Voðaverksunglingar

Drengurinn sem myrtur var á þennan vægðarlausa máta var af tyrkneskum uppruna en strákarnir af gömlum dönskum merg... Fékk þessar fréttir frá bróður mínum sem býr á þessu svæði. Það vekur athygli og ergelsi í Danmörku að ekki er tekinn fram kynþáttur þeirra, en í blaðamennsku þar, eins og oft hér, tíðkast það að taka það fram ef t.d. fólk er af tyrkneskum uppruna sem fremur ódæðisverk. Woundering 

(Bloggað úr sveitinni)


mbl.is Blaðburðardrengur myrtur í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Æ þetta er auðvitað skelfilegt í alla staði.

Laufey B Waage, 21.3.2008 kl. 10:30

2 Smámynd: Vendetta

Já, það er undarlegt, að það var ekki tekið fram, að þeir voru danskir. Sérstaklega þegar þessi árás var svo tilefnislaus. Ekstra Bladet, amk., tekur yfirleitt fram hvort árasarmenn eru etnísk-danskir eða útlendingar og er ekkert athugavert við það. Því fleiri upplýsingar sem fylgja fréttum, þess meir upplýsandi er fréttin.

Árni Þór hjá VG er ekki sammála. Hann kennir dönskum fjölmiðlum um allt sem miður fer í þjóðfélaginu, enda aðhyllist hann ritskoðun í hvívetna. Dæmigerður múrsteinskommúnisti. Hann vill, að danskir fjölmiðlar séu eins heftir og sænskir , íslenzkir eða þýzkir fjölmiðlar, aldrei megi nefna þjóðerni fólks, því að það "ali á kynþáttafordómum". Það er leit að annari eins dellu.

Árni saknar sovézku dagblaðanna Pravda (sem þýðir "Sannleikur") og Izvestia (sem þýðir "Fréttir"). Sagt var, að það væri ekkert satt í Pravda og engar fréttir í Izvestia. Þessi blöð urðu frjáls eftir fall kommúnismans, en eru nú komin undir járnhæl Putins. Árni skilur ekki að frjálsir fjölmiðlar er einn af hornsteinum lýðræðisins. Og það er mjög langt frá því að danskir fjölmiðlar séu með kynþáttaáróður, en það verður að upplýsa um allt sem gerist í þjóðfélaginu frá öllum hliðum, og ég veit ekki betur en að það sé gert ágætlega í dönskum fjölmiðlum. Ólíkt þeim íslenzku.

Og ég get enn ekki skilið hvers vegna VG (þ.m.t. Árni) er sífellt að taka upp hanzkann fyrir öfgamúslímum (nú síðast í sambandi við teikningarnar af Mohammad). Á meðan þeir gera það er ekkert mark takandi á þeim þegar þeir tala um kynjajafnrétti. Tvískinnungur og hræsni af verstu tegund.

Að mínu áliti á að búra þessa árásarmenn inni það sem eftir er af þeirra aumu ævi, eða hreinlega taka þá af lífi. En það verður ekki gert. Þeir fá lúxussvítu ýmist í Vestre fængsel (eða Herstedvester) eða unglingaheimili í 3-4 ár, svo er þeim sleppt aftur til nýrra ódæðisverka gegn saklausum útlendingum.

En það verður aldrei fjölmiðlum að kenna. Það er mikið frekar réttarkerfið sem er meingallað (eins og á Íslandi). Þessir drullusokkar eru síbrotamenn, en samt hefur þeim ekkert verið refsað. Heldur hefur þeim verið strokið með hárunum og þeim sýndur skilningur í anda sócíalismans.

Vendetta, 21.3.2008 kl. 13:03

3 identicon

Ekki um annað talað í Danmörku.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 13:17

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk fyrir athugasemdir. Mér finnst þetta sorglegt í alla staði og því miður lýsandi fyrir ástandið í Danmörku og fleiri stöðum. Ein af stóru sorgunum í þessu er ungur aldur bæði árásarmanna og fórnarlambs.

Danskur tengdasonur minn álítur að með þessu áframhaldi stefni allt í borgarastyrjöld í hans heimalandi.

Gífurleg vakning þarf að vera til að bæta þennan blessaða heim.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.3.2008 kl. 13:30

5 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Fjölmiðlar sögðu strax að árásarmennirnir væru af Dönskum uppruna (Fjölmiðlar tilkynna alltaf uppruna árásarmanna, og taka sérstaklega fram ef um dana eða útlending er að ræða)

Stuttu seinna sagði Ekstrabladet.dk frá því að fórnarlambið væri af tyrkneskum uppruna.

kv

Sjallinn í Odense

Ingólfur Þór Guðmundsson, 21.3.2008 kl. 15:42

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Svona nokkuð er alltaf hræðilegt, sama af hvaða þjóðerni fólkið er.

Jónína Dúadóttir, 22.3.2008 kl. 06:55

7 identicon

Las frétt um árásina á heimasíðu Berlinske, þar kom ekki fram að piltarnir sem börðu blaðburðardrenginn væru "ekta Danir".  Það var harðlega gagnrýnt á bloggi tengdu fréttinni.  Það hefur síðar komið fram í öllum fjölmiðlum. 

 Sjálfum finnst mér að það eigi ekki að skipta máli af hvaða kynþætti fólk er sem fremur glæpi, það á að segja fréttir af glæpnum sjálfum.

 Annars draga yfirvöld í efa að hér hafi verið um kynþáttaglæp að ræða, vilja allavegana ekkert gefa út á það enn um sinn.  Bent hefur verið á hlutverk foreldra, ábyrgð þeirra.  

Brynjolfur Magnusson (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 07:27

8 identicon

Hér er grein um ábyrgð yfirvalda, áttu þau að vera búinn að grípa fyr inn í líf piltanna, félagsmálayfirvöld þekktu til þeirra svo og lögreglan.

 http://www.berlingske.dk/article/20080321/danmark/703210041/

Brynjolfur Magnusson (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 08:07

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk fyrir þessar upplýsingar. Það má líka benda á það að það kom ekki fram í frétt mbl.is hverrar þjóðar aðilarnir voru. Á visir.is kom fram uppruni fórnarlambs en ekki árásarmanna. Fólk er náttúrulega bara fólk, hverrar þjóðar sem það er.

Ég er svo sammála því, að það þurfi að grípa fyrr inn í svona mál barna og unglinga. Erfitt að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.3.2008 kl. 09:30

10 Smámynd: Halla Rut

Kæra Jóhanna og fjölskylda, vonandi hafið þið það gott í sveitinni.

Það er ekki sama á hvorn er vegið svo mikið er víst.

Bestu kveðjur og gleðilega páska.

Halla Rut , 22.3.2008 kl. 20:09

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri bloggvinur, ég óska þér og þinum gleðilegra páska.

Sigurður Þórðarson, 23.3.2008 kl. 13:49

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gleðilega páska

Jónína Dúadóttir, 24.3.2008 kl. 07:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband