Óbeislað ljóð

Ég labbaði niður Laugaveg
og leit
óbeislaða fegurð flæða um allt
upp úr vel hertum buxnastrengjum
sem girtir voru með silfurbelti
Oroblu "control Top" sokkabuxur
voru brenndar á báli.. 
en Oroblu stúlkan grét
því hún var atvinnulaus
Að stúlkunni vatt sér ein óbeisluð kona  
og sagði:
vert´ekki að væla og farðu að vinna
í Bónus eða bakaríi
þá þarf ég ekki að rífa kjaft við útlendingana
En þú verður að vera glögg á grænmetinu
annars hef ég samband við Reykjavík síðdegis
og skammast yfir því
að þú og þið unga fólkið þekkið ekki þistilhjörtu

Ó svei, ó svei, þú óbeislaða Ísland
Óbeislaður borgarstjóri getur ekki bjargað þér
og óvíst hvort hann getur bjargað sjálfum sér

Niðurstaða:
 
.... Við eigum að vera góð við náunga okkar og þolinmóð  hvort sem hann hefur sömu skoðun og við eða ekki,  er útlendingur, unglingur, beislaður eða óbeislaður .....

 




 



 


 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe

Jóna Á. Gísladóttir, 9.10.2007 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband