Allir fæturnir af sama manninum ? ..

.....Shocking.....

 


mbl.is Þriðja fótinn rekur á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilsusamlegt líf - Dagur 9 að kveldi kominn..

Danir "ulluðu" framan í múslima

í fullum rétti

 undir regnhlíf málfrelsis

er of mikið rok fyrir regnhlíf ? ...


Við tökum Júróvisjón með þessu lagi ... Islande Douze points..

... eins og alltaf! LoL
mbl.is Silvía Nótt breytist í stælta karlmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æðri máttur ..

Ef ekki værir þú,

væri ekkert.

Ég finn fyrir þér

og finn að ég er hér

og þú  

það er mín trú ... HeartSmileHeart

 

 


mbl.is Innbyggð trú rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig má efla velferð stjúpfjölskyldna? Askja – HÍ 22. febrúar 2008 kl. 14:00 – 17:30 – Stofa N‐132

Mig langar að vekja athygli á eftirfarandi málþingi um velferð stjúpfölskyldna:  

 Málþingið er haldið að frumkvæði Félagsráðgjafafélags Íslands og Félags stjúpfjölskyldna, í samvinnu við Rannsóknarsetur í barna og

fjölskylduvernd, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík,

Heimili og skóla, Biskupsstofu, Mentor og Samtökin 78.

Skráning fer fram á stjuptengsl@stjuptengsl.is eða felagsradgjof@felagsradgjof.is

Vinsamlegast skráið nafn, vinnustað, greiðanda og tölvupóstfang.

Þátttökugjald er 1500 kr og greiðist inn á reikning 120
‐26‐9101 kt.

701205‐2190 eða við komu.

Dagskrá

Fundarstjóri:
Jóhanna Rósa Arnardóttir forstöðumaður Rannsóknarsetur í barna og fjölskylduvernd

13.30 ‐ 14.00 Skráning

14.00 ‐ 14.10 Ég fékk stjúppabba 4 ára

Júlía Sæmundsdóttir, félagsráðgjafanemi, Félagi stjúpfjölskyldna

14.15 ‐ 14.30 Stjúptengsl ‐ vannýtt auðlind?

Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi MA, formaður Félags stjúpfjölskyldna og ritstjóri

www.stjuptengsl.is

14.30 ‐14.45 Tilfinningalegur rússíbani ‐ faðir með börn á tveimur heimilum

Páll Ólafsson félagsráðgjafi, MA, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands

14.45‐15.05 Frá reynslusögum til rannsókna ‐ og þróast hönd í hönd

Dr. Sigún Júlíusdóttir félagsráðgjafi og prófessor HÍ

15.05
‐15.25 Hlé

15.25 ‐ 15.40 Stjúpfjölskyldur í tölum

Ólöf Garðarsdóttir, deildarstjóri Mannfjöldadeildar Hagstofunnar

15.40 ‐ 16.00 "Ég held að pabbi hafi verið ættleiddur"

Björk Erlendsdóttir skólafélagráðgjafi og MSW nemi

16.00 ‐ 16.20 Heimili og skóli

Helga Margrét Guðmundóttur verkefnastjóri

Hinsegin stjúptengsl ‐ Guðbjörg Ottósdóttir félagsráðgjafi, Samtökin 78

Neskirkja ‐ Sigurður Árni Þórðarson prestur

16.20 ‐ 17.10 Pallborð

Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður og framsögumenn

17.10 ‐17.20 Niðurstöður kynntar og málþingsslit

Álfgeir Kristjánsson, aðjúnkt Kennslufræði‐ og lýðheilsudeildar HR

17.30 Léttar veitingar

Staður: Askja – HÍ 22. febrúar 2008 kl. 14:00 – 17:30 – Stofa N‐132


Röfl ...

Ég var að koma úr líkamsræktinni, sem ég er ,,by the way" farin að verða háð.. hefði aldrei trúað því upp á letihauginn mig! .. En það sem ég furða mig alltaf á er að fólkið sem mætir þangað til að trimma getur ekki gengið nokkra aukametra úr bílunum sínum. Bílarnir eru upp á gangstétt og við öll ,,bannað að leggja" skilti og mig grunar að sumir leggi í stæði sem ætluð eru fötluðum eða hreyfihömluðum! Svei mér þá alla daga.  Soldið skondið verður að segjast. Cool ..

Annars er bara allt í gúddí, týndi símanum í sólarhring og fannst ég vera gjörsamlega gangráðslaus.. en svo sá ég auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem miðill auglýsti að hann fyndi týnda hluti, ég ákvað því að hringja í hann en fattaði þá að ég var búin að týna símanum mínum! Shocking .. (þetta er nú smá lygasaga - það kemur fram í einhverri auglýsingu að maður eigi að segja eina góða lygasögu fyrir fertugt! .. og ég alveg að verða fertug!...eða þannig) ....

 


Heilsusamlegt líf - Dagur 8 ... ClaMal ... Claus og Malene ..

 

ClaMal  Heil og sæl, - fyrir tja.. þremur árum eflaust var ég heimasölukona á fatnaði. Flestar vinkonur og fjölskylda - fyrr og síðar urðu ,,fyrir barðinu" á mér og héldu heimakynningar og gengu í ClaMal fötum. Já, hehe, óþolandi þessar heimakynningar. Merkið heitir CLAMAL og er myndað úr fornöfnum dönsku hjónanna Claus og Malene. Var að kíkja í listann í gær hjá vinkonu minni sem er nú komin með umboðið og hef ákveðið að taka slatta heim og bjóða í fatamátun. Auglýsi það nánar síðar! ... Stærðir sem henta öllum konum..

Clamal_1                     Clamal_2

 


Sykurbindindi já takk ... en ...

..Heimaleikfimi er heilsubót,

herðir mann upp og gerir mann stífan,

hvort sem að undir er gras eða grjót

gólfteppi, undirskál, stóll eða dívan! LoL

......


mbl.is Ekkert kynlíf í tvö ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilsusamlegt líf - Dagur 7 ! .. og lax á spínatbeði .. og Le Grande Bouffe!

Já í dag er ég búin að vera sætindalaus í sjö daga. Ekki enn orðin geðvond!

Er að elda laxabita sem ég mun leggja á beð af spínati og avocado. Auðvitað búin að sprauta svona balsamic sírópi hringinn á diskana eins og á veitingastöðunum. Svolítið seint borðað í kvöld, en þess meira kósý.

Annað kvöld er kvikmyndaklúbbur og þá er það Átveislan mikla!

eða ef ég kvóta orð sýningarstjóra kvöldsins:

"Þetta er mynd sem vekur mann til umhugsunar og er ógleymanleg og fjallar m.a. um græðgina.

Þessi magnaða mynd er eftir Ítalska leikstjórann Marco Ferreri og

heitir:

La Grande Bouffe.  The Big Feast í Bandaríkjunum  og  BlowOut í Bretlandi.

Ég kalla hana Átveisluna miklu.

 

Myndin vann Fibresci verðlaunin í Cannes 1973 og Golden Screen verðlaunin í Þýskalandi 1974. Það blossuðu að vísu upp slagsmál gagnrýnenda í Cannes og óeirðir í París, en þar var hún sýndí langan tíma,  það eru náttúrulega ekkert nema meðmæli með henni!

Ástkona Mastroiannis á þeim tíma Catherine Denevue talaði ekki við hann í vikutíma eftir að hún sá myndina¡

 

Þetta er stórskemmtileg og sérstök mynd, sambland af Ratatoulle og The Cook the Thief His Wife & Her Lover. Dálítið skrítin blanda! "


Margur verður af aurum api..

...


mbl.is McCartney og Mills náðu ekki samkomulagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband