Ekkert heilagt ...uppeldið á ungviðinu að klikka?

Ég las í einhverju blaðanna í morgun um fólk sem fer í kirkjur gagngert til að skemma og sýna óvirðingu. Til að láta mynda sig í óvirðulegum stellingum fyrir framan altari eða altaristöflur og jafnvel fækka fötum og glenna sig.

Ég fyllist ómældri sorg þegar ég heyri um svona hluti. Fatta ekki afhverju sumir hlutir mega ekki vera heilagir og í friði fyrir öðrum. Fatta þetta ekki frekar en ég fatta ekki þetta með gaurana sem voru að skemma í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum.

Virðingin er ENGIN fyrir því sem aðrir eiga, öðrum er heilagt. Mikið ofboðslega þurfum við að fara að skoða hvernig við erum að ala börnin okkar upp kæra þjóð.

Set hér Jesú inn í málið (með smá viðbót):

christian clipart Jesus

              Elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður...og virðið hvert annað ....  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Alveg furðulegt framferði. 

Ía Jóhannsdóttir, 3.7.2008 kl. 16:49

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bara í stíl við svo margt annað í nútímanum.  Virðingarleysi fyrir öllum sköpuðum hlutum.

Ég hef alveg húmor fyrir trúarbrögðum og það má mikið fíflast með þau án þess að mér bregði en þetta finnst mér ljótt að gera.  Ekkert fyndið við þetta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2008 kl. 17:24

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er sorglegt já, ekkert fær að vera í friði, eini friðurinn sem maður getur treyst á er innra með manni.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.7.2008 kl. 20:24

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Svona lagað á ekki að eiga sér stað!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.7.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband