Færsluflokkur: Bloggar
Mánudagur, 29. desember 2008
29. desember 2008
Eva Lind mín fór í tuttuguvikna sónarinn í dag og litla barnið dafnar eðlilega, allt í fínasta lagi og fékk ég að sjá mynd og sýndist mér svipurinn nú bara líkur stóra bróður.
Reyndar átti stóri bróðir (4 ára) setningu dagsins þegar hann kvartaði við ömmu sína í morgun;
,,Mamma min er alltaf ekki að leyfa mér að fara í tölvuna, þá verð ég að kaupa mér tölvu einn!" ...
Ég er reyndar búin að bíða öll jólin eftir þessum degi; já, í morgun voru teknir saumarnir úr skurðinum á öxlinni sem er um 6 cm langur og verður víst fallegt ör eftir. En það gerir bara ekkert til því að ég fékk svo fína niðurstöðu, þ.e.a.s. að í þessu stóra sýni fannst ekki tangur né tetur af meini! ..
Læknirinn sagði þó að þetta væri grafalvarlegt, þó ég gæti ekki hætt að brosa inní mér, og ég þyrfti að vera í eftirliti í fimm ár. Upprunalega meinið hafði farið ansi djúpt, en ég slapp fyrir horn vegna þess að ég leitaði, þrátt fyrir allt nógu snemma til læknis. (Svo hafa fallegar hugsanir og bænir vina og ættingja örugglega ekki skemmt fyrir).
Látið endilega kíkja á ykkur ef þið eruð með skrítna, óreglulega fæðingarbletti! .. Hægt að lesa um þetta t.d. hér.
Eigum góða daga..
Bloggar | Breytt 30.12.2008 kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Sunnudagur, 28. desember 2008
Gagnkynhneigðarremba ?
Ég er að byrja að lesa bók Dr. Sólveigar Önnu Bóasdóttur (lektor í guðfræðilegri siðfræði) sem gefin var út 2008, Ást, kynlíf og hjónaband.
Í upphafi bókar skrifar Sólveig Anna:
,,Eitt hið mikilvægasta í öllum siðferðilega góðum samböndum er að gagnkvæmni ríki, í merkingunni að sá sem auðsýnir réttlæti og ástundar kærleika og virðingu þiggi hið sama frá hinum aðilanum. Gagnkvæmni er hugsjón og viðmið sem gildir um öll góð sambönd, hvort sem í hlut eiga samkynhneigðir eða gagnkynhneigðir. (bls. 14).
Sólveig Anna staðfestir jafnframt tilfinninnigu mína að það séu eðlileg mannréttindi samkynhneigðra að fá að ganga í hjónaband undir jafngildri vígslu og vígsla gagnkynhneigðra.
Nýlega lenti ég i enn einni rimmunni við einn harðasta andstæðing þess að samkynhneigðir stundi kynlíf, þarf varla að taka það fram að þar er ég að tala um kaþólikkann Jón Val, sem á sér einhverja fylgismenn meðal meðlima í hvítasunnusöfnuðum, meðal aðventista og innan þjóðkirkjunnar og fl. safnaða, varðandi þetta mál. Jón Valur segir m.a.: "samkvæmt kristinni, biblíulegri og guðfræðilegri siðakenningu eru virkar samfarir fólks af sama kyni synd." (leturbreyting á ,,kenningu" er mín því mér finnst þetta segja svo mikið um þennan þankagang og einfaldleika þegar fólk situr fast í kenningum).
Af einhverjum ástæðum fæ ég nefnilega alltaf sting í hjartað þegar ég sé svona skrifað og ég tel að Kristur fái það líka. Hvert er æðsta boðorð Krists og æðra öllum? ,,Elskaðu náungann eins og sjálfan þig" .. hvar kemur elskan fram í kenningunum hans Jóns, sem dæma náungan, sem er vissulega kynvera, til lífs án kynlífs en vera kannski sjálfur í allri sinni gagnkynhneigðardýrð að njóta reglulegs kynlífs með sínum maka án hins minnsta samviskubits?
Á málþingi 2004 lagði Sólveig Anna fram þá tilgátu ,,að áhersla á Biblíuna sem mikilvægustu og stundum hina einu gildu heimild siðfræðilegrar íhugunar haldi málefninu samkynhneigð í gíslingu í kirkjulegu samhengi."
Að vissu leyti er það rétt, og ef við færum algjörlega eftir bókstaf Biblíunnar þá myndum við gera svo margt öðruvísi. Í Gamla testamentinu eru nefnilega ýmis heilagleikalög sem við höfum aldrei farið eftir og einfaldlega eru skrifuð inn í annað samfélag en er í dag.
Kristinn einstaklingur er ekki tóm tunna með bókstaf í hjartastað. Kristinn einstaklingur er tilfinninga- og skynsemdarvera, sem getur tekið við orðum Guðs og túlkar með með kærleika í hjartastað.
Sá eða sú sem tileinkar sér Krist sem fyrirmynd dæmir ekki fólk út frá kyni, litarhætti eða kynhneigð. Kristinn einstaklingur setur manngildi og mannréttindi í forgang. Lög Guðs eru mannréttindalög og við verðum að hætta að brjóta þau.
Legg jafnframt til þessa grein hjónanna og séranna Bjarna og Jónu Hrannar, þar sem þau skrifa um bók Sólveigar.
Love all serve all
p.s.
Bókin hennar Sólveigar Önnu gaf mér innblástur til að skrifa þetta, einnig bréf frá nafnlausum bloggvini sem sendi mér þakkir í tölvupósti nýlega fyrir mína sýn á trúmál, því að öfgahyggjan í trúmálum sumra hér á blogginu fældi hann frá trúnni. Síðast en ekki síst trúi ég að Jesús Kristur veiti mér innblástur en ég er staðföst í trúnni á hann.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Laugardagur, 27. desember 2008
Myndablogg..
Aðfangadagskvöld var notalegt og gott, tvíburarnir mínir; Vala og Tobbi borðuðu hjá okkur, matseðill var rækjukokteill í forrétt, og svo þríréttaður aðalréttur; hnetusteik, hamborgarhryggur og humar! Nammi, namm....
Svo byrjuðum við að opna pakka, Tobbi var með hundinn Teklu í pössun og hún var algjört yndi. Við Tryggvi fengum fyndna gjöf frá krökkunum og Vala var búin að dúlla sér við að pakka í marga pakka; pakki 1) lítil kók (við Tryggvi fengum sitthvora) pakki 2) lakkrísrör (líka sitthvort) pakki 3) popp .. hmmm.. þetta leiddi að einhverju; pakki 4) dvd mynd 5) inniskór handa gamla liðinu og svo loks pakki 6) ábreiða fyrir tvo. Þetta var sko uppskrift að kósý kvöldi!
Eftir matinn rúlluðum við til Lottu systur, Vala og Tobbi komu við á spítalanum hjá afa sínum og kysstu hann gleðileg jól. Allir voru saddir og sáttir á Vesturgötunni, tvíburarnir Rósa og ísold slógu í gegn í krúttlegum Kínakjólum.
Börnin hans Tryggva komu heim um ellefuleytið, Bíbí dansdrottning, Gunna Lilja, Aggi m/jólasveinahúfu og svo íþróttaálfurinn sjálfur (í boði pabbans og Jógu)! Frá krökkunum fékk ég m.a. Tarotspil .. úúú... svo ég þarf víst að gerast spákona aftur, en hef ekki komið nálægt slíku í mörg ár!
Og svo rann upp jóladagur, í hádeginu fórum við með afganga til afa Agnars í Laufás (gleymdum myndavél) en það var hátíðlegt og allir fínpússaðir. Um kvöldið komu svo systkini mín, makar og afkomendur með mat á borðið. Við fórum í alræmdan "klósettpappírsleik" ..en það er bannað að upplýsa um hvað hann fjallar, en það er partur af leiknum!
Að sjálfsögðu mættu Rósa og Ísold og duttu í hatta og búninga yngsta fjölskyldumeðlimsins. Ísold hræddi okkur ógurlega með spider-man grímunni. Rósa kaus að vera með slökkviliðshatt og snúa honum öfugt. Bubba hatturinn var einnig mátaður.
Jólatréð er fínt og flott, og þarna er Már sem er duglegur að gæta litlu systra sinna.
