Stytt prédikun um feminisma frá 2002

Prédikun um feminismann flutt í Kvennakirkjunni árið 2002 .. mín hefur sko lengi verið að!

10.11.2002
 Í Langholtskirkju, 10. nóvember 2002
Prédikun: Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðinemi.

Bæn
Leiddu mig Guð - eftir þínu réttlæti, sestu niður með mér og rabbaðu við mig, gjörðu beina brautina þína fyrir mér svo ég sjái hvert ég á að fara. Gefðu mér daglegt brauð og hjálpaðu mér við að fá að taka þátt í að baka það. Því að þú ert vinkona mín og vinur og ert með mér í gleði og sorg. Amen

Þori ég get ég vil ég
Hún er sjö ára gömul. Hún er stödd í sundhöllinni á Barónsstíg. Hún stendur hátt uppi á bretti. Allt of hátt. Hún fær fiðring í magann og kvíðahnút. Hún hefur verið stödd þarna áður en þá þurfti hún að bakka niður stigann, því hún þorði ekki að stökkva. Þau sem stóðu fyrir aftan hana í röðinni voru ferlega pirruð að þurfa að hleypa henni niður. En... þau þurfa þess ekki í þetta skipti því hún gengur út brettið og lætur sig gossa. Spliss - splass - vatnið frussast og hún fer á bólakaf, vatnið tekur vel á móti henni og hún skýst upp aftur og kemur upp úr brosandi út að eyrum og það eru engin smá eyru!

Hún þorði, hún gat og hún vildi og hún stökk.

Hún er 37 ára gömul. Stödd fyrir utan Háskólann. Hún fær fiðring í magann og kvíðahnút. Hún hefur verið stödd þarna áður, en hætti við, þá var það of erfitt og of mikil vinna með börnin. Hún sagði við Guð "Guð nú verður þú að hjálpa mér inn um þessar dyr".. og hún fann hvernig Guð krækti handleggnum í hennar og hjálpaði henni inn, .... og það var tekið vel á móti henni.

Hún gat, hún þorði, hún vildi og hún gekk inn.

Hún er fertug. Stendur í prédikunarstól í Langholtskirkju. Hún fær fiðring í magann og kvíðahnút. Hann stendur ekki lengi við, því að hún finnur að áheyrendurnir eru yndislegar konur og yndislegir menn á stangli, andinn er hlýr og góður og það er það sem þarf til.

Til þess að: ég þori, geti og vilji.

Kannski verður hún einhvern tíma stödd fyrir framan valnefnd í einhverri yndislegri kirkju. Hún fær eflaust fiðring í magann og kvíðahnút. Hún þorir, hún getur og hún vill. Hún vonar innilega að henni verði vel tekið. Að ef hún sé hæfasti umsækjandinn verði hún ráðin. Að farið verði að reglum. Hún vonar að réttlæti sé haft við og reynsla hennar sé metin að verðleikum. Það getur varla annað verið, því réttlæti er jú eitt af því sem kirkjan stendur fyrir.

(innskot 2009, þessi klausa hér á undan var sérstaklega sett inn í því við vorum mörg orðin þreytt á skrítnum mannaráðningum innan kirkjunnar og klíkuskap)..

Þori ég, get ég og vil ég.

Reynslan
Í söngnum um brauðin og rósirnar sem við syngjum um á eftir, er talað um reynslu ömmu og mömmu. Í kvennaguðfræði og feminisma almennt eða "alkvennt", setjum við upp gleraugu reynslunnar, sem þýðir að það sem við segjum og gerum endurspeglar reynslu okkar. Því fer þó fjarri að hér sé kominn hjáguðinn "Reynsla" - eins og sumir "fræðimenn" (djúp rödd) vilja halda fram.

Við megum ekki halda reynslu okkar aðeins fyrir okkur, slíkt væri eigingirni. Við deilum henni með hvert öðru til skilnings. Þarna er ég að sjálfsögu ekki að tala um að afskiptasemi, þar sem við vitum allt best -  Ég er þegar farin að æfa mig að vera ekki afskiptasöm amma - þó ég eigi engin barnabörn ennþá!

það getur nefnilega verið kúnst að miðla reynslu og það er líka kúnst að taka á móti henni. Við miðlum reynslu á einlægan hátt þar sem við hlustum, horfum, tölum og síðast en ekki síst hjálpum þar sem um það er beðið.

Ný og betri leið
"Saman tökum höndum það er ný og betri leið" - enn er sungið. Takið eftir því - ný og betri leið. Það er leið til árangurs, leið til réttlætis, leið til frelsis. Ef við pælum aðeins í því þá er auðveldara að leiðast í hring en í píramída - er það ekki? Þarna er ég að tala um muninn á því að vinna undir og að vinna með. En er þessi leið ný? Samræmist hún ekki einmitt leiðinni sem Jesús kenndi fyrir 2000 árum?

Hann bauð þau öll velkomin, konur, karla og börn. Hann boðaði frelsi og réttlæti, frelsi kvenna,karla og barna. Sagði hann ekki: "Komdu til mín, þig sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti"

Áðan var lesið um frelsun Samversku konunnar. Jesús gaf henni lifandi vatn að drekka. Jesús settist hjá konunni og rabbaði við hana og hlustaði á hana. Það voru ekki allir sáttir við að Jesús hlustaði á hana og tæki á móti henni eins og hún var; kona og útlendingur. Jesús starfaði með konum og konur með honum. Hann tók mark á konum, og þær gátu óhræddar rætt við hann. Samfélagið með honum var frjálslegt og óþvingað.

Samfélag sem er eins og volg sundlaug sem óhætt var að demba sér útí. Það þarf ekkert endilega að vera hetja og stökkva af hæsta brettinu, heldur er hægt að nota stigann og fikra sig hægt útí. Láta sig fljóta, eða bara synda svanasund. Sundlaugin hans Jesú var notaleg og engar girðingar í kringum hana. Um sundlaugina hugsuðu konur ekki síður en karlar. Því miður fóru stórir karlar að blanda sér út í rekstur hennar og settu upp girðingar, sem virkuðu útilokandi, breyttu forsendum og leiðbeiningum. Konurnar hættu ekki að nota sundlaugina, en reglur settar af körlum voru þær sem giltu. Það var komin stjórn, yfirstjórn, og yfiryfirstjórn og í henni var engin kona.

Því miður hafa konur stundum þorað, getað og viljað taka þátt í uppbyggingu og samstarfi eins og Jesús ætlaði þeim í upphafi, en þeim verið hafnað á óréttlátan máta.

Það að vera kona á ekki að stjórna því hvað við veljum að vera í lífinu. Eins og hún Gerður kunningjakona mín sagði á Kaffi París um daginn. "Feminismi er að fá að vera samþykkt eins og ég er" Við verðum líka að vita að við séum velkomnar, þegar við sækjum um störf, hvort sem það eru stjórnunarstörf eða önnur störf. Hvort sem það er umsókn um brauð eða að baka brauð.


Fordómar og sköpun í mynd Guðs
Við höfum verið að ræða fallegu f - orðin í kvennakirkjunni, en það eru líka til ljót f-orð. Ljótt f-orð er til dæmis fordómar. Fordómar eru eflaust einn erfiðasti óvinur feminismans. Fordómar koma yfirleitt af þekkingarleysi og óöryggi, því eins og orðið gefur til kynna eru það For - dómar eða það að dæma fyrirfram. Það eru til margir tegundir feminista.

Feminismi er kvenfrelsi skv. orðabók, en hann er vissulega túlkaður á mismunandi vegu. Það eru til dæmis til róttækir feministar sem vilja bara allt karlkynið burt. Fyrir mér er það afskaplega fráhrindandi hugsun og hlýtur að vera í andstöðu við sköpun Guðs. En þið vitið að það er líka til kristið fólk sem vill samkynhneigða burt og það er einnig í andstöðu við sköpun okkar í Guðs mynd. Við erum öll sköpuð í Guðs mynd, konur og karlar, gagnkynhneigð eða samkynhneigð eða bara ókynhneigð ... og okkur er ætlað það verk, í sameiningu, ekki bara körlum að yrkja þessa jörð og gæta hennar og sundlauga hennar, baka brauð og borða það. Það er að mörgu að gæta.

Kvennakirkjuna taldi ég óþarfa áður en ég kynnti mér hana. Mér fannst að það ætti ekkert að vera að skipta hlutunum upp í kvenna og karla. Ég hef að vísu aldrei viljað karla í saumaklúbbinn minn. Sumt er kvenna og sumt er karla og njótum þess. Sumt er sam - og þá verður það að standa undir nafni sem slíkt. Sam-félagið okkar er til dæmis bæði fyrir kvenkyns og karlkyns manneskjur. Sömuleiðis kirkjan. Kvennakirkjan stendur undir nafni sem kvenna - kirkja og er ekkert að fela það.

Feminismi kaldur eða heitur?
Það hefði verið ónotalegt fyrir mig 7 ára gamla að lenda í ísköldu vatni, þegar ég stökk af brettinu. Eða þá að vatnið væri gruggugt og mettað bakteríum því sundlaugarvörðurinn hefði gleymt að setja klórinn útí vatnið. Við þurfum að koma feminískum sundlaugarvörðum að, og hella femismanum út í samfélagið og stofnanir þess. Við þorum, getum og viljum. (Þó hafa sumir ofnæmi fyrir klór og feminisma...:- ) Við getum líka hitað vatnið með ylnum sem fylgir feminismanum því feminisminn er heitur.

Við viðurkennum ekki köld kvennaráð ! - Nei takk ! ... Eða það að "Konur séu konum verstar" ? Ef við höldum áfram að láta halda þessu að okkur, af konum og körlum, og jafnvel halda þessu að okkur sjálfum, gætum við alveg farið að trúa því. Trúað því að konur séu konum verstar og það sé ólíft á kvennavinnustöðum þess vegna.

Kona þú ert sterk, flott og klár og þarft ekki að níðast á systur til að það sjáist hversu yndisleg þú ert. Ef einhver þarf að vera andstyggileg þá er það hún sem er veik og óörugg og þá reynir á að koma henni til hjálpar. Eflaust hefur einhver verið andstyggileg við hana og hún lætur það bitna á þeim sem hún þorir, það skyldi þó aldrei vera önnur kona ?

Saman tökum höndum/

við sjáum nýjan dag/

Á vinnustað og víðar/

við syngjum þennan brag

Það er til nóg brauð fyrir okkur öll. Vandamálið er kannski að við kunnum ekki alltaf að deila því niður. Sum vilja meira og önnur sitja hjá. Við höfum offitu í Ameríku og hungursneið í Afríku. Það er óviðuandi ástand og augljóslega rangt. Hverjir eru eiginlega við stjórnvölinn í heiminum ? ... þögn til íhugunar..

Feminisminn í framkvæmd
Þegar ég mætti á fyrstu kóræfinguna mína hjá Kvennakirkjunni fyrir tæpum hálfum mánuði, var þar á boðstólum kvarthluti af Hressó - rjómatertu. Talandi um offitu !  Þegar ég sá kökuna, sleikti ég út um, en hugsaði einnig með skelfingu, þetta verður aldrei nóg, ég fæ ekkert! En raunin varð önnur, ein útsjónarsöm kona tók sig til og skar í lekkerar sneiðar þannig að nóg var fyrir allar! Það var enginn ofstopi, engin afkoma þeirra hæfustu í gangi eða "survival of the fittest" en mikið hlegið og ég fann hvað ég var velkomin. Á kóræfingu hjá kvennakirkjunni upplifði ég feminismann í framkvæmd.

Feminisminn sem nýbakað brauð
Þegar ég vil halda veislu þá fer ég að leita í matreiðslubókunum mínum. Finn 1001 rétt sem mig langar að reiða fram. Ég loka yfirleitt bókunum og nota síðan hugmyndir sem hafa kviknað um leið og ég leit yfir uppskriftirnar. Það sem oft vill gerast í veislum er að við erum farin að borða rjómatertu með majonesi og heitan rétt með ostaköku. Allt þetta delikat dúllerí verður að einum graut á diskinum. Ég er betri í að borða rjómatertur en baka þær. Aftur á móti gengur mér ágætlega og hef gaman af að baka brauð. Það getur orðið ágætis veisla úr nýbökuðu ilmandi brauði og smjöri, og sultu úr berjalandi feminismans. Það má leggja brauðið á fallegt borð og skreyta með rauðum rósum. Þannig berum við feminismann fram, eins og nýbakað ilmandi brauð.

Verði okkur öllum að góðu. "

 Svona var ræðan mín árið 2002!

Var eiginlega sjálf búin að gleyma þessari prédikun, en langaði núna til að deila henni með fleirum. Á  þessum tíma langaði mig að starfa innan þjóðkirkjunnar, en mig langar það ekki lengur, hún er of köntuð fyrir mig og of margar girðingar, en ég virði alla þá, og á marga nána vini og vinkonur sem hafa valið sér að starfa innan hennar  .. það er bara ekki ég Heart .. og ég fæ gæsahúð að heyra orðið Drottinn því það minnir aðeins á drottnara og Guð er ekki drottnari í mínum huga.

Fyrir mér er Guð ein alheimssál, samþjöppuð af okkar sálum og við því hluti af Guði, Guð verður aldrei betri eða verri en summan eða margfeldið af okkur mannfólkinu og því er svo mikilvægt að hið góða nái að yfirvinna hið illa ...   Við erum aðeins dropar í stóru Guðshafi ..

Set þessar hugsanaperlur mínar fram fyrir þá sem hafa áhuga...

p.s. ekki láta þessar guðspælingar rugla ykkur ;-)  Jesús er lifandi veruleiki fyrir mér, þrátt fyrir óhefðbundna guðsmynd....


Elsku Eva Lind 28 ára 2. september 2009

Á morgun verður hún Eva mín 28 ára, það er enginn smá aldur!!.. Hún er stödd fjarri mömmu sinni, í Hornslet í Danmörku - í fína raðhúsinu, með garði að framan og aftan þar sem sólin skín allan daginn. Ég er svo mikil kjúklingamamma að ég sakna unganna minna þegar þau fara í burtu. Eva er reyndar líka kjúklingamamma, því að Máninn hennar var að byrja í dönskum leikskóla í morgun, og eins og hún orðaði það þá var hún að "æla af stressi" .. Mér skilst samt að það hafi allt gengið vel!

Þann 14. ágúst sl. giftu þau Eva og Henrik sig og létu skíra litlu Elisabeth Mai, eins og kom fram í þessari færslu.

Falleg ..

Nú er frú Eva Lind örugglega farin að sofa ásamt litlu fjölskyldunni, ég hringi til Danmark í fyrramálið og vek hana kannski hihi...

Að lokum eitt viðeigandi videó, en Eva söng þetta sjálf ásamt pabba sínum við stúdentsútskriftina sína við mikið táraflóð.

SUNRISE - SUNSET .. that´s what life is all about..


Samkynhneigður vísindamaður einangrar kristið gen :-)


Eva Lind giftir sig ..

 

Eva dóttir mín og Henrik tengdasonur (ásamt börnunum Mai 3 mán, og Mána 5 ára)  bjuggu hjá mér stutta stund, eins gott að það var ekki mjög löng stund þar sem þau hentu mér út úr mínu mjög svo rómantíska svefniherbergi og létu mig sofa í sjónvarpssófanum LoL .. (reyndar smá útúrsnúningur í þessari frásögn og ýkjustíll, en það hljómar miklu skemmtilegra en að ég hafi heimtað að þau fengju herbergið!) .. 

Jæja, þau voru ekki búin að vera lengi þegar Eva kom til mín og spurði mig hvort mér þætti það ekki alveg brilljant að þau giftu sig nú bara um leið og Mai yrði skírð þann 14. ágúst. Hún hefði reyndar sent Henrik sms um morguninn hvort þau ættu ekki bara að láta til skarar skríða og jú, hann hafði sagt já drengurinn! That´s my girl! Ekkert að tvínóna við hlutina.

Þetta átti í fyrstu að verða allt voða einfalt, og auðvitað allt í laumung, aðeins mamma, pabbi og Birna vissu af þessu, systkinin voru upplýst og örfáir sem urðu eðli málsins vegna að vita af þessu, t.d. presturinn yndislegi hún Jóna Hrönn.

Ég get ekki farið í öll smáatriði en niðurstaðan varð að sauma átti mamma-mia brúðarkjól (auðvitað)  og kaupa sítt slör, blómvöndurinn átti að vera samansafn af blómum vallarins eða þannig og allt einfalt og fallegt.

Foreldrar Henriks náðu ekki að koma frá Danmörku, en voru sátt við að haldin yrði veisla þega heim væri komið en hægt að var að lokka besta vin hans þaðan til að vera svaramaður. Hann mætti s.s. til landsins á fimmtudegi og brúðkaupið var á föstudegi. Herrarnir þrír; Henrik svigeson, Sören svaramaður og Mánalingur  keyrðu upp í Hvalfjörð til tilvonandi tengdapabba og gistu þar. Við stelpurnar; Eva tilvonandi brúður, Vala aðstoðarkona, Mai litla og móðir brúðarinnar undu sér heima og horfðu á sæta konumynd kvöldið fyrir brúðkaup.

Birnan og pabbinn höfðu séð um að skreyta sal og undirbúa veislu, með örlítilli hjálp frá mömmunni, sem reyndar skar niður tonn af grænmeti. Valan og Ingan höfðu bakað dýrindis möffins-brúðartertu og amman hafði bakað kransaköku, sem reyndar var fyrir skírnarbarnið þar sem hún vissi ekki af hinu samofna brúðkaupi. 

Máni var auðvitað hringaberi og Rósinkrans fékk að syngja ;-) ..

Brúðkaupsdagurinn rann upp, við Vala hentumst upp í Mjódd til að versla ýmislegt sem enn vantaði eins og (gervi) demantshjarta um háls brúðar og rómantískt slör sem náði langt aftur að ósk brúðarinnar.

Margt gekk á á Ránargötunni þennan dag, svo málaði mamman sig og tók fram kjólinn sem hún hafði sparað 50 þús á. Já, hann kostaði áður 62 þús og fékk hann á 12 þús á útsölu, ekki hægt að gera betri kaup á útsölu en það!!!..  en áður en hún smeygði sér í dýrðina, brunuðu hún og Vala í Stjörnuheimilið með grænmeti og til að skreyta kökur o.fl. 

Á heimleið; um 6 leytið - brúðkaupið byrjaði 19:15  .. hringdi brúðurin og bað mömmu að "redda blómvendi" .. arrrgg.. helst náttúrulegum. Vala hafði engan tíma í það, svo mamman skutlaði henni heim til að gera sig klára og ók svo sem fjandinn væri á afturdekkjunum í átt að Hringbraut. Keyrði inn Ljósvallagötuna á móti akstursstefnu og reif út úr bílnum poka sem hún ætlaði að stinga blómunum í. Sá þá það var Bónus poki, og kom þá í huga hennar að brúðarvöndur dóttur hennar færi sko ekki í Bónus poka. Var heppin að Vala var að vinna hjá Sævari Karli og að í bílnum var poki þaðan. Ekki að mamman sé snobbuð! Tounge ..  Kom hlaupandi með hníf og poka að Margaritublómabeði í boði borgarinnar og horfði flóttalega í kringum sig - en hún mátti engan tíma missa og quizzz ..  blómvöndurinn var skorinn úr beðinu og stungið í pokann frá Sævari Karli.  Brunaði nú mamman aftur heim á leið, batt fagran borð um vöndinn og "voila" vendinum var reddað! 

Út í bíl fór hún hlaupandi, í silfruðum og gylltum kjólnum og brunaði í Garðakirkju. Þar beið Birna og tóku þær brosandi á móti gestunum, sú gamla og sú nýja. Gestir urðu pinku skrítnir en brá að sjálfsögðu þegar inn var komið í kirkjuna og Henrik og Sören íklæddir mörgæsaklæðnaði hneygðu sig virðulega.  Reyndar var annað krútt í mörgæsaklæðnaði sem beið fyrir utan með hringa í boxi - en það var Máni, sem eins og venjulega var bara "cool" enda vanur hringaberi!

Brúðurin kom eiginlega meira en fashionably late, kirkjan full af ungum og fallegum vinkonum brúðarinnar með litlu ungana sína og auðvitað pabbana þeirra! ..   Damm, damm, damm, damm.. og "here comes the bride" Eva kom inn með pabba sínum, yndisleg sem alltaf brosandi út að eyrum - berfætt - eins og hennar var von og vísa í mammamia brúðarkjólnum sínum. Úff, það var ekki bara mamman sem tárfelldi, brúðurin grét og enginn var ósnortinn af gleði hennar. 

Vala sat fremst með fallegu Elisabeth Mai, sem var íklædd yfir 50 ára gömlum skírnarkjól fjölskyldunnar, sem amma hennar (ég) hafði saumað í bleikar slaufur fyrir tilefnið.

Brúðkaupið var yndislegt, Páll Rósinkrans söng fallega fyrir brúðhjónin "Ó þvílíkt frelsi að elska þig" og "Unchained Melody"  og ekki síður fyrir barn þegar hann söng "Þitt fyrsta bros" .. þúsund tára brúðkaup og skírn. Máni klikkaði ekki á hringaburðinum og var krútt aldarinnar,  Jóna Hrönn bætti í gleðina með að halda á Elisabeth Mai meðan Rósinkransinn söng lagið hennar og sú stutta stal senunni algjörlega á tímabili, enda líka hennar dagur.

Veislan var æði, allir glaðir og kátir - farið í leiki og haldnar stuttar tölur, auðvitað margar óundirbúnar þar sem enginn eða fæstir vissu að um brúðkaup væri að ræða. Síðustu gestirnir fóru svo um miðnætti, en við gengum algjörlega frá salnum og komum heim lúin eins og eftir fjallgöngu - en jafn sátt. Fríður flokkur mætti á Ránargötuna; Brúðurin Eva og brúðguminn Henrik, mamman, svaramaður, Vala, hringaberinn var borinn inn sofandi og jafnframt hin nýskírða snót Elisabeth Mai og þau lögð fyrir.

Sören svaramaður þurfti að fara í flug klukkan 7 um morguninn, svo hans svefn gat aldrei verið meiri en 2-3 tímar. Þegar við vorum þarna um miðja nótt að horfa á upptökuna af skírn/brúðkaupinu, þá segir Eva við mig; Mamma það er best að Sören sofni hjá Henrik í þínu rúmi og ég sofi hér í minni sófanum og þú í þeim stærri. Ég sprakk úr hlátri og sagði það ekki koma til greina að brúðguminn og svaramaðurinn eyddu brúðkaupsnóttinni saman. En hún stóð föst á sínu og tilkynnti Henrik þetta, brúðkaupsnóttinni var þar með frestað þar til óákveðið!

Mamman sem hafði laumast til að setja hreint á rúmið hjá þeim og svona minnstu munaði að herbergið væri allt skreytt með hjörtum, en hafði sleppt því vegna tímaleysis. Jamm og já, þannig fór það. Sören svaramaður og Henrik svigeson eyddu s.s. brúðkaupsnótt þess síðarnefnda í mínu rúmi og ég (svolítið heppin) fékk að hafa Evuna mína hjá mér á brúðkaupsnóttina hennar.

Fallega fólkið mitt; Tobbi, Ásta, Vala, Máni, Eva og Henrik.

 

Lífið er yndislegt! Halo  Óska Evu minni og Henrik til hamingju, litlu stelpurnar manns verða samt alltaf litlu stelpurnar....  (set myndir á Facebook)


Gleði, gleði, gleði - gangan .. að gefnu tilefni!

Ég freistaðist til að skrifa athugasemd hjá Jóni Vali Jenssyni, þrátt fyrir að hafa það að prinsippi að fita ekki púkann á fjóshaugnum.

Ég kommentaði s.s. á þessa færslu og skrifaði:

"Það sem fór í gegnum huga minn þegar ég stóð á Laugaveginum í gær með börnum og barnabörnum og fylgdist með Gay Pride göngunni, var hvað þessari stund fylgdi mikil gleði, vinátta og samstaða. Sá þarna fólk af öllum stærðum og gerðum með marglita kransa um hálsinn og flaggandi regnbogafánanum en litir regnbogans er tákn samkynhneigðra.

Þjóðinni veitir ekki af slíkum gleðidögum - veitir ekki af því að taka frí frá Icesave áhyggjum og pólitískum bragðarefum um leið og hún styður jafnréttisbaráttu samkynhneigðra. 

Ég styð það sem er kærleikans megin, styð mannréttindi (líka samkynhneigðra) og ég styð Hönnu Birnu!

Til fjandans með fordómana. Devil "

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 9.8.2009 kl. 20:43

Svar Jóns til mín:

68 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Jóhanna, ég get ekki annað en vorkennt þér sem guðfræðingi. Styður Hönnu Birnu í þessu athæfi hennar! Viljið þið ekki bara breyta Sjálfstæðisflokknum í yfirlýstan líberalistaflokk í öllum málum, andkristinn og and-konservatívan, með henni Þorbjörgu ykkar Vigfúsdóttur og vesalings Kolbrúnu Baldursdóttur? Flokkurinn er hvort sem er búinn að hafna sinni kristnu fortíð, með margvíslegum hætti."

Það skal tekið fram hér að ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, svo það er óþarfi að spyrða mig við hann, en ég styð Hönnu Birnu í þessu meinta "athæfi" hennar. Smile ..  Reyndar styð ég fólk úr öllum flokkum, því mér líkar bara nokkuð vel við marga í mörgum flokkum! .. 

Sama gildir um trúflokka, ég styð skoðanir margra í mörgum trúfélögum og reyndar utan trúfélaga líka auðvitað.  

Ég held reyndar að engar tvær manneskjur hafi 100% sömu trú né sömu stjórnmálaskoðun og því séu mengin mjög samofin og erfitt að draga skýr mörk eða landamæri.

Varðandi að mér sé vorkunn sem guðfræðingi þá vil ég miklu frekar stilla mér upp sem guðfræðingi við hlið Sr. Sigríðar Guðmarsdóttur sem hefur stofnað m.a. hóp á Facebook sem inniheldur fleiri liberal guðfræðinga og presta, þar sem farið er fram á að á Íslandi gildi ein hjúskaparlög frekar en við hlið Jóns Vals Jenssonar og hans  "lífsgilda".. 

Jæja, fyrst og fremst er ég manneskja  - líkar ekki þessi áhersla á flokkadrætti, stimpla og félög þó ég sé heilshugar með því að fólk stilli saman strengi og vinni í samtakamætti að góðum verkum, og ég er bara það sem ég er  .. Wizard   

Jæja, nú er kominn vinnudagur, þarf að undirbúa komu nemendanna í skólann, þ.m.t. samkynhneigðra nemenda, sumra sem líður bara vel í sínu skinni en sumra sem þurfa að glíma við fordóma og þarf að styðja gegn afturhaldsseggjum og sjálfskipuðum dómurum samfélagsins. 

Knús og kærleik til okkar allra  ..  Heart Love all Serve All

 


Hitti bloggvinkonu í mátunarklefa ...

Ég stikaði með Huldu systur upp Laugaveginn til móts við Gay Pride gönguna, átti þar stefnumót við Evu og Henrik með börnin. Þar sem Vala var að vinna í Sævari Karli (reyndar ekki í honum heldur í búðinni sem heitir Hjá Sævari Karli) fór ég þar inn í þann undraheim. Ég hafði, þar til í dag, ekki eignast flík þaðan, enda verðin "aðeins" fyrir ofan minn fjárhag.

Jæja, nóg um það við Hulda fórum til Völu niður í dömudeild og ég komst að söluhæfileikum dótturinnar. (Ég held það hafi verið síðast í gær að ég var ákveðin í því að fara að vera duglegri að spara)  Já, já, en hún fann til buxur - sem svoleiðis smellpössuðu á mömmu og fleira með 60 - 70% afslætti á útsölunni og ég endaði uppi með tvennar vinnubuxur og eina skyrtu!!.. Allt auðvitað svakalega vandað og fínt. 

Þar sem ég gerði eitt af mínum flottu entrance út úr mátunarklefanum, kom á sama tíma út úr sínum mátunarklefa glæsikvendi nokkurt í svörtum kjól. "Hvar hafði ég séð þessa konu" ... hugsaði ég; en hugsaði ekki lengi:  vá, bloggvinkonan Ía í Prag var þarna mætt í öllu sínu veldi. - Ég horfði á konuna og spurði svo varlega; "heitir þú ekki Ía"? .. og jú, sú var konan - og ég kynnti mig fyrir henni. 

Þetta var gaman fyrir okkur báðar, við knúsuðumst á staðnum og hlógum að þessum aðstæðum. 

Dagurinn í það heila var mjög góður, endaði ég með litlu fjölskyldunni á Café Paris og fengum við okkur Salat og erum nú komin heim í kaffi. 

Góður dagur!  Heart

..


Tveir ísar þegar maður er veikur sko! ...

Í dag er fimmta útskriftin frá Hraaðbraut og "sú gamla" er alltaf með. Þetta er ein mesta hátíð ársins hjá mér, og í raun uppskeruhátíð ;-)

Eftir uppskeruhátíð ætla ég að kíkja á hann Mána minn sem tognaði illa í gær greyið á hoppudýnu í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum og þurfti að fara á slysó. 

Hann var víst mjög þjáður, en fékk góð verkjastillandi lyf og þegar ég heyrði í mömmu hans í gær var hann að kalla "Mamma þegar maður er veikur má maður þá ekki örugglega  fá tvo ísa" ??.. 

Svo er ég víst búin að bóka mig í snúllupössun í kvöld, en umræddar snúllur eru  ungar systurdætur mínar Rósa og Ísold  en mamma þeirra er að fara í ammæl! ..

Á mánudag er svo "Girls Hike", en þá ætlum við systur og mágkonur að fara í Huldukot - ganga einhverja hrikalega göngu og fá okkur grill um kvöldið ....  gista og kannski hlæja svolítið saman, reyndar ekkert kannski þar! LoL

Óska ykkur góðrar helgar snúllur ... 


Svona er að borða rangt ...

Byrjaði daginn á að borða einhvern hollustu-skyr-bombu sem var mjög góð um 7:30! .. Jæja, .. hádegið kom og min borðaði bara eitthvað Ágústu Johnson hrökk-kex og te því henni var hálf illt í mallanum. Svo leið og beið og klukkan 17:00 var það eitt stykki banani. Bauð svo börnum og barnabörnum í kvöldmat og matseðillinn var Tikka Masala kjúklingur m/hnetum, bönunum, tzaziki sósu, rauðvínsglas, sterkt kaffi á eftir o.fl. o.fl. og þá var ég búin að planta of miklu brasi og sterkri sósu líka  í likamann svo það fór sem fór.

Er ofurviðkvæm í maga, og vaknaði uppúr 5 með kvalir :( ... og hef reyndar ekki sofnað síðan.

Það trúir því eflaust enginn, en þessi magaverkjaköst leiða út í bakið, handlegg og niður eftir vinstra fætinum (allt vinstra megin)  .. og eru MJÖG kvalafull, geta staðið í marga klukkutíma ... eftir að þau hjaðna þá finn ég enn eymsli á eftir .. hef fengið þetta með mjög óreglulegu millibili síðan ég var tvítug .. svo ekkert nýtt í gangi..

Passa mig að eiga ekki svona rugldag í mataræði á næstunni.


Hæ, hæ, ...

Velkomin þið nýju lesendur að bloggi. Hér leynist nú lítið djúsí, aðllega að röfla um aðhaldið mitt þessa dagana, - hefði eflaust verið meira spennandi að tala um viðhald en aðhald.. ;-)

Ekki eru allir "útíbæ" ánægðir með bloggið mitt og finnst ég níðingur hinn mesti, svo ég tók á það ráð að læsa bara á óánægðar sálir en hleypa ánægðum inn.

Því treysti ég, lesandi góður, að þú sért ánægð sál! :-) ..  (popoppið virkar ekki - svo ég get ekki notað broskallana)

Kær kveðja,

Jóhanna .. verðandi mjóa!


Nágrannar

Hér á bak við hús er sameiginlegur garður, með borði, stólum, nokkrum pottum fyrir sumarblóm o.fl. Við mæðgur ræddum það að það væri upplagt að kynnast nágrönnunum með því að stinga upp á vinnudegi í garðinum, fúaverja húsgögn, hirða arfa úr blómabeðinu og setja sumarblóm í pottana.

Við létum því verða af því áðan að ræða við efri og neðri hæð, erum í miðjunni, og a.m.k. neðri hæð var mjög "game" að hafa garðdag næstu helgi! ;-)  Þau stungu upp á því að grilla svo í lokin, úúúú.. gaman, gaman. Smile

Það er alveg bráðlífsnauðsynlegt að eiga góða nágranna - og svo eigum við auðvitað Sissu og Jónas á móti, sem læsa sig úti til skiptis og fá hér griðarstað!

Í 2 mín göngufjarlægð er einstaklega vinveittur nágranni, en það er auðvitað Lotta sys og ef ég geng í 5 mín er líka vinveittur nágranni - en það er auðvitað Hulda sys! ..

Ekki í vandræðum með kaffið þessi kona!

Læt vita á morgun hvort ég hef lést eða ekki .. dagur 2. í átaki er að líða í dag og ég hef haldið allt sykurbindindi og borðað aðeins hollt og gott. Fer í tímann 6:20 á morgun.

Kveðja, Jóga pók.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband