Kynlífið og borgin

Það var útkall í bíó í gær,  Sex and The City hvorki meira né minna!  Systur mínar, önnur dóttir og systurdóttir mættu saman í Háskólabíó klukkan 21:00. Salur 2 í Háskólabíó var þéttskipaður konum, einstaka karl sat á stangli.

Myndin er bara þrælskemmtileg, 100% afþreying. Þær og þeir sem hafa áhuga á kjólum, skóm, veskjum og flottum ,,walk in closets" mega ekki missa af þessari mynd. Hún er líka afbragðsvel leikin af þeim aðalleikkonum myndarinnar og húmorinn óborganlegur á köflum.

Auðvitað er hún AMERÍSK með stóu A-i og stundum fannst mér Ídólisering Carry Bradshaw ganga út í einum of miklar öfgar. 

En allt í allt er myndin vel gerð og frábær persónusköpun þar sem Charlotte má eiga það að vera mín uppáhaldstýpa! Ótrúlega fyndin...

--

Svo er ég að fara að halda kvikmyndaklúbbssýningu í kvöld af allt öðrum toga, en ekki síður fyndna það er mynd eftir leikstjórann Billy Wilder, gerð tímamótaárið 1961 sem heitir One, two, three.. segi meira frá henni á morgun.

Eigið góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Þú ert nú meiri kellingin að sína mér Carry í brúðarkjól. Þá veit ég það. Við vorum búnar að ákveða að fara saman mæðgurnar, strax á frumsýningu, en þá var eldri dóttirin nýfarin til Spánar og kemur heim nú um helgina. En í alvöru, ég er ekkert alvarlega svekkt, það voru auðvitað litlar líkur á að ég mundi ekkert frétta á þessum fyrsta hálfa mánuði. En ég hlakka til að sjá herlegheitin strax á mánudaginn. Ætla að leggja til að við mæðgur mætum í skærlitum gellufötum og á háum hælum. Eigðu líka góðan dag.

Laufey B Waage, 10.6.2008 kl. 09:31

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er á leiðinni.  Alltaf á leiðinni, að bíða eftir að dætur mínar geti sýnkróniserað sig svo við komumst saman á ræmuna.  Ógeðslega flottur kjóll.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.6.2008 kl. 09:42

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Laufey, myndin kemur á óvart - jafnvel þó þú sjáir frk. Bradshaw í brúðarkjól - LOFA ÞVí ...  

.. Jenný, ég hef aldrei á ævinni séð eins marga flotta kjóla í einni bíómynd og þar með talið brúðarkjóla. Þessi er flottur, er hárskrautið er ansi skondið!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.6.2008 kl. 11:27

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er planað að fara á hana einhvern næstu daga, dætur vilja endilega fara á hana með mér

Huld S. Ringsted, 10.6.2008 kl. 11:49

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 10.6.2008 kl. 21:15

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mér hefur aldrei fundist þessir þættir skemmtilegir....

.. lengi lifi Idol-Stjörnuleitin

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 21:43

7 Smámynd: Tiger

  .. okok, ég skil - þetta er sem sagt bara svona kerlingamynd? Æi ég hef svo sem aldrei horft á þessa þætti - og er ekkert rosalega mikið fyrir svona "stelpumyndir". En þessi kjóll þarna uppi - omg - ég hef aldrei séð svona mikinn horror! Ef ég væri að fara að gifta mig og konan kæmi labbandi í þessum kjól inn kirkjugólfið - þá myndi ég láta sem ég þekkti hana ekki - eða hlaupa í burtu grátandi. Hahaha ... what a horror.

En, kannski er ég bara svona mikill kaddl - kannski kann ég bara ekki að meta þetta lak sem hún er með utan um sig í púffum og búffum. Er það bara merkið sem gerir kjóla flotta? Knús á þig ljúfan og eigðu ljúfa nótt.

Tiger, 11.6.2008 kl. 03:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband