Farmor og farfar í matarboði!

Hann Ísak Máni minn er hálfur útlendingur og amma hans og afi búa í Hornslet, smábæ í Danmörku. Þau eru stödd á landinu í tilefni fjögurra ára stórafmælis Mána, sem eins og glöggir bloggvinir og aðrir tóku eftir var haldið 27.apríl sl.

Í gærkvöldi komu þau í mat og áttum við hér skemmtilegt kvöld. Aðalstuðið snérist að vísu í kringum pappakassahús sem minn laghenti maður ,,smíðaði" hér á dögunum. Sko það borgar sig að kaupa náttborð ef fólk fær svona flott ,,byggingarefni" með!

Allir prófuðu húsið, þó það hafi verið virkilega extra, extra, small fyrir okkur fullorðin!

Matarboð_30.apríl_2008 001

Janne, Arne og Henrik (svigeson)

Matarboð_30.apríl_2008 002

Mín svolítið þreytt og úfin eftir galdrabrellur í eldhúsi, svona beint eftir vinnu, Eva að skammta, Tryggvi Jr. og Mánalingur (báðir með Transformers diskana og glösin frá Vöu).

Matarboð_30.apríl_2008 007

Bedste býst til inngöngu í pappahús..

Matarboð_30.apríl_2008 013

Þarna sést í ,,bagdelen" á bedstefar!

Matarboð_30.apríl_2008 024

Grallaraspóar komnir í ,,búningana" .. Löggu og Súperman!

Matarboð_30.apríl_2008 026

Grallaraspói nr. 1

Matarboð_30.apríl_2008 018

Eva spilaði pinku á píanóið fyrir okkur og fékk Tryggva til að aðstoða við ,,Allt í grænum sjó" ..
Máni álítur sig vera að aðstoða líka.

Matarboð_30.apríl_2008 022

Einbeitt að spila frumsamið lag sem hún samdi einu sinni fyrir afa sinn. Heart

Eigið gleðilegan 1. MAÍ OG UPPSTIGNINGARDAG... er farin í ,,(s)pí(n)ning"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég gat nú ekki annað en brosað þegar ég sá að í þinni familíu eru líka "farfar" og "farmor".  Jenný Una og Hrafn Óli eiga sænska svoleiðis og þau eru að koma núna í næstu viku, því það á að skíra Krummann þ. 10.maí.

Takk fyrir yndislegar stemmingsmyndir.

Gleðilegan 1. maí.

Komminn

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2008 kl. 09:11

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 1.5.2008 kl. 12:25

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

 eigðu góðan kristihimmelfartsdag (égógógóðídönsku )

Sunna Dóra Möller, 1.5.2008 kl. 14:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessu, og flott húsið, jamm það er nú aldeilis flott að fá svona gott byggingarefni, eins gott að afi er laghentur

Aldeilis frábær færsla full að gleði kærleika og ást Jóhanna mín.  Takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2008 kl. 16:53

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Skemmtilegar myndir af flottri fjölskyldu

Huld S. Ringsted, 1.5.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband