Ljóminn brenndur burtu ...

Bréfritari er ađ hefja ađra vikuna á einhvers konar bikinístandskroppastandsetningarsjálfspyntingarnámskeiđi hjá Hreyfingu.

Í gćrkvöldi var ţriđji tíminn í hinu alrćmda ,,spinning." Sumum finnst ţetta gaman, en ţađ vantar augljóslega í mig spinning-greindina, ef ţetta er skođađ út frá fjölgreindarkenningu Gardners. Cool

Ég mćtti međ gelpúđann minn og setti hann á hnakkinn, stillti hjóliđ eins og pro og held ađ engin viđstödd hafi séđ hnútinn sem ég var međ í maganum, eđa kannski bara haldiđ ađ ţađ vćri hluti af púlsmćlinum sem ég var búin ađ spenna utan um mig miđja. Var síđan eins og Grani í Spaugstofunni alltaf ađ tékka á púlsinum á ,,úrendanum"  svo ég gćti nú náđ hámarksfitubruna.

Ég náđi alveg örugglega hámarksrassbruna - ţrátt fyrir geliđ. Af einhverjum ástćđum minntist ég orđa Danans sem var samferđa í reiđtúrnum yfir Kjöl (í brúđkaupsferđ međ sinni) ,,Det er lige som at vćre voldtaget av en isbjörn" sagđi hann á ţriđja degi Kjalarferđarinnar um leiđ og hann vatt sér inn í trússbílinn og ţáđi far međ honum.  Sama hversu mörgum dömubindum var búiđ ađ vattera manninn međ - ekkert dugđi!! ..alveg satt!

Tíminn endađi ţó ekkert ţó ég fćri ađ hugsa og ég hélt mig á réttum púls og fór himinhátt í restina og lofađi alla helga vćtti ţegar tíminn var búinn. Kannski mest Ágústu Johnson sem sagđi ađ brennslan héldi áfram í nokkra tíma eftir tímann..  ekki brennt til einskis .. eđa er ţetta kannski allt til einskis ?  Pjúra hégómi ? .. Nei, segi eins og Siggi Sigurjóns (svo ég taki fleiri karaktera međ honum) ,,I love it" .. when it is finished

Eftir tímann var okkur smalađ á vigt, ađ vísu einni í einu og niđurskurđur eftir vikuna eru 2,3 kíló, en ţađ eru fjögur Ljóma smjörlíkisstykki plús 300 grömm af ţví fimmta!  

Hefur ţú fariđ á ,,átaksnámskeiđ" ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Glettilega skemmtileg skrif Jóhanna. Ég hjóla úti í vorinu. kv   gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráđ) 16.4.2008 kl. 17:48

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Vá ţú dugleg

Jónína Dúadóttir, 16.4.2008 kl. 19:52

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nú, nú, ţetta er ađ koma.  Go girl.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.4.2008 kl. 20:23

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gísli, ég stefni á alvöru hjólamennsku - engin spurning. Miklu skemmtilegra ađ fara eitthvađ en sitja kyrr!

Nei, nei, Gunnar!.. Mín einsömul 2,3 (veit sosem ţú vissir ţađ alveg)..

Takk Jónína, já - ég er dugleg - verđ ađ klappa sjálfri mér til ađ ţrauka ţetta og gott ađ fá klapp frá öđrum.

Já, Jenný - ţetta er ađ koma, I will go!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.4.2008 kl. 20:56

5 Smámynd: Halla Rut

Ţú skrifar svo oft skemmtilega. Ţetta orđ á skiliđ verđlaun: bikinístandskroppastandsetningarsjálfspyntingarnámskeiđ

Halla Rut , 16.4.2008 kl. 21:34

6 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Fyndin og góđ skrif

Marta B Helgadóttir, 17.4.2008 kl. 00:00

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

...ég fékk mér fjallahjól ......til ađ hjóla úti, ţađ er rosa skemmitilegt

Marta B Helgadóttir, 17.4.2008 kl. 00:01

8 Smámynd: Tiger

  Dugnađurinn í ţér skottiđ mitt, enda sumariđ í nánd svo eins gott ađ vera viđ öllu búin. Ef ég ţarf á ţví ađ halda ađ missa einhver kíló - ţá hćtti ég bara ađ borđa á nóttunni í nokkra daga og *púff* kílóin kveđja strax, ekkert puđ og ekkert vesen - enda brennslan yfirnáttúrulega mikil á ţessum bć. Knús á ţig ljúfan og eigđu góđa nótt ...

Tiger, 17.4.2008 kl. 02:16

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Flott hjá ţér! Ég vona ađ vísindamenn, sem nú eru ađ endurskođa kílóiđ, komist ađ ţeirri niđurstöđu ađ ţetta sé í raun og sann 2,5 "ný"kíló.

Ég bendi ţér á ađferđ sem einn góđur mađur notar alltaf: Hann ţyngist í kílóum, bćtir kannski á sig tveimur, en ţegar hann missir ţau ţá er ţađ alltaf í pundum! Allt í einu er hann "fjórum" léttari.

Brilljant fyrir sjálfstraustiđ.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.4.2008 kl. 10:54

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hehe Gunnar, er ekki Feit međ stóru F-i en ţetta er ţessi fjandans fullkomnunarárátta í okkur kellunum alltaf!

Takk Halla, ..kannski ţetta sé ađeins of langt orđ ?.. en tjáđi mína tilfinningu fyrir námskeiđinu!

Guđmundur, takk, takk -  gott ađ ţetta virkar hvetjandi en ekki letjandi!

Takk Marta Smarta á fjallahjólinu!

Tigercopper - borđa á nóttunni!!!... Ţú ert algjör Hómer!

Ragnhildur, já einhvern veginn hljómar vel ađ missa pund! .. til í ţađ.. 

Eftir ţví fleiri athugasemdir sem ég fć langar mig enn meira út ađ hjóla á alvöru hjóli!  .. Á ónotađan hjálm og ryđgađ hjól sem kannski má pússa smá.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.4.2008 kl. 11:29

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Superkalifrasiglistileslpilalidoseus    Hahaha jamm ég hef fariđ í spinning međ henni Nínu Óskars meira ađ segja tvisvar, og mér leiđ rosalega vel á eftir, grenntist og léttist, minna fitumagn, meiri massi.  En núna er ég í átaki sem er öđruvísi, ţađ er svona ađ beygja sig ađeins niđur, taka utan um lítinn kropp og hífa upp, setjast niđur á stól og taka tvo litla kroppa á sitt hvort hnéđ, iđandi litla orma út um allt.  En ţađ er eitthvađ samt sem gerist ţví ég er svo glöđ inn í mér viđ ađ umgangast átaksverkefnin mín. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 17.4.2008 kl. 11:29

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Knús Ásthildur, krúttin eru verđug átaksverkefni!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.4.2008 kl. 14:19

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband