henni með fleirum. Á þessum tíma langaði mig að starfa innan þjóðkirkjunnar, en mig langar það ekki lengur, hún er of köntuð fyrir mig og of margar girðingar, en ég virði alla þá, og á marga nána vini og vinkonur sem hafa valið sér að starfa innan hennar .. það er bara ekki ég .. og ég fæ gæsahúð að heyra orðið Drottinn því það minnir aðeins á drottnara og Guð er ekki drottnari í mínum huga.
Fyrir mér er Guð ein alheimssál, samþjöppuð af okkar sálum og við því hluti af Guði, Guð verður aldrei betri eða verri en summan eða margfeldið af okkur mannfólkinu og því er svo mikilvægt að hið góða nái að yfirvinna hið illa ... Við erum aðeins dropar í stóru Guðshafi ..
Set þessar hugsanaperlur mínar fram fyrir þá sem hafa áhuga...
p.s. ekki láta þessar guðspælingar rugla ykkur ;-) Jesús er lifandi veruleiki fyrir mér, þrátt fyrir óhefðbundna guðsmynd....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 1. september 2009
Elsku Eva Lind 28 ára 2. september 2009
Á morgun verður hún Eva mín 28 ára, það er enginn smá aldur!!.. Hún er stödd fjarri mömmu sinni, í Hornslet í Danmörku - í fína raðhúsinu, með garði að framan og aftan þar sem sólin skín allan daginn. Ég er svo mikil kjúklingamamma að ég sakna unganna minna þegar þau fara í burtu. Eva er reyndar líka kjúklingamamma, því að Máninn hennar var að byrja í dönskum leikskóla í morgun, og eins og hún orðaði það þá var hún að "æla af stressi" .. Mér skilst samt að það hafi allt gengið vel!
Þann 14. ágúst sl. giftu þau Eva og Henrik sig og létu skíra litlu Elisabeth Mai, eins og kom fram í þessari færslu.
Falleg ..
Nú er frú Eva Lind örugglega farin að sofa ásamt litlu fjölskyldunni, ég hringi til Danmark í fyrramálið og vek hana kannski hihi...
Að lokum eitt viðeigandi videó, en Eva söng þetta sjálf ásamt pabba sínum við stúdentsútskriftina sína við mikið táraflóð.
SUNRISE - SUNSET .. that´s what life is all about..
Föstudagur, 28. ágúst 2009
Samkynhneigður vísindamaður einangrar kristið gen :-)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 24. ágúst 2009
Eva Lind giftir sig ..
Eva dóttir mín og Henrik tengdasonur (ásamt börnunum Mai 3 mán, og Mána 5 ára) bjuggu hjá mér stutta stund, eins gott að það var ekki mjög löng stund þar sem þau hentu mér út úr mínu mjög svo rómantíska svefniherbergi og létu mig sofa í sjónvarpssófanum .. (reyndar smá útúrsnúningur í þessari frásögn og ýkjustíll, en það hljómar miklu skemmtilegra en að ég hafi heimtað að þau fengju herbergið!) ..
Jæja, þau voru ekki búin að vera lengi þegar Eva kom til mín og spurði mig hvort mér þætti það ekki alveg brilljant að þau giftu sig nú bara um leið og Mai yrði skírð þann 14. ágúst. Hún hefði reyndar sent Henrik sms um morguninn hvort þau ættu ekki bara að láta til skarar skríða og jú, hann hafði sagt já drengurinn! That´s my girl! Ekkert að tvínóna við hlutina.
Þetta átti í fyrstu að verða allt voða einfalt, og auðvitað allt í laumung, aðeins mamma, pabbi og Birna vissu af þessu, systkinin voru upplýst og örfáir sem urðu eðli málsins vegna að vita af þessu, t.d. presturinn yndislegi hún Jóna Hrönn.
Ég get ekki farið í öll smáatriði en niðurstaðan varð að sauma átti mamma-mia brúðarkjól (auðvitað) og kaupa sítt slör, blómvöndurinn átti að vera samansafn af blómum vallarins eða þannig og allt einfalt og fallegt.
Foreldrar Henriks náðu ekki að koma frá Danmörku, en voru sátt við að haldin yrði veisla þega heim væri komið en hægt að var að lokka besta vin hans þaðan til að vera svaramaður. Hann mætti s.s. til landsins á fimmtudegi og brúðkaupið var á föstudegi. Herrarnir þrír; Henrik svigeson, Sören svaramaður og Mánalingur keyrðu upp í Hvalfjörð til tilvonandi tengdapabba og gistu þar. Við stelpurnar; Eva tilvonandi brúður, Vala aðstoðarkona, Mai litla og móðir brúðarinnar undu sér heima og horfðu á sæta konumynd kvöldið fyrir brúðkaup.
Birnan og pabbinn höfðu séð um að skreyta sal og undirbúa veislu, með örlítilli hjálp frá mömmunni, sem reyndar skar niður tonn af grænmeti. Valan og Ingan höfðu bakað dýrindis möffins-brúðartertu og amman hafði bakað kransaköku, sem reyndar var fyrir skírnarbarnið þar sem hún vissi ekki af hinu samofna brúðkaupi.
Máni var auðvitað hringaberi og Rósinkrans fékk að syngja ;-) ..
Brúðkaupsdagurinn rann upp, við Vala hentumst upp í Mjódd til að versla ýmislegt sem enn vantaði eins og (gervi) demantshjarta um háls brúðar og rómantískt slör sem náði langt aftur að ósk brúðarinnar.
Margt gekk á á Ránargötunni þennan dag, svo málaði mamman sig og tók fram kjólinn sem hún hafði sparað 50 þús á. Já, hann kostaði áður 62 þús og fékk hann á 12 þús á útsölu, ekki hægt að gera betri kaup á útsölu en það!!!.. en áður en hún smeygði sér í dýrðina, brunuðu hún og Vala í Stjörnuheimilið með grænmeti og til að skreyta kökur o.fl.
Á heimleið; um 6 leytið - brúðkaupið byrjaði 19:15 .. hringdi brúðurin og bað mömmu að "redda blómvendi" .. arrrgg.. helst náttúrulegum. Vala hafði engan tíma í það, svo mamman skutlaði henni heim til að gera sig klára og ók svo sem fjandinn væri á afturdekkjunum í átt að Hringbraut. Keyrði inn Ljósvallagötuna á móti akstursstefnu og reif út úr bílnum poka sem hún ætlaði að stinga blómunum í. Sá þá það var Bónus poki, og kom þá í huga hennar að brúðarvöndur dóttur hennar færi sko ekki í Bónus poka. Var heppin að Vala var að vinna hjá Sævari Karli og að í bílnum var poki þaðan. Ekki að mamman sé snobbuð! .. Kom hlaupandi með hníf og poka að Margaritublómabeði í boði borgarinnar og horfði flóttalega í kringum sig - en hún mátti engan tíma missa og quizzz .. blómvöndurinn var skorinn úr beðinu og stungið í pokann frá Sævari Karli. Brunaði nú mamman aftur heim á leið, batt fagran borð um vöndinn og "voila" vendinum var reddað!
Út í bíl fór hún hlaupandi, í silfruðum og gylltum kjólnum og brunaði í Garðakirkju. Þar beið Birna og tóku þær brosandi á móti gestunum, sú gamla og sú nýja. Gestir urðu pinku skrítnir en brá að sjálfsögðu þegar inn var komið í kirkjuna og Henrik og Sören íklæddir mörgæsaklæðnaði hneygðu sig virðulega. Reyndar var annað krútt í mörgæsaklæðnaði sem beið fyrir utan með hringa í boxi - en það var Máni, sem eins og venjulega var bara "cool" enda vanur hringaberi!
Brúðurin kom eiginlega meira en fashionably late, kirkjan full af ungum og fallegum vinkonum brúðarinnar með litlu ungana sína og auðvitað pabbana þeirra! .. Damm, damm, damm, damm.. og "here comes the bride" Eva kom inn með pabba sínum, yndisleg sem alltaf brosandi út að eyrum - berfætt - eins og hennar var von og vísa í mammamia brúðarkjólnum sínum. Úff, það var ekki bara mamman sem tárfelldi, brúðurin grét og enginn var ósnortinn af gleði hennar.
Vala sat fremst með fallegu Elisabeth Mai, sem var íklædd yfir 50 ára gömlum skírnarkjól fjölskyldunnar, sem amma hennar (ég) hafði saumað í bleikar slaufur fyrir tilefnið.
Brúðkaupið var yndislegt, Páll Rósinkrans söng fallega fyrir brúðhjónin "Ó þvílíkt frelsi að elska þig" og "Unchained Melody" og ekki síður fyrir barn þegar hann söng "Þitt fyrsta bros" .. þúsund tára brúðkaup og skírn. Máni klikkaði ekki á hringaburðinum og var krútt aldarinnar, Jóna Hrönn bætti í gleðina með að halda á Elisabeth Mai meðan Rósinkransinn söng lagið hennar og sú stutta stal senunni algjörlega á tímabili, enda líka hennar dagur.
Veislan var æði, allir glaðir og kátir - farið í leiki og haldnar stuttar tölur, auðvitað margar óundirbúnar þar sem enginn eða fæstir vissu að um brúðkaup væri að ræða. Síðustu gestirnir fóru svo um miðnætti, en við gengum algjörlega frá salnum og komum heim lúin eins og eftir fjallgöngu - en jafn sátt. Fríður flokkur mætti á Ránargötuna; Brúðurin Eva og brúðguminn Henrik, mamman, svaramaður, Vala, hringaberinn var borinn inn sofandi og jafnframt hin nýskírða snót Elisabeth Mai og þau lögð fyrir.
Sören svaramaður þurfti að fara í flug klukkan 7 um morguninn, svo hans svefn gat aldrei verið meiri en 2-3 tímar. Þegar við vorum þarna um miðja nótt að horfa á upptökuna af skírn/brúðkaupinu, þá segir Eva við mig; Mamma það er best að Sören sofni hjá Henrik í þínu rúmi og ég sofi hér í minni sófanum og þú í þeim stærri. Ég sprakk úr hlátri og sagði það ekki koma til greina að brúðguminn og svaramaðurinn eyddu brúðkaupsnóttinni saman. En hún stóð föst á sínu og tilkynnti Henrik þetta, brúðkaupsnóttinni var þar með frestað þar til óákveðið!
Mamman sem hafði laumast til að setja hreint á rúmið hjá þeim og svona minnstu munaði að herbergið væri allt skreytt með hjörtum, en hafði sleppt því vegna tímaleysis. Jamm og já, þannig fór það. Sören svaramaður og Henrik svigeson eyddu s.s. brúðkaupsnótt þess síðarnefnda í mínu rúmi og ég (svolítið heppin) fékk að hafa Evuna mína hjá mér á brúðkaupsnóttina hennar.
Fallega fólkið mitt; Tobbi, Ásta, Vala, Máni, Eva og Henrik.
Lífið er yndislegt! Óska Evu minni og Henrik til hamingju, litlu stelpurnar manns verða samt alltaf litlu stelpurnar.... (set myndir á Facebook)
Vinir og fjölskylda | Breytt 25.8.2009 kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Gleði, gleði, gleði - gangan .. að gefnu tilefni!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 9.8.2009 kl. 20:43
Svar Jóns til mín:
"Jóhanna, ég get ekki annað en vorkennt þér sem guðfræðingi. Styður Hönnu Birnu í þessu athæfi hennar! Viljið þið ekki bara breyta Sjálfstæðisflokknum í yfirlýstan líberalistaflokk í öllum málum, andkristinn og and-konservatívan, með henni Þorbjörgu ykkar Vigfúsdóttur og vesalings Kolbrúnu Baldursdóttur? Flokkurinn er hvort sem er búinn að hafna sinni kristnu fortíð, með margvíslegum hætti."
Það skal tekið fram hér að ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, svo það er óþarfi að spyrða mig við hann, en ég styð Hönnu Birnu í þessu meinta "athæfi" hennar. .. Reyndar styð ég fólk úr öllum flokkum, því mér líkar bara nokkuð vel við marga í mörgum flokkum! ..
Sama gildir um trúflokka, ég styð skoðanir margra í mörgum trúfélögum og reyndar utan trúfélaga líka auðvitað.
Ég held reyndar að engar tvær manneskjur hafi 100% sömu trú né sömu stjórnmálaskoðun og því séu mengin mjög samofin og erfitt að draga skýr mörk eða landamæri.
Varðandi að mér sé vorkunn sem guðfræðingi þá vil ég miklu frekar stilla mér upp sem guðfræðingi við hlið Sr. Sigríðar Guðmarsdóttur sem hefur stofnað m.a. hóp á Facebook sem inniheldur fleiri liberal guðfræðinga og presta, þar sem farið er fram á að á Íslandi gildi ein hjúskaparlög frekar en við hlið Jóns Vals Jenssonar og hans "lífsgilda"..
Jæja, fyrst og fremst er ég manneskja - líkar ekki þessi áhersla á flokkadrætti, stimpla og félög þó ég sé heilshugar með því að fólk stilli saman strengi og vinni í samtakamætti að góðum verkum, og ég er bara það sem ég er ..
Jæja, nú er kominn vinnudagur, þarf að undirbúa komu nemendanna í skólann, þ.m.t. samkynhneigðra nemenda, sumra sem líður bara vel í sínu skinni en sumra sem þurfa að glíma við fordóma og þarf að styðja gegn afturhaldsseggjum og sjálfskipuðum dómurum samfélagsins.
Knús og kærleik til okkar allra .. Love all Serve All
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Laugardagur, 8. ágúst 2009
Hitti bloggvinkonu í mátunarklefa ...
Ég stikaði með Huldu systur upp Laugaveginn til móts við Gay Pride gönguna, átti þar stefnumót við Evu og Henrik með börnin. Þar sem Vala var að vinna í Sævari Karli (reyndar ekki í honum heldur í búðinni sem heitir Hjá Sævari Karli) fór ég þar inn í þann undraheim. Ég hafði, þar til í dag, ekki eignast flík þaðan, enda verðin "aðeins" fyrir ofan minn fjárhag.
Jæja, nóg um það við Hulda fórum til Völu niður í dömudeild og ég komst að söluhæfileikum dótturinnar. (Ég held það hafi verið síðast í gær að ég var ákveðin í því að fara að vera duglegri að spara) Já, já, en hún fann til buxur - sem svoleiðis smellpössuðu á mömmu og fleira með 60 - 70% afslætti á útsölunni og ég endaði uppi með tvennar vinnubuxur og eina skyrtu!!.. Allt auðvitað svakalega vandað og fínt.
Þar sem ég gerði eitt af mínum flottu entrance út úr mátunarklefanum, kom á sama tíma út úr sínum mátunarklefa glæsikvendi nokkurt í svörtum kjól. "Hvar hafði ég séð þessa konu" ... hugsaði ég; en hugsaði ekki lengi: vá, bloggvinkonan Ía í Prag var þarna mætt í öllu sínu veldi. - Ég horfði á konuna og spurði svo varlega; "heitir þú ekki Ía"? .. og jú, sú var konan - og ég kynnti mig fyrir henni.
Þetta var gaman fyrir okkur báðar, við knúsuðumst á staðnum og hlógum að þessum aðstæðum.
Dagurinn í það heila var mjög góður, endaði ég með litlu fjölskyldunni á Café Paris og fengum við okkur Salat og erum nú komin heim í kaffi.
Góður dagur!
..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 11. júlí 2009
Tveir ísar þegar maður er veikur sko! ...
Í dag er fimmta útskriftin frá Hraaðbraut og "sú gamla" er alltaf með. Þetta er ein mesta hátíð ársins hjá mér, og í raun uppskeruhátíð ;-)
Eftir uppskeruhátíð ætla ég að kíkja á hann Mána minn sem tognaði illa í gær greyið á hoppudýnu í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum og þurfti að fara á slysó.
Hann var víst mjög þjáður, en fékk góð verkjastillandi lyf og þegar ég heyrði í mömmu hans í gær var hann að kalla "Mamma þegar maður er veikur má maður þá ekki örugglega fá tvo ísa" ??..
Svo er ég víst búin að bóka mig í snúllupössun í kvöld, en umræddar snúllur eru ungar systurdætur mínar Rósa og Ísold en mamma þeirra er að fara í ammæl! ..
Á mánudag er svo "Girls Hike", en þá ætlum við systur og mágkonur að fara í Huldukot - ganga einhverja hrikalega göngu og fá okkur grill um kvöldið .... gista og kannski hlæja svolítið saman, reyndar ekkert kannski þar!
Óska ykkur góðrar helgar snúllur ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 13. júní 2009
Svona er að borða rangt ...
Byrjaði daginn á að borða einhvern hollustu-skyr-bombu sem var mjög góð um 7:30! .. Jæja, .. hádegið kom og min borðaði bara eitthvað Ágústu Johnson hrökk-kex og te því henni var hálf illt í mallanum. Svo leið og beið og klukkan 17:00 var það eitt stykki banani. Bauð svo börnum og barnabörnum í kvöldmat og matseðillinn var Tikka Masala kjúklingur m/hnetum, bönunum, tzaziki sósu, rauðvínsglas, sterkt kaffi á eftir o.fl. o.fl. og þá var ég búin að planta of miklu brasi og sterkri sósu líka í likamann svo það fór sem fór.
Er ofurviðkvæm í maga, og vaknaði uppúr 5 með kvalir :( ... og hef reyndar ekki sofnað síðan.
Það trúir því eflaust enginn, en þessi magaverkjaköst leiða út í bakið, handlegg og niður eftir vinstra fætinum (allt vinstra megin) .. og eru MJÖG kvalafull, geta staðið í marga klukkutíma ... eftir að þau hjaðna þá finn ég enn eymsli á eftir .. hef fengið þetta með mjög óreglulegu millibili síðan ég var tvítug .. svo ekkert nýtt í gangi..
Passa mig að eiga ekki svona rugldag í mataræði á næstunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 12. júní 2009
Hæ, hæ, ...
Velkomin þið nýju lesendur að bloggi. Hér leynist nú lítið djúsí, aðllega að röfla um aðhaldið mitt þessa dagana, - hefði eflaust verið meira spennandi að tala um viðhald en aðhald.. ;-)
Ekki eru allir "útíbæ" ánægðir með bloggið mitt og finnst ég níðingur hinn mesti, svo ég tók á það ráð að læsa bara á óánægðar sálir en hleypa ánægðum inn.
Því treysti ég, lesandi góður, að þú sért ánægð sál! :-) .. (popoppið virkar ekki - svo ég get ekki notað broskallana)
Kær kveðja,
Jóhanna .. verðandi mjóa!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 4. júní 2009
Nágrannar
Hér á bak við hús er sameiginlegur garður, með borði, stólum, nokkrum pottum fyrir sumarblóm o.fl. Við mæðgur ræddum það að það væri upplagt að kynnast nágrönnunum með því að stinga upp á vinnudegi í garðinum, fúaverja húsgögn, hirða arfa úr blómabeðinu og setja sumarblóm í pottana.
Við létum því verða af því áðan að ræða við efri og neðri hæð, erum í miðjunni, og a.m.k. neðri hæð var mjög "game" að hafa garðdag næstu helgi! ;-) Þau stungu upp á því að grilla svo í lokin, úúúú.. gaman, gaman.
Það er alveg bráðlífsnauðsynlegt að eiga góða nágranna - og svo eigum við auðvitað Sissu og Jónas á móti, sem læsa sig úti til skiptis og fá hér griðarstað!
Í 2 mín göngufjarlægð er einstaklega vinveittur nágranni, en það er auðvitað Lotta sys og ef ég geng í 5 mín er líka vinveittur nágranni - en það er auðvitað Hulda sys! ..
Ekki í vandræðum með kaffið þessi kona!
Læt vita á morgun hvort ég hef lést eða ekki .. dagur 2. í átaki er að líða í dag og ég hef haldið allt sykurbindindi og borðað aðeins hollt og gott. Fer í tímann 6:20 á morgun.
Kveðja, Jóga pók.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég freistaðist til að skrifa athugasemd hjá Jóni Vali Jenssyni, þrátt fyrir að hafa það að prinsippi að fita ekki púkann á fjóshaugnum.
Ég kommentaði s.s. á þessa færslu og skrifaði:
"Það sem fór í gegnum huga minn þegar ég stóð á Laugaveginum í gær með börnum og barnabörnum og fylgdist með Gay Pride göngunni, var hvað þessari stund fylgdi mikil gleði, vinátta og samstaða. Sá þarna fólk af öllum stærðum og gerðum með marglita kransa um hálsinn og flaggandi regnbogafánanum en litir regnbogans er tákn samkynhneigðra.
Þjóðinni veitir ekki af slíkum gleðidögum - veitir ekki af því að taka frí frá Icesave áhyggjum og pólitískum bragðarefum um leið og hún styður jafnréttisbaráttu samkynhneigðra.
Ég styð það sem er kærleikans megin, styð mannréttindi (líka samkynhneigðra) og ég styð Hönnu Birnu!
Til fjandans með fordómana. "