Færsluflokkur: Bloggar

Þrjú sæt að fara að keppa í Söngkeppni framhaldsskólanna ..

Þrír nemendur Hraðbrautar eru að fara að keppa í söngkeppninni sem stendur nú yfir í beinni ... Ég, ,,ungamamman", er svolítið stressuð .. því ég veit að þau eru svaka stressuð! úff... Æ - vona að þeim gangi vel.

Rabbi, Haffi og Heiða ..
21.48 .. þau búin að koma fram, komust vel frá sínu ...hjúkkit!

Græðgin og sóðaskapur getur orðið manni að falli!

 Vona að þessir sælgætisþjófar hafi verið sektaðir fyrir ,,littering" þ.e.a.s. að henda rusli á almannafæri! Svakalega get ég orðið pirruð á fólki sem hendir rusli, flöskum, sígarettustubbum og tyggjói útum allt.

Ég bloggaði nú einu sinni um þegar við dóttir mín lentum í brjálaða gaurnum sem hún benti vinsamlegast á að hann hefði ,,misst" flösku sem hann henti út um bílgluggann. Hún átti fótum sínum fjör að launa - svo reiður varð gaurinn!  Hann hafði augljóslega hent vitinu út um bílgluggann með flöskunni.

Í síðustu viku rölti ég út í hádeginu eins og yfirleitt í vinnunni, ég þurfti að ganga á milli bíla á bílastæðinu fyrir framan verslun og ,,vúsh" hálfreykt sígaretta kom fljúgandi að mér. Kona á besta aldri sat inní bílnum og varð eins og humar í framan og sagði "afsakið", en ég og minn stóri munnur gat ekki alveg þagað og spurði, að vísu mjög kurteislega, hvort henni þætti þetta smart, að henda svona út um gluggann. Svarið var: ,,ég þurfti að losna við sígarettuna" .. hmm...eru bílar þá ekki framleiddir með öskubökkum lengur ? .. Gott hún þurfti ekki að losna við fleira! Tounge ..

Hvað um það, það þyrfti nú að fara að sekta fyrir þennan sóðaskap, það virðist vera það eina sem fólk skilur - og bannað að fara í söfnun ef Hannes kastar einhverju á götuna og fær  sekt! .. Hananú and lovejú!


mbl.is Lögreglan rakti slóð sælgætisþjófanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú ert ................................

...gjöf Grin - já, já, þú! .. Farðu vel með þig í dag vegna þess að þú ert gjöf, gjöf Guðs til þín - og það er þitt, nr. 1,2 og 3 að fara vel með þessa gjöf ... ekki síst til að geta gefið áfram af þér. (Súrefnisgríman fyrst á þig svo á barnið).

Heart Megi þessi dagur verða þér góður dagur og lærdómsríkur Heart

 

...(p.s. þetta var örpredikun)

 


Lyf eru góð til síns brúks ... EN...

Þegar ég var að vinna við ummönnun á Eir tók ég eftir því lyfjamagni sem dælt var í gamla fólkið. Mjög mikið af þeim lyfjum voru einhvers konar ,,gleðipillur" ..

Ég hugsaði mikið um þessa ,,lausn" og veit að sumir virkilega þurfa á þessu að halda. Ég held samt að við gætum sparað í lyfjakostnaði með að hækka laun starfsfólksins og fá meira af ,,peppandi" fagfólki til að starfa á elliheimilum.

Því miður kann ég ekki á gítar (þó ég hafi reynt að læra).. en fann söngtexta ofan í skúffu. Safnaði fólkinu saman og við tókum okkur söngstundir. Allir á deildinni að undanskildum einum tóku þátt í þessum söng, hver með sínu nefi. Í framhaldinu var talað um forna frægð í kórum o.s.frv.. Þessar söngstundir voru auðvitað ekkert á dagskrá þessarar deildar skv. yfirskipulagi, en bara vegna sjálfstæðs vilja undirritaðrar voru þær settar á! ..

Það var gaman að vinna þarna, fátt er eins gefandi eins og að þiggja þakklæti gamals manns eða konu og dásamlegt ef hægt væri að lifa á þakklætinu einu samn en ég varð að hætta vegna þess að ég gat ekki lifað af 111 þúsundum á mánuði (háskólamenntuð kona)  þá einstæð með tvo unglinga að sjá fyrir.

Auðvitað er margt gert í þessum dúr inni á öldrunarheimilum en ekki næstum, næstum nóg. Viðtöl, upplestur á sögum, gönguferðir o.fl. væri eitthvað sem mætti gera enn meira af. Sérstaklega fyrir þau sem eru fótafær og svona ,,semihress".. 

Meira fjör og minni pillur er minn boðskapur! .. Líka fyrir okkur yngri..


mbl.is Lyfjakostnaður jókst um 5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1000 krónu afsláttur af Brasilíuvaxi á núinu! .. Jibbí eða þannig /&%$$(()))(&$%#"

Ég fæ alltaf póst frá Núinu og í morgun fékk ég ,,glaðning" .. 1000 krónur afslátt af Brasilíuvaxi. Vandamálið er að það þyrfti að borga mér mun meira en 1000 krónur til að fara í Brasilíuvax! Crying 

Er komin í pyntingabúðir, nú þegar, í Hreyfingu og það er nú ekki á það bætandi! Ef einhver þarna úti vill fá þetta "gjafabréf" upp á afslátt þá sendið mér netfangið ykkar og ég áframsendi það á viðkomandi.


Biggest Looser hvað ?

Ók í blíðskaparveðri niður í Álfheima, í gærkvöldi, þurfti aðeins að hringsóla þar sem engin voru bílastæðin og ekki leggur konan á gangstétt eftir að hafa úthrópað aðra fyrir að gera það. Fékk þó stæði eftir að ég fór að hugsa jákvætt um að eitthvað myndi losna. Gekk með íþróttatöskuna og hnút í maganum inn í hina nýju Hreyfingu. Þar var mér vísað áfram niður í völundarhús búningsklefanna. Þegar kom að því að loka skápnum, sem er gert með tölvubúnaði, byrjaði heilinn að brenna kaloríum, vissi ekki að ég væri að fara í heilaleikfimi líka. Shocking Það róaði mig að þarna voru fleiri konur sem voru að reyna láta líta út að þær kynnu á þetta lásasystem. Að lokum fékk ég góða hjálp og klikk - fötin læst inni í skáp 119. Man þetta númer ennþá því ég var svo hrædd við að gleyma númerinu! Líka endirinn á kennitölu sonarins.

Þessar konur sem ég hitti þarna voru að fara á sama átakanámskeiðið og ég, allt konur sem vildu missa 3-5 kíló og ekki gramm meir!

Settumst allar, fjörutíu talsins, inn í ískaldan sal þar sem beitt var frystimeðferð eða þannig. Við sátum og fengum fyrirlestur um að henda t.d. öllu óhollu úr ísskápnum. Ég hugsaði til Tryggva míns sem lifir á lúxusostum og parmaskinku, auk bjórsins og hristi höfuðið í huganum, en jánkaði svona líkamlega og brosti. (Úfff ..fyrsti óheiðarleikinn).

Eftir ískaldan fyrirlestur, var okkur smalað upp í hjólaherbergi og þar hófst pyntingin fyrir alvöru. Spinning - ó mæ god hvað afturendinn á mér var aumur eftir þessa svakalegu hjólatúra. Gelhnakkur er kominn efst á minn innkaupalista, ofar  möndlunum og hörfræunum sem við eigum að borða! Skylda að brenna í 300 mínútur á viku og borða ekki meira en 1600 kalóríur á dag.. 

Fengum tösku, brúsa, nuddtíma o.fl. í sárabætur fyrir misþyrminguna á hjólunum. Sumum fannst ekkert vont að sitja á hjólahnakki, ég virðist vera svona soldill aumingi.. eða kannski ,,The Biggest Looser" .. það kemur í ljós 5. maí þegar námskeiði lýkur... Fer aftur í kvöld ..

Gamanaðessu! Grin


Augljóslega ekki alltaf auðveldara að vera með typpi, þó hægt sé að pissa standandi!

Ég tók einu sinni niður þessa punkta úr kennslubók í félagsfræði 103 sem kennd er í mörgum framhaldsskólum: ,,Einstaklingur og samfélag" .. um gjald karlmennskunnar. Það sem er skáletrað hef ég bætt við.

Nokkrar fullyrðingar úr félagsfræðibókinni:  

Algengara er að karlmenn misnoti áfengi og aðra vímugjafa.

Uppeldisstofnanir eru sniðnar að þörfum kvenna.

Skilnaðir raska meira umhverfi karla en kvenna. (Algengara að karlinn flytji út).

Tíðari gestir í fangelsum og stofnunum (95% af þeim sem eru í fangelsi á Íslandi eru karlmenn).

Sjálfsvíg og ótímabær dauðdagi eru algengari hjá körlum.

Karlar látast frekar af slysförum.

Karlar búa við meiri einangrun.

Þeir virðast síður eiga trúnaðarvin en konur.

Karlar eru verr búnir tilfinningalega undir skilnað en konur.

Konur fá oftar forsjá yfir börnum - og jafnvel núna þegar sameiginleg forsjá er algengust, eru börnin með lögheimili hjá móður og því fær hún allar skattaívilnanir, meðlag o.fl. Jafnvel þó að börnin séu jafn mikið hjá báðum foreldrum.

Karlar leita sjaldan aðstoðar.

Of miklar hetjufyrirmyndir eru til fyrir karla - sem þeir geta ekki náð að líkjast.

 Allt of algengt er að ungir menn um tvítugt (yngri og eldri) séu óhamingjusamir, þunglyndir - sjá ekki alveg tilgang í neinu.... af hverju er það ? ..

Veruleikaflótti er mjög algengur hjá strákum - en hann felst í því að þeir ,,hverfa" inn í heim tölvuleikja, þar sem þeir leika stærra og merkilegra hlutverk en þeir gera í raunveruleikanum.

Hvers vegna er raunveruleikinn þeim svona erfiður ? .. Hvað erum við að gera rangt ?

 


Ég er Painter Smurf... Ég er original..

Ég tók strumpaprófið sem nú geysar hér á blogginu .. og kom út PAINTER SMURF .. sem passar að vísu ágætlega sko!

 Painter_Smurf

 

Hvaða strumpur ert þú ?  Taktu prófið !


Víkingur - gamall píanóleikari ?

Ég var að horfa á þáttinn hennar Evu Maríu þar sem hún rabbaði við Víking Heiðar Ólafsson, þennan sæta unga strák sem gæti orðið óskabarn þjóðarinnar vegna píanósnilli sinnar.

Eva María tók viðtal við Erlu Stefáns píanókennara, sem byrjaði að kenna honum fimm ára gömlum, en þegar hann byrjaði sagði Víkingur Erlu að hann kynni að spila á píanó. Hún sagði það rétt, það hefði verið í honum og hann hefði komið með þann ,,farangur" inn í þetta líf. Hann væri gamall píanóleikari, eldri en hún.

Það er ekki í takt við kristna trú að trúa á svona, en stundum finnst manni eins og sumir fæðist með svo þroskaðan anda að það hljóti að vera einhver farangur sem fylgi. Kristin trú (eða eins og sumir túlka hana) má heldur ekki verða sú spennitreyja sem heftir fólk frá víðsýni.

Í Biblíunni er talað um talentur (sbr. talents) sem eru auðvitað bara hæfileikar og hvernig við nýtum þessar talentur.

Hvort sem að við komum með farangur frá fyrra lífi eða erum fædd með talentur þá skiptir mestu máli að nýta það vel, lítið gagn er að farangri sem er lokaður í ferðatösku eða talentum í lokuðum kassa.

 


Við verðum í sippubandi.... húmor mömmu á (82.aldursári)

Ég hringi á undan mér og segi að ég komi eftir 20 mínútur. Þegar ég kem keyrandi að blokkinni er hún komin niður. Sest inn í bílinn og við ákveðum hverst skal fara, sem er yfirleitt í Hagkaup Skeifunni.

Hún er svolitið áhyggjufull því einhverjir ,,kallar í húsinu hennar" vilja fara að byggja bílskúra, en hún hún og aðrar konur í húsinu eru á móti þessum bílskúrsbyggingaáformum og því verður sko mótmælt á næsta húsfundi sem er í bígerð. Þetta mál hefur alla burði til að verða eitt þeirra mála sem móðir mín á eftir að missa svefn yfir, og hafa þau verið nokkur á undanförnum árum.

Á leiðinni leiðbeinir hún mér við aksturinn og finnst ég stundum vera að keyra eitthvað rangt. Shocking Hún vildi beygja inn á bílastæðið við Office One, en ég sting upp á að við keyrum örlítið lengra og beygjum þá til hægri. Við leggjum og göngum inn í Hagkaup, mamma stjórnar kerrunni og finnst gott að styðja sig við hana. Um leið og hún er komin með kerruna er hún orðin hættuleg. Keyrir yfir hámarkshraða og ég er á vaktinni að grípa inní ef fólk er framundan. Ég lít við í varalitarekkanum og þá er mamma horfin, komin framhjá álegginu, 1944 og öllu! Komin að jógúrtrekka og er að raða í kerruna. Ég spyr hvort hún vilji ekki kaupa rétti til að setja í örbylgjuna, ,,ha á ég að kaupa kerti" spyr hún, en heyrnin er ekki alveg nógu góð. Ég vil hún kaupi 1944 en hún segir það óþverra, hún vill bara hafgragraut sem hún getur sett í örbylgjuna.

Við komum að ísfrystikistunni og þar eru ísblómin hennar mömmu sem eru hennar uppáhaldsblóm. Það eru ekki til allar sortir - sem gerir hana ekki alveg nógu glaða. Hún finnur að vísu einn Cappuchino ísblómspakka og vill grafa undir hina til að vita hvort að hún finni ekki fleiri. Við látum nægja nokkra jarðarbjerja og Dajm. "Jæja, ég þarf ekkert meiri mat" segir hún. Mig vantar bara ný gleraugu." Ég fæ hana til að kaupa smá meira en ekki nóg. Mamma er ekki fyrir að eiga of mikið, samt á þetta að duga í viku!!.. Einn kleinupoki fær náðarsamlegast að fara í kerruna. Hún er ánægð á kassanum að innkaupin eru undir fimmþúsundkrónunum, því síðast fóru þau upp undir tíuþúsundkallinn.

Við komum við í gleraugnabúðinni og indæl stelpa finnur gleraugu við hæfi og gerir við gömlu gleraugun ókeypis. Yfir því var mamma glöð og fannst þetta mjög góð ferð.

"Jæja, nú verð ég í rólegheitunum á morgun."  Á morgun vill hún hvíla sig, búin að vera í miklu fjöri í dag. Hulda systir hafði komið í heimsókn til hennar með föt úr hreinsun og gefið henni handsnyrtingu.  Ég býð henni í hádegismat á morgun, en hún segist eiga mat til að borða í hádeginu en ekki um kvöldið. Ég spyr hvort hún vilji þá ekki bara borða sinn hádegismat um kvöldmatarleitið, en ,,nei - það er eiginlega ekki hægt" .. Þetta þýðir að hún VILL koma í kvöldmat og er að reyna að stýra því! Ég er frekari og ,,múta" henni með því að ég bjóði Evu líka og hún hafi gaman af því að hitta hana og langömmustrák. Okkur semst að ef Eva kemur komi hún, annars komi hún ekki neitt! .. Ég fer upp með henni með matinn, en hún vill helst losna við mig strax að því loknu. Ég kveð og segi, ,,jæja mamma mín, við verðum í bandi" hún brosir og segir ,,í sippubandi" og hlær.  LoL

Mamma min er algjör dúlla...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband