Eldurinn truflaði Guiding Light! ....

Hringdi í mömmu í eftirmiðdaginn. Spurði af gömlum vana hvað hún segði gott. Svarið var: "Ekki gott það er eldur í miðbænum" .. ég hélt fyrst að hún tæki það svona nærri sér, en þegar betur var farið í saumana, var ástæðan fyrir pirringnum að bein útsending frá brunanum truflaði útsendingu á Guiding light, sem hún móðir mín kallar annars: "bölvaða vitleysu".. ?????

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband