Miðvikudagur, 13. febrúar 2008
Heilsusamlegt líf Dagur 2 ... og ADHD-markþjálfi ... Árás á Dolla mjólkurdropa ?
Mér tókst að komast í gegnum gærkvöldið - sykurlaus - þrátt fyrir að boðið væri upp á þvílíka rjómasykursprengju í kvikmyndaklúbbnum í gærkvöldi.
Í 24 stundum í morgun var sagt frá konu, Sigríði Jónsdóttur, sem sagðist hafa læknað sig af athyglisbresti með markþjálfun og mataræði. Hún segist einnig eiga mann með athyglisbrest og son með ADHD.
Án þess að fara djúpt í pælingar um þetta, þá tekur hún fram að mataræði skipti máli fyrir fólk með ADHD. Hún tekur mjólk út og notar spelt í staðinn fyrir hveiti. Ég hef einnig hlerað það hjá krabbameinssjúkum að mjög margir þeirra taka út mjólk.
Er mjólkin virkilega svona slæm ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Heilsusamlegt líf - Dagur 1 ... Lífi þó ekki blásið í köflóttan sundbol
Ég sá á blogginu hennar Jónu að hún er hætt að borða sykur, ég ætla líka að hætta að borða sykur (hef sosem hætt áður) en bæta um betur og sleppa brauði, sósum, unnum kjötvörum og áfengi. Úff.. verður eitthvað gaman að lifa ? Er nýkomin úr ræktinni þar sem ég er farin að taka 100 magaæfingar á pyntingaræki sem ég gat bara tja..svona 10 þegar ég byrjaði.
Ég er eins og margt fólk YoYo Dieter .. sem útleggst á hinu ástkæra ylhýra ein sem fitnar og grennist til skiptis.
Svo kemur sönn saga:
Einu sinni á mjóu tímabili keypti ég mér köflóttan sundbol. Allir sem vita eitthvað um köflótt vita að ef kona er hið minnsta búttuð verður kona mjög breið við köflurnar. Notaði sundbolinn þar til ég komst á ,,breiðara" tímabil. Þá var hann settur upp í hillu og gleymdist.....þar til að hundurinn minn hún Hneta, já hundurinn minn sagði ég, fór í móðurlífsaðgerð og hin hugmyndaríka húsmóðir klippti gat á köflótta sundbolinn (sem gerði hana hvortsemer feita) fyrir rófuna og setti hana í svo hún nagaði ekki saumana. Sko Hneta (ekki húsmóðirin). Svo líður tíminn, saumarnir voru löngu grónir á Hnetu og hún farin að dilla rófunni kát.
Eitt kvöldið þegar húsmóðirin var að fara í heitapottinn - og fannst hún vera óvenju ,,fitt" rámaði hana í að hún ætti sætan sundbol uppí hillu í kjallaranum. Hún var heppin og fann hann, hljóp með upp í herbergi og í hann. Flott! .. best að drífa sig í pottinn.. en rétt áður en hún ætlaði að gera "grate" entrance út á pall þar sem fjölskyldan beið í pottinum, varð hún auðvitað aðeins að kíkja í spegil og sjá hvernig hann færi henni á afturendanum.. .. hehe.. hún öskraði upp þegar hún sá hvað blasti við!..
Hvernig hún gat gleymt því að hafa klippt þennan fína hring á rassinn á bolnum er mikill Leyndardómur! ..
Sundbolurinn er nú gleymdur og grafinn .. og verður aldrei tekinn upp aftur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
Ágæt læknisráð á Þorra ?
Læknisfræði Óðins bónda á Stóru-Völlum
Ég las þessa grein í Morgunblaðinu (pappírsútgáfunni) í maí og bloggaði þetta þá en þar sem margir þjást nú af flensu langar mig að deila hugmyndum Óðins bónda með ykkur, ætla ekki að hafa fleiri orð um það en leyfi þeim sem vilja lesa að njóta:
Læknisfræði Ný uppgvötun ..
Stóru-Völlum í Landsveit.
Spaugilegt | Breytt 13.2.2008 kl. 15:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 11. febrúar 2008
Amma Batmans...

Vinir og fjölskylda | Breytt 13.2.2008 kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 11. febrúar 2008
Veit einhver ??? .. hvað er vínsteinsduft á ensku ?

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 11. febrúar 2008
ÞAÐ ER ENGIN LEIÐ AÐ HÆTTA.....
Villi er hér staddur á algjörum bömmer,
sér ekk'úr augunum út;
allt erí steik en hann neitar að hætta,
hleypur í kekki og hnút.
Þegar Ólafur birtist fer sólin að skína,
smáfuglar kvaka við raust;
í brjálæðishrifningu býður hann ópal
og berjasaft skilyrðislaust, þeir syngja saman:
Popplag í D-dúr, þeir syngja popplag í D
þeir syngja popplag í D-dúr,
það er engin leið að hætta
það er engin leið að hætta
það er engin leið að hætta'ð
syngja svona popplag í D-dúr,
popplag í D
![]() |
Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 11. febrúar 2008
Af hverju ertu að þessu ?
Ég var að fá í hendurnar áhugaverða bók um Tourette-heilkennið en hún er sérstaklega skrifuð fyrir börn og ungt fólk. Höfundar eru Uttom Chowdhury og Mary Robertson, en hún er þýdd á íslensku af Boga Bjarnasyni og Kristjáni Hreinssyni. Mér sýnist hún við fyrstu sýn einstaklega þægileg - og oft er efni sem sett er fram fyrir börn eitthvað sem við fullorðin eigum hreinlega auðveldara með að skilja!
Af hverju ertu að þessu? er skrifuð af læknunum Mary Robertson og Uttom Chowdhury, sem bæði eru vel þekkt á sínu sviði. Hinn heimsþekkti knattspyrnumarkvörður Tim Howard, sem sjálfur hefur Tourette, skrifar formála að bókinni.
Í bókinni eru auk þess reynslusögur barna og unglinga með Tourette og einnig frásagnir systkina. Eru þær sögur fengnar víðs vegar að úr heiminum og eina af þeim skrifaði íslensk stúlka sem á bróður með Tourette.
Bókina má panta í tölvupósti, tourette hjá tourette.is, eða með því að hringja í 840-2210.
Athugið að verð hennar er aðeins 1.300.- krónur.
Hún mun einnig verða seld í nokkrum bókaverslunum og er heldur dýrari í verslununum sem nemur bæði virðisaukaskatti og verslunarálagningu.
Menntun og skóli | Breytt 13.2.2008 kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 11. febrúar 2008
Einkunn, miskunn, vorkunn og forkunn....Jórunn, Sæunn, Iðunn, ....eða þannig!
Ég gef Villa nú ekki háa einkunn í pólitíkinni, hann hefur hlotið heilmikla náð og miskunn en nú er fólk búið að fá nóg. Honum er nú samt vorkunn þar sem þetta er, að mínu mati, ömurleg staða að vera í ... og hmmm..það þarf einhvernveginn að koma forkunn-arfagur inn í þetta en af einhverjum ástæðum passar það ekki!
...
![]() |
Pólitísk staða Vilhjálms rædd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 10. febrúar 2008
Draumur eða ....... ?
Kitlandi sólargeislar og kaffiilmur vöktu mig, ég leit upp og sá hvar fislétt hvít gluggatjöldin sveifluðust í frönsku hurðunum sem stóðu opnar út í garðinn, þau buðu volgan Miðjarðarhafsvindinn velkominn inn í svefniherbergið. Smáfuglar sungu úti, buðu góðan dag og flögruðu milli trjánna.
Sólblómin brostu í beðunum.... Ég teygði úr mér, teygði mig í dvd spilarann og setti lagið um gylltu akrana hennar Evu Cassidy í gang.. kling, kling, kling....hvaða truflun var þetta í geislaspilaranum ? .. æi, þetta hljóð þekkti ég allt of vel, ég snúsaði og reyndi að komast aftur í drauminn en það var tilgangslaust. Vafði sænginni þétt um mig og hlustaði á haglélið berja rúðuna, vindinn ýlfra inn um óþéttan gluggann. Myrkrið minnti mig á að það var vetur og hundar nágrannans geltu til að undirstika raunveruleikann...
...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 10. febrúar 2008
Sex and The City hvað ? ..
Viðmælendur eru ekki ósvipaðar týpunum Carrie og Samönthu í Sex and The City! Kokteilarnir þeirra koma líka við sögu í myndbrotinu.
![]() |
Ríkar konur - sætir strákar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)