Mánudagur, 23. mars 2009
Fituforði vetrarins spinnaður í burtu .. og Abba singstar m/meiru!
Nú er hann runninn upp dagurinn sem ég er að byrja aftur að hreyfa mig. Ég hef s.s. verið hálfgerð sófakartafla í langan tíma. Í 70´s partýinu sem ég hélt um helgina var ég spurð hvort ég vildi ekki örugglega ganga með á Hvannadalshnjúk 14. maí sem ég held að ég láti ógert, Esjan er nægileg áskorun. Svo á ömmubarn nr. 2 að mæta á svæðið um þetta leyti og amman ætlar nú ekki að vera frosin á fjalltoppi þegar það kemur í heiminn!
EN já, vetrarforðinn skal spinnaður af, því mín skráði sig í spinning námskeið, - læri augljóslega ekki af reynslunni - sbr. þessa færslu. Nú á að læra almennilega á púlsmælinn og sjá hvort að afturendinn og hnakkurinn geta ekki orðið betri "vinir" en síðast! .. Lengi má rassinn reyna, eins og tja.. undirrituð sagði.
Já, partýið tókst vonum framar, fólk mætti í búning allt frá 1970 - 2009!!!.. Misjafnlega djarft.
Við tókum Abba með trompi í Singstar - eða a.m.k. upplifðum við okkur þannig - en sem betur fer voru engir Idol dómarar á svæðinu til að brjóta mann/konu niður!
Inga og Sissa Hulda og Addý
Alla og Gunna
Lotta og Jóga (með innlifun)
Hér eru nokkrar útgáfur af Agnetu og Annefrid ... og við Lotta systir fíluðum okkur auðvitað í tætlur! hehe..
Já já..... gamanaðessu ..
Flokkur: Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 11:49 | Facebook
Athugasemdir
Flotta gellur! Vá hvað þetta hefur verið gaman.
Ía Jóhannsdóttir, 23.3.2009 kl. 12:13
Gegt kúl skvísur
Sigrún Jónsdóttir, 23.3.2009 kl. 12:50
Ekkert smá fjör, sé ég.
Og einmitt best að hafa engar dómara.
Hafðu það gott
Anna Guðný , 23.3.2009 kl. 17:33
Flottar eruð þið skvísur, greinilega góður Abba fílingur.
Auður Proppé, 24.3.2009 kl. 05:30
"öfund"
Hljómar svakalega skemmtilegt !!!
Annars mannstu eftir því að ég á svona öfga flottar rúllupylsubuxur með púða ef þú vilt undir íþróttabuxurnar ... hih
Eva Lind Jónsdóttir (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 10:22
Ég verð að ná mér í Abba-singstar og halda stelpupartý.
Laufey B Waage, 24.3.2009 kl. 12:23
Jónína Dúadóttir, 25.3.2009 kl. 15:45
Æðislegar myndir og hrikalega gaman að sjá að fólk kann að skemmta sér á annan hátt en alltaf.
Spinning
Knús til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.3.2009 kl. 16:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.