Fyrsta blogg 2007

Hvað næst ? ... nú er komið árið 2007 og það verður frábært ár! Ár friðar, kærleika og gleði ...  Grin  Alltaf gaman að fá tækifæri til að byrja upp á nýtt - kominn 3. janúar og Hulda systir og Addý mágkona eiga báðar afmæli í dag - 49 og 50 ára hvorki meira né minna! Veisla hjá Addý á föstudag, gleði, gleði, gleði...

Það fjölgar bloggvinunum mínum, mér finnst það krúttlegt og segi bara "góðan dag" bloggvinir! Ég er ekki búin að læra hvernig á að senda beiðni um bloggvin en tek öllum fagnandi, "the more the merrier" ..

Eins og fram kemur hér að ofan er ég bara að rausa um daginn og veginn, er svífandi glöð og hamingjusöm og hef yfir engu að kvarta!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

gleðilegt nýtt ár

Ólafur fannberg, 3.1.2007 kl. 09:21

2 Smámynd: Birna M

Þegar þú ert stödd á bloggi sem þú hefur áhuga á að bæta á vinalistann ferðu í bloggvinagluggann, þar stendur bæta xxxx á lista, klikkar á það og bíður eftir pósti um að viðkomandi hafi samþykkt.

Birna M, 3.1.2007 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband