Thank God it´s Friday ...

Jæja, búin að vinna í dag, annars ágætur dagur eins og svo margir. Fékk langt hádegi þar sem ég púlaði í ræktinni (verð að auglýsa það því ég er annars svo löt að fara) .. Nú er komin helgi og ég ætla að gera eins og Pamela í Dallas gerði svo oft, en hún hitti Bobby sinn á Restaurant for a light Salad. Grin ..

Ég er s.s. af Dallaskynslóðinni þó vissulega horfi ég stundum á hinar desperatísku húsvælur við og við. Hitti að vísu ekki Bobby heldur hjásvæfilinn/kærastann/viðhengið/sambýlinginn eða hvað skal kalla slíkan mann sem maður býr með í synd! Verð ég annars nokkuð að giftast til að kalla mann manninn minn ?  .. Anyone ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hei hei.... kallaði hann þig ekki konuna sína á þriðja "date"i...

Kveðja

höfuðlausn ;-)

Höfuðlausn (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 17:38

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég held að það sé í góðu lagi að kalla manninn sinn, manninn sinn óháð hjónabandi....!

Eigðu góða helgi !

Sunna Dóra Möller, 11.1.2008 kl. 20:44

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hæ Höfuðlausn - long time no see" -  hann kallaði mig unnustu sína þessi elska. Tja, ætli það hafi ekki verið viku eftir að við kynntumst .......  ... 

Jú, Sunna kalla hann bara manninn minn, annars er "Viðhengið" farið að festast við hann hjá fjölskyldunni! ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.1.2008 kl. 11:07

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég byrjaði að kalla manninn minn "manninn minn" þegar hann flutti inn til mín og spurði hvorki kóng né prest leyfi

Huld S. Ringsted, 12.1.2008 kl. 17:12

5 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Gifting er aukaatriði   Vona að enginn pirrist á mér fyrir að segja þetta, en þetta er mín skoðun Kallaðu bara herrann manninn þinn

Margrét St Hafsteinsdóttir, 13.1.2008 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband