Hver man berklaplásturinn? ....Ái! ...

Úff það var verið að ræða berkla í sjónvarpinu. Ég er skírð í höfuðið á afasystur minni, Jóhönnu Magnúsdóttur sem lést 17 ára úr berklum.

Við sem erum komin yfir ákveðinn aldur munum eftir berklaplástrinum (og kannski gulu lýsispillunum) .. en ég man hvað ég kveið alltaf fyrir því að plásturinn væri rifinn af- Ái...Crying .. En það sem var líka leiðinlegt var að ég kom alltaf jákvæð út úr þessu berklaplástursprófi,  veit í raun ekkert afhverju því auðvitað var ég ekkert með berkla! ... var bara með einhverja svörun við þessu sem virkaði svona!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Ég man eftir gulu lýsispillunum. Man eftir því að fá svona í skólanum, rændi meira segja alltaf þegar ég gat einni eða tveim auka úr glasi í kennaraborðinu.. *skammastsín*. En ég man ekki eftir plástrunum sem tengjast berklum.

Tiger, 26.2.2008 kl. 19:17

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Já, lýsispillurnar voru hálfgert sælgæti! .. Örugglega margir sem læddust í þær!  .... Veit ekki hvaða ár hætt var að ,,plástra" börn en þú Tigercopper ert eflaust yngri en undirrituð ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.2.2008 kl. 19:20

3 identicon

Jamm man eftir plástrunum!! Mjög óskemmtileg minning!!!  Man hinsvegar ekki eftir Lýsispillunum.

Þráinn Maríus (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 19:24

4 Smámynd: Hugarfluga

Jiminn, ég var búin að gleyma gulu lýsispillunni! Hahaha ... ó mæ god ... flashback!

Hugarfluga, 26.2.2008 kl. 19:34

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Skemmtilegt að hugsa til þessara gulu, þeim var útdeildt í bekknum þegar maður var í grunnskóla og fylgst með hvort hún færi ofaní mann eða í pennaveskið.

Marta B Helgadóttir, 26.2.2008 kl. 21:21

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ójá ég man sko eftir báðu, var ekki einhverju illa lyktandi kremi smurt á plásturinn? og lýsispillurnar ógeðslega vondar

Huld S. Ringsted, 26.2.2008 kl. 22:09

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Getur þú reiknað út aldurinn miðað við lýsið. Ég fékk slurk af volgu lýsi úr könnu. Man hvað við vorum hræddir við litlu konuna með könnuna í Melsskólanum. Ég held að hún hafi fengið vinnuna vegna hve lág hún en hæðin passaði akkúrat til að hella lýsið en við sátum og réttum úr hálsinum eins og venjulegir fuglsungar. Meira að segja setti hún stúrin stundum upp í kok. Þessir berklar voru annað mál og eins gott að muna það til varnar.

Valdimar Samúelsson, 27.2.2008 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband