Frjáls og fróð þjóð ..

 

Þreyta er komin í þjóð,

því fossar blóð.

Beisk undir breskum bölmóð,

bíður hún þrautseig og þolinmóð.

Þreyjum, þraukum, missum ei móð,

þó mæði á neikvætt fréttaflóð,

sem fari um Kári í jötunmóð. 

Verum í hjarta hlý og góð

vináttu tendrum glóð

frjáls og fróð

   þjóð

Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

p.s. Ég er ekki orðin óð!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.10.2008 kl. 09:46

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gott þú bættir þessu síðasta viðEigðu góðan dag mín kæra, ég sendi þér fullt af brosum og knúsum inn í daginn

Jónína Dúadóttir, 10.10.2008 kl. 09:56

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gleði, gleði Jónína mín

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.10.2008 kl. 10:02

4 Smámynd: Laufey B Waage

Góð

Laufey B Waage, 10.10.2008 kl. 10:04

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk Laufey, ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.10.2008 kl. 11:07

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Góða og skemmtilega helgi Jóhanna mín.

Ía Jóhannsdóttir, 10.10.2008 kl. 11:18

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk Ía mín, ég er að fara til Flórída, hvorki meira né minna, seinni partinn að heimsækja yngri dótturina. Ég var með einhverja samvisku af því að fara í burtu af skerinu, en systir mín fullvissaði mig um að hún myndi bjarga landinu á meðan mín nyti ekki við til þess.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.10.2008 kl. 11:20

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Góða ferð og njóttu þess að fara í burtu í smá tíma frá öllu hér, ég skal hjálpa systur þinni að stjórna öllu hér !

Sunna Dóra Möller, 10.10.2008 kl. 11:25

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Takk Sunna, fínt að vita af því.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.10.2008 kl. 11:34

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Flott ljóð.  Góða ferð til Flórída og njóttu samvista með dóttur þinni.

Sigrún Jónsdóttir, 10.10.2008 kl. 12:32

11 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

áttu lóð? mín fagra fljóð?

Rut Sumarliðadóttir, 10.10.2008 kl. 14:28

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Eigðu góða helgi kæra mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.10.2008 kl. 15:52

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góða ferð og ekki hafa áhyggjur af okkur á meðan

Jónína Dúadóttir, 11.10.2008 kl. 08:34

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.10.2008 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband