Skemmtilegir unglingar í útvarpinu í morgun...

Það er svo yndislegt að vera í umferðinni á morgnana því þá hefur maður tíma til að hlusta á útvarpið! Wink 

Í morgun heyrði ég í krökkum/unglinum sem voru að segja frá hvað þeim þætti gott ef foreldrarnir töluðu við þá t.d. við matarborðið og verðu með þeim tíma. Tóku sérstaklega fram að það væri leiðinlegt ef þau fengju litla athygli þegar þau kæmu heim úr skólanum vegna þess að foreldrar væru í símanum eða í tölvunni! ... Woundering 

Síðan lögðu þau áherslu á það að foreldrar eru fyrirmyndirnar þeirra.  

þetta eru ekki nýjar fréttir en sjaldan er góð vísa of oft kveðin og aðeins gott að hlusta á börn og unglinga.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er rétt kæra bloggvinkona, við mættum hlusta meira á börn og unglinga.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.11.2007 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband