Kvöldbæn

Guð; hver, hvar og hvað sem þú ert,

leiddu mig í átt að sannleikanum.

Leyf mér að hvíla í öruggu skjóli þínu dag sem nótt.

Gerðu mig góða og gefandi manneskju.

Taktu burt áhyggjur mínar svo ég geti hugsað skýrar,

og þannig látið gott af mér leiða. Heart

p.s. og svo væri fínt að fá gott veður á morgun! Grin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

þetta er fallegt bæn og góð fyrir svefninn. p.s. Það verður gott veður á morgun alla vega hér fyrir norðan.  Kveðja frá Akureyri.

Erna, 4.5.2008 kl. 23:32

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Myndarleg bæn!
Þú yrðir flottur prestur í framtíðarbrúðkaupinu mínu

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.5.2008 kl. 00:37

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.5.2008 kl. 00:38

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Guð, hver, hvað og hvar sem þú ert... viltu bænheyra hana Jóhönnu

Jónína Dúadóttir, 5.5.2008 kl. 05:42

5 identicon

og svo bætir Máni við: Góði guð .. viltu gefa mömmu dúkku og kerru því henni finnst svo leiðinlegt að leika með bíla... haha... Knuz... og til hamingju með 7 kílóin :)

Eva Lind Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 09:26

6 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Kæri bloggari.

Áskorun....Prikavika í bloggheimum .....nú gefum við prik dagsins alla þessa viku í bloggheimum. Þú finnur eitthvað jákvætt, einstaklinga eða hópa sem hafa staðið sig vel.....og þeir fá
Prik dagsins
Kveðja Júl Júl.  P.s skoraðu á sem flesta að taka þátt

Júlíus Garðar Júlíusson, 5.5.2008 kl. 10:58

7 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Prika þig Júlíus fyrir góða hugmynd!

Jóhanna!  Mikið var þetta falleg bæn!  Fer með hana í kvöld. Takk

Baldur Gautur Baldursson, 5.5.2008 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband