Sunnudagur, 17. febrúar 2008
Þórólfur Árnason bara flottur... og sjötti sykurlausi dagurinn að kveldi kominn!
Horfði á Evu Maríu rabba við Þórólf fv. borgarstjóra. Mér fannst hann bara flottur, sorry, bara þúsund sinnum flottari en Villi....
Komin heim eftir sætan en þó sykurlausan systrasólarhring. Stóðum við stóru orðin - borðuðum bara hollt og gott og djúsuðum mikið! .. Stóra systir blandaði djús í fína djúsaranum ofan í okkur. Gulrótar-engifer-eplasafa og ananas-peru-engifersafa.
Bárum á okkur andlitmaska sem gerði okkur mjög svo fríðar ! .... Mæli með svona kvennaferðum, þær eru afslappandi og hressandi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 16. febrúar 2008
Heilsusamlegt líf Dagur 5 ....F fyrir Feitir kallar og Flottar konur ?
Nú fer að líða að brottför upp í Borgarfjörð. Heilsusamlega lífið er farið að borga sig. Kíló hrunið og vaknaði ótimbruð í morgun eftir Þorrablótið sem var annars mjög fínt (þó Þorramatur sé ekki ,,my thing" .. )
Hitti þar bloggvini, suma í fyrsta sinn - ógesslega fyndið að sjá fólk svona ,,up close and personal" - en hefði að vísu líka viljað hitta hina mætu Ásthildi Cesil enda tilheyrir hún þessum F-lista ..Já, hver hefði trúað því fyrir einu og hálfu ári að sú sem hér ritar ætti eftir að mæta á Þorrablót hjá F lista! Ég er svona Kvennalistakona í mér. Go Girls! Það sem mér finnst samt mætast hjá listanum er viljinn til að starfa heiðarlega (Nota bene: Ólafur F. er EKKI í Frjálslynda flokknum (enda alltof mjór). Nú þarf bara að fylla flokkinn af Flottum konum, þá er ég glöð .. og auðvitað líka köllum...
F stendur sko fyrir Feitir kallar og Flottar konur... .. Æ, nei, nei..fullt af mjóum köllum þarna líka, en mikið var sagt af feitukallabröndurum af einhverri ástæðu! Nóg um Þorrablótið.
Ég er á leið uppí sveit með stóru og litlu systur. Litla systir komst óvænt með við mikla gleði okkar hinna. Kokteilar verða blandaðir í kvöld úr engifer, eplum og gulrótum!
Fimmáringurinn var ekki mjög sáttur við þetta - spurði mig hvort að hann og pabbi hans ættu að vera ALEINIR eftir heima ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 15. febrúar 2008
Lúkkalæk keppni ...
Hvaða bloggari er líkastur ...
Hvaða bloggari er líkastur ...
Hvaða bloggari er líkastur ...
Hvaða bloggari er líkastur ...
Hvaða bloggari er líkastur ...
Hvaða bloggari er líkastur ....
hehe.. má nefna sjálfa/n sig eða aðra...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 15. febrúar 2008
Heilsusamlegt líf - Dagur 4
Nú er að hefjast fjórði dagur í heilsusamlegu lífi. Held ég sé bara hressari og kátari og glaðari .. ætla ekki að halda áfram svo ég verði ekki gjörsamlega óþolandi hress! Fór í ræktina í gær og ætla aftur í dag.
Vaknaði svolítið stressuð í morgun - hvorum megin hann Máni minn, sem hafði verið í gistingu hjá ömmu, myndi nú fara út úr rúminu. Ég vakti hann því gætilega, settist á rúmstokkinn og tók hann í fangið, ræddi rólega um daginn og hvað væri framundan og spurði svo: ,,ertu ekki svangur" .. Ó jú, hann var svangur svo við fórum fram í eldhús og fengum okkur Cheerioos og djús. Gekk vonum framar. Svo hjálpaði amma honum í fötin sín og auðvitað týndust hendur og fætur, sem fundust við mikinn fögnuð og undrun og við skellihlógum að því. Hann var s.s. kominn í leikskólann klukkan 8:00 svo allt fór eftir áætlun!
Í kvöld er þurra Þorrablótið og á morgun er það heilsusólarhringur í Huldukoti, bústaðnum hennar systur minnar. Ætlum að borða spínat og sellerí og drekka grænt te ..og fara í göngutúra auðvitað! .. Ekkert gefið eftir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Kvöldbæn
Leiddu mig Guð - sestu niður með mér og rabbaðu við mig, gjörðu beina brautina þína fyrir mér svo ég sjái hvert ég á að fara. Gefðu mér daglegt brauð og hjálpaðu mér við að fá að taka þátt í að baka það. Því að þú ert vinkona mín og vinur og ert með mér í gleði og sorg.
Amen
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Laus hnéskel ..einhver með svoleiðis þarna úti ?
Í dag ákvað dóttir mín að koma manninum sínum á óvart og bauð honum í bíó í Lúxussal í kvöld klukkan 20:00 ..man ekki hvað myndin heitir. Ísak Máni, sonur hennar sefur því þessa stundina í ömmu bóli, - íklæddur súpermannáttfötum og fimmáringurinn ekki langt undan í samskonar klæðnaði.
Áður en hún kom til mín í kvöld með pjakkinn í pössun hafði hún komið við hjá vinkonu sinni, sat á gólfinu með hann á hnjánum - þá ýttist hnéskelin á henni alveg út á hlið! .. með tilheyrandi sársauka. Vinkonan brást vel við og ýtti hnéskelinni til baka .. úff..maður fær svolítið illt í hnén bara við að skrifa þetta. Fróðlegt væri að vita hvort að fólk kannast við svona kvilla, þetta hefur ekki hent áður...
Ekki veit ég hvort það var inní myndinni að hún færi niður á skeljarnar og bæði sambýling sinn um að giftast sér - svona i tilefni dagsins, en býst við að hún sleppi því .. Eva sorry hehe..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
DAGUR ELSKENDA ..

Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008
Heilsusamlegt líf - Dagur 3 .. Grafarþögn í húsinu ...og Þorrablót mínus hákarl og brennivín á morgun
Þriðji sykurlausi dagurinn er að renna upp. Annað kvöld er svo þurrt Þorrablót. Enginn sem er að lifa heilsusamlegu lífi fer að hella í sig brennivíni og öðrum vökva í þeim dúr. Fer í ræktina í dag .. dugleg!
Fór seint að sofa því ég festist í Grafarþögn. Það var grafarþögn í húsinu á meðan ég kláraði, að vísu heyrðist einstaka píp í Bósa Ljósári þegar fimmáringurinn bylti sér í rúminu sínu.
Mikið svakalega var Grafarþögn spennandi bók og áhrifarík líka. Eftir standa orð eins og ... ofbeldi, leyndarmál, mannvonska, SÁLARMORÐ,.. ekki mjög uppbyggilegt - en vekur til umhugsunar um Gríma þessa heims. Mikið ofboðslega er karakterinn Grímur mikið skrímsli. ..
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Dýr á boðstólum .. fimmáringurinn vægast sagt ekki hrifinn..
Vorum með Þorraveislu í vinnunni í dag. Pöntuðum fyrir fimmtán en fengum fyrir fimmtíu! .. Ég tók afganga heim og þar fylgdu að sjálfsögðu dýrindis sviðakjammar. Fimmáringurinn horfði á ,,andlitið" með viðbjóði og sagðist vera á móti því að drepa dýrin! Hann gat engan veginn skilið að til að búa til pylsur og hamborgara þyrfti að drepa dýr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Taka þessa drengi og hengja þá upp á axlaböndunum ...
![]() |
Þrír piltar ruddust inn í íbúð konu á níræðisaldri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)