Steinum kastað úr glerhúsi ..

Eitthvað grunar mig að fleiri séu af þessu sauðahúsi. Þ.e.a.s. prédika yfir náunganum hvað þeir eigi ekki að gera en gera það svo sjálfir. Hef örugglega lent í því sjálf.... Blush   Mannlegt eðli er breyskt og öll eigum við okkar veikleika, svo það þarf að fara varlega í að dæma ..
mbl.is Eliot Spitzer sagði af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ójá það mega sumar konur hérlendar taka til sín líka, að ofstæki hefur aldrei leitt til góðs. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2008 kl. 17:18

2 identicon

Já, það er rétt, en hann var í raun ekki að brjóta gegn eigin boðum. Hann barðist gegn vændi en það sam hann notfærði sér var "lúxusvændi" ! Það er auðvitað allt önnur tegund og kemur venjulegu vændi ekkert við !

Jon Hjortur (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 18:42

3 identicon

Hann reyndi að verjast...mmm eins og Villy

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 20:57

4 Smámynd: Tiger

  Það er svo mikið satt. Við erum alltof fljót að dæma, ættum sannarlega að vera duglegri við að leyfa fólki að njóta vafans á meðan hæfari eru að meta hlutina til hlýtar... en - stundum bítur manns eigin hamagangur sjálfan mann í rassinn...

Tiger, 13.3.2008 kl. 03:00

5 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Ritað er: 

Lúkasarguðspjall 6:37
Dæmið ekki, og þér munuð eigi dæmdir verða. Sakfellið eigi, og þér munuð eigi sakfelldir verða. Sýknið, og þér munuð sýknaðir verða.

Hann er jafn mannlegur eins við hin, en mér fannst þetta vers bara vera svo viðeigandi! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 13.3.2008 kl. 09:32

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Góður punktur Palli .. eins og með rafvirkjann sem er með rússneskar ljósaperur hjá sér og sálfræðinginn sem á brjáluð börn o.s.frv....  ..

Guðsteinn, það finnst allt undir sólinni í Biblíunni. Það er víst!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.3.2008 kl. 16:57

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Tigercopper - vel orðað: Stundum bítur hamagangur sjálfan mann í rassinn...

Gísli - eins og Villy .. var næstum búin að gleyma honum..

Jón Hjörtur

Ásthildur - rétt hjá þér sumar konur:  ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.3.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband