Sunnudagur, 8. júní 2008
Eins gott að hafa samskiptagreindina í lagi!
Eflaust var það Bakkusi að kenna að maðurinn var erfiður í samskiptum, en sumir eru bara mjög erfiðir í samskiptum svona generalt og bláedrú. Ég hef mikinn áhuga á hinum mismunandi greindum. Ég er t.d. með frekar lélega umhverfisgreind, sem felst m.a. í því að ég á oft erfitt með að rata og veit aldrei hvað er norður, suður, austur og vestur.
Ég hef stundum verið að pæla í því af hverju sumir "stórgáfað" fólk eru svo ,,ferkantað." Þá er ég að tala um fólk sem er vel lesið og virkar mjög ,,greint" en er svo algjörir fautar í samskiptum og valtar yfir annað fólk, hægri - vinstri, þetta fólk hefur yfirleitt aðeins áhuga á að hlusta á sig sjálft og vill ekki læra af öðrum né hugsa út fyrir þann ramma sem það er fast inní.
Líklegast er þarna um að ræða mikinn greindarskort.
Þessar pælingar byrjuðu nú allar út af ógæfusamskiptavandamálafullamanninum í Leifsstöð, svona geta hlutirnir spunnist.
Handtekinn í Leifsstöð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við eigum þá það sameiginlegt, ég veit ekki heldur hvað er norður, suður, vestur og austur, nema það þegar ég er að keyra til Reykjavíkur, Egilsstaða og Akureyri, annars veit ég ekkert hvernig áttirnar virka
Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.6.2008 kl. 20:54
Hið staðlaða mat á greind gerir ekki ráð fyrir tilfinningagreindinni og er að mínu mati gjörsamlega máttlaus mælikvarði.
Mensufélaginn
Jenný Anna Baldursdóttir, 8.6.2008 kl. 22:38
Ég hef aldrei skilið af hverju fólk er að drekka sig ölvað í millilandaflugi af öllum stöðum mögulegum. Jú sennilega af því það er ódýrara. En ég segi bara fyrir mig, mér finnst nauðsynlegt að vera með fullum fimm þegar ég ferðast milli landa.
Laufey B Waage, 8.6.2008 kl. 23:41
Greind hefur ekkert að gera með tilfinningar svo að þeir sem teljast afburðagreindir eru oft ekkert barnanna bestir í samskiptum við annað fólk, ég held að það sé frekar innrætið og uppeldið sem stjórnar hvernig fólk er við annað fólk.
Huld S. Ringsted, 8.6.2008 kl. 23:47
Samskiptagreind er sannarlega til. Hún hefur lítið með almenna námsgreind að gera. Einn prófessor sem hefur álit á þjóðmálum var sagður vel menntaður en lítið greindur.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 09:09
Takk fyrir greindarlegar athugasemdir!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 9.6.2008 kl. 10:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.