Svona er þetta nú. Í gærkvöldi vorum við svo með boð fyrir Bedstemor og farfar eins og Máni kallar þau, og auðvitað voru þau í fylgd með Evu, Henrik og Mána. Vi spillede kort og havde det sjovt! .. og svo sækir Vala Jake sinn í fyrramálið en hann á að lenda eftir ca. 2 tíma í Keflavík. Það verða fagnaðar-ástarfundir! .. Í hádeginu í dag er svo fjölskylduboðsfundur, því stórfjölskyldan heldur sitt árlega jólaball þann 28. desember og mín fjölskylda skipuleggur þetta árið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Þriðjudagur, 23. desember 2008
Gleðileg jól!
Sé ekki fram á að hafa tíma til að blogga neitt af viti (né óviti) fyrir jólin svo jólakveðjan kemur í dag:
Ágætu vinir, fjölskylda, bloggvinir og aðrir sem lesa, óska ykkur gleðilegrar JÓLAHÁTÍÐAR!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Sunnudagur, 21. desember 2008
Falleg afmælisgjöf ...
Vala mín kom heim frá Ameríku á miðvikudagsmorgun 17. desember. Aðfararnótt laugardagsins 20. des., klukkan 4:30, keyrði ég hana niðrá Umferðarmiðstöð til að taka rútu til Keflavíkur, því hún var á leið til Stokkhólms!
Já, hún hafði ákveðið að koma ömmu sinni á óvart á afmælisdaginn hennar, 20.desember, en amma Tobbý er stödd í Stokkhólmi til að vera við hlið afa Kela, sem var í hjartaaðgerð. Hann er búinn að vera að fara inn og út af gjörgæslu svo líðan hans hefur verið krítísk og erfitt fyrir ömmu að vera ein með áhyggjurnar af honum. (Þetta eru fyrrverandi tengdaforeldrar mínir sem ég er að ræða um sem ömmu og afa, en hætti að sjálfsögðu ekki að kalla þau það, þar sem þau eru afi og amma barnanna minna og ágætir vinir mínir).
Vala flaug út án þess að amma og afi hefðu hugmynd um það, og kom sér upp á spítala. Hún fór beint til afa síns og varð hann svakalega ánægður en hissa að sjá hana. Tíu mínútum síðar birtist amma sem átti ekki orð yfir því að fá hana til sín! ..Sagði mér í símann að hún hefði séð ljóshærða stelpu inni á stofu og smám saman fattað hver væri komin. Hún sagði þetta besta "afmælispakka" sem hún gæti hugsað sér. Vala kemur heim seinni partinn á morgun, en eflaust þurfa afi og amma að vera úti fram yfir jól.
Öllum sem þykir vænt um gömlu hjónin (æ þau eru nú ekkert svo gömul, tek bara svona til orða) langaði auðvitað að vera við hlið þeirra, svo Vala fór í raun sem fulltrúi okkar hér heima.
Ég missti pabba minn þegar ég var sjö ára, eins og sumir vita, og Keli varð svona næsti bær við þegar ég kynntist syni hans. Það var gagnkvæm væntumþykja milli okkar og fann ég hvað honum þótti sárt þegar við sonur hans skildum. Þegar ég nýlega greindist með smá krabbamein, en var í stóru sjokki, hugsaði ég til hans og hvað mig langaði að fá eitt gott afafaðmlag, en ég þorði ekki að heimsækja hann, af því ég var of feimin. Svona er maður klikk!
Ég er búin að vera í sambandi við þau, bæði í sms og í gegnum Völu undanfarna daga. Bið fyrir góðum bata hans eftir aðgerðina og að þau komi heil heim.
Hlakka auðvitað til að fá Völuna heim.
Á meðan á öllu þessu hefur gengið, er Mánalingur ömmustrákurinn minn búinn að vera með ælupestina alla helgina, en er sem betur fer á batavegi.
Ég er hjá þér, ó, Guð
sem barn hjá blíðri móður
og eins og fugl á mjúkri mosasæng.
Ég er hjá þér, ó, Guð,
já, þú ert hér, ó, Guð,
og nóttin nálgast óðum.
Ef þú ert hér, þá sef ég sætt og rótt.
(Kristján V. Ingólfsson)
Guð geymi okkur öll, - Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Fimmtudagur, 18. desember 2008
18. desember .. og næstu dagar
Hildur Jakobína, dóttir Tryggva míns (venjulega kölluð Bíbí) er tvítug í dag. .. Við ætlum að hafa fyrir hana kaffiboð á laugardag. Bíbí er alltaf hress og kát og tekur hlutina ekki of alvarlega, sem er góður eiginleiki (sérstaklega á þessum síðustu tímum).
Anna Kristín frænka mín hefði orðið 40 ára í dag hefði hún lifað en hún lést sl. vor þessi elska. Blessuð sé minning hennar.
Í dag eigum við Tryggvi líka tveggja ára "hittingarafmæli" .. en ég keypti handa honum bókina Ofsi eftir Einar Kárason, svona í tilefni dagsins, en hann veit það ekki ennþá sko, afhending er á næstu mínútum... (ekki segja neinum).
Á morgun á svo Helle barnapían mín frá Danmörku (sko í den) afmæli, en hún kom einmitt til okkar í desember1987 held ég frekar en 1988 og við héldum fyrir hana tvítugsafmælið hennar! ..
Hinn daginn á svo hún tengdamamma mín fyrrverandi (amma Tobbý) afmæli, en hún er stödd þessa stundina í Svíþjóð og heldur í hönd afa Kela, sem var að koma úr hjartalokuaðgerð sem gekk, eftir nýjustu fréttum bara vel!
Já, svo á ég 28 ára stúdentsafmæli 20. des. = ég er ekkert unglamb lengur!
.. Já og svo eru jólin bara á næsta leyti .. en kem nánar að þeim síðar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Þriðjudagur, 16. desember 2008
Gleði, gleði, gleði ..
Hún Vala mín bað um gleðiblogg, ég hef svo sannarlega margt til að gleðjast yfir þessa dagana:
Sko Vala er að koma heim í fyrramálið og ætlar að vera hjá mömmu sinni yfir jólin. Við Eva förum eflaust eldsnemma í fyrramálið að sækja hana útá völl..
Eva er hress í meðgöngunni sinni, er farin að finna litlar táslur hreyfast, svaka gaman og svo fer hún í sónar 29. des, en það er einmitt sami dagur og ég fer að láta fjarlægja nýjasta saumaskapinn á öxlinni, en í hana var skorið þetta líka fallega lauf í gær (eins og ég sé laufabrauð)..
Einkasonurinn kom með kærustuna í heimsókn í fyrsta skipti á sunnudag. Var þessi heimsókn svolítið stór biti fyrir hana, þar sem mamma og Máni (ásamt fleirum) voru líka í mat, en þessi tvö gerðust ræðnust. Þetta gekk annars voða vel, ljúf og falleg stelpa.
Mamma mín, sem annars hrósar helst ekki fólki, nema sínum eigin afkomendum og jú Páli Óskari, sagði þegar ég ók henni heim á sunnudag að hann Tryggvi minn væri "yndislegur." Ég gæti ekki orðað það betur.
Er annars glöð, hress og kát, aðeins aum í öxlinni en ég hef þá löglega afsökun fyrir að þurfa ekki að hoppa á trampólíni né í teygjustökk!
Jæja, gleði, gleði, gleði..
Hef ekki haft tíma til að kíkja í heimsókn hjá bloggvinum, en koma tímar og koma ráð, knús á þau sem lesa.
Bloggar | Breytt 17.12.2008 kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Fimmtudagur, 11. desember 2008
Ströndin mín .. ljóðblogg
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Mánudagur, 8. desember 2008
Dubonnet í Skyttunum vekur upp minningar ..
Það var svo margt skemmtilega nostalgískt í íslensku myndinni; Skyttunum, sem endursýnd var í RÚV í gærkvöldi. Einna mest hló ég þegar daman á barnum bað um þrefaldan Dubonnett! .. Það er einn af þeim drykkjum sem ég smakkaði ,,í den" .. og svo Pernod og svo að mig minnir að það hafi heitið; Lemon Twenty One, .. man það ekki alveg. Svo var það jú Kláravínið svo minnst sé á eitthvað íslenskt. Fannst það að vísu vont, eins og allt svona sterkt.
Vonandi hljómar þessi færsla ekki eins og áfengisauglýsing. Vil benda þeim sem kjósa alkóhóllausa færslu á Spur og Sinalco! Það er að vísu frá áðurenégbyrjaðiaðsmakkaþaðárum mínum. Fengum Sinalco á jólum og öðrum hátíðisdögum. Kóka kóla í glerflöskum á afmælum! ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Sunnudagur, 7. desember 2008
Það eru víst að koma jól!
Fyrst verð ég auðvitað að þakka fyrir allar fallegu kveðjurnar og hvatninguna sem ég hef fengið frá bloggvinum, vinum, ættingjum og öðrum (sem lesa þetta blogg leynt eða ljóst). Það hentar mér ágætlega að lifa svona á úthverfunni og vona að það hitti engan í kringum mig illa.
Ég hef verið sein að komast í jólafílinginn þessa aðventuna. Var loksins að draga fram aðventukransinn áðan og nokkra sæta tréjólasveina sem ég stilli upp á rammana á málverkunum og myndunum. Fann dúka, jólapóstinn, en jólakortunum fækkar að vísu ári frá ári með auknum rafrænum kveðjum.
Í hádeginu koma afi Agnar og Bjössi bróðir Tryggva í sunnudagshádegismat, fyrir þeim er þetta Seláshverfi uppí sveit, en afi Agnar býr í Laufási við Laufásveg, svakalega fallegu og rómantísku húsi, sem vissulega einu sinni var sveit!
Í dag ætlum við stóra systir svo að ryðjast inn til mútter og gera smá jóló hjá henni og þrífa kannski pinku í leiðinni. Ekki að hún njóti þess að fá okkur með allan okkar yfirgang! ..
Síðasta vika var stormasöm fyrir mig andlega, á mánudag fannst mér ég hafa fengið dauðadóm, en þegar leið á vikuna þá fór nú að birta, það byrjaði strax á þriðjudegi, með því að ég fékk að fara með Evu minni í mæðraskoðun og heyra krúttlegan hjartslátt í litla/litlu (við höldum að þetta verði stelpa) og í dag er ég ekki bara full af lífi, heldur til í að bjarga heiminum líka! .. (ein voða klikk?) .. Ég er nú líka búin að fá að heyra frásagnir af fólki, sem ég jafnvel kannast við, sem hefur fengið húðkrabbamein og önnur krabbamein, það skorið í burtu og lifir happily ever after.
Á mánudaginn eftir viku á ég að fara í þessa ,,skorið burtu" aðgerð, eða það á að skera meira í burtu í kringum þar sem bletturinn ógurlegi var. Lýtalæknir mun skera það, svo ég mun geta "flassað" á hlýrabol. Ekki það skipti öllu máli - en úr því það er hægt þá er það fínt!
Það er svo margt að gerast, við vinkonurnar í saumó erum að fara að hittast á þriðjudagskvöld á kaffihúsi, fimmtudag er það "Fólkið í blokkinni" í Borgarleikhúsinu, og á föstudag halda Tryggvi og félagar árlegt jólateiti í Garðastræti. Í næstu viku kemur svo Vala mín loksins heim í heiðarbólið til mömmu sinnar, en ég er búin að sakna hennar undanfarið óvenju mikið. Eva mín hefur verið eins og klettur og gott að hafa hana til að knúsast í (og Mána hehe) .. Tryggvi dekrar við mig að venju.
Auðvitað er ég búin að kaupa MammaMia myndina og ég ásamt ungum herrum sungum og dönsuðum okkur svona næstum því sveitt við Sing-Along útgáfuna hér á fösudagskvöldið. Tryggvi fylgdist með og hló að því þegar ég hló eða grét. ..
Mánalingur gisti í framhaldi af því en vaknaði um sexleytið og þá var amman svo heppin að hann vildi að hún tæki hann í fangið og syngi fyrir hann, svo hún söng (eða raulaði); Sofðu unga ástin mín, fram í heiðanna ró, afi minn og amma mín, þig vil ég fá, þýtur í laufi.... öll lögin sem hún var vön að raula og hún fagnaði því að hafa litla krílið í fanginu og hugsaði um hversu þakklát hún væri fyrir hann .. og söngurinn varð svolítið melankólískur og saltur fyrir bragðið.
Ég ætlaði ekkert að skrifa svona mikið, er enn á sloppnum og þarf að fara að koma liðinu á fætur áður en gestirnir koma!
Vonandi eigum við öll alveg ágætan sunnudag!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)