Föstudagur, 21. nóvember 2008
Einu ári nær eilífðinni ..
Í dag færðist ég einu ári nær eilífðinni eins og lille bror i Danmark orðaði það svo skemmtilega í morgun.
Fékk morgunsöng frá Tryggvunum í morgun klukkan 7:30, að vísu var sá yngri hálfsofandi, og perlueyrnalokka í gjöf, fallega og klassíska. Einkasonurinn hringdi svo fljótlega upp úr því og svo hringdi litla fjölskyldan og söng afmælissönginn í símann; Eva, Henrik, Máni og litla krúsulína í bumbunni hefur eflaust tekið undir fyrir "amma sín".. Talaði við Völu mína í gær, en klukkan hjá henni er 3 að nóttu í Flórídunni. Hún er væntanleg 17.desember heim í heiðardalinn!
Í hádeginu ætlar Tryggvi eldri að bjóða mér á VOX, úúúú.. en hann er að fara að halda árshátíð með badmintonfélögunum í kvöld (strictly guys-en verður pikkaður upp áður en þeir fara á Vínbarinn, Thorvaldsens eða einhvern svoleiðis veiðistað ) .. en ég ætla ég að taka litlu fjölskylduna, Tobba og Tryggva yngri á barnvænan matsölustað, svo það verður tvisvar út að borða fyrir mína í dag, og það í miðri kreppu. ... borða bara grjónagraut um helgina í staðinn!
Eigum öll góðan föstudag.
Athugasemdir
Til hamingju með daginn Jóhanna mín,og hafðu hann góðan og skemmtilegan.
Rannveig H, 21.11.2008 kl. 08:26
Innilegar hamingjuóskir með með daginn Jóhanna..það var gaman að hitta þig í eigin persónu þarna um daginn.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.11.2008 kl. 08:28
Innilega til hamingju með daginn
M, 21.11.2008 kl. 08:42
Takk, takk og takk! .. Sömuleiðis gaman að hitta þig Katrín!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.11.2008 kl. 09:19
Innilegar hamingjuóskir. Njóttu dagsins.
Laufey B Waage, 21.11.2008 kl. 09:22
Bestu afmæliskveðjur Jóhanna mín. Njóttu dagsins.
Ía Jóhannsdóttir, 21.11.2008 kl. 09:35
Mundu ad madur yngist thegar madur færist nær eilifdinni!
Thad hefur ekkert med hringsnuning himintunglanna ad gera eda thann tima sem madur les af urinu sinu.
Lille bror (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 09:37
Til hamingju með daginn elskuleg
Jónína Dúadóttir, 21.11.2008 kl. 09:55
Takk stelpur mínar, ætla mér að njóta hans út í ystu æsar.
Líst vel á þessa kenningu þína lille bror.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.11.2008 kl. 10:00
Innilega til hamingju með afmælið Jóhanna mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2008 kl. 10:35
Innilega til hamingju með daginn ! Njóttu hans vel
Sunna Dóra Möller, 21.11.2008 kl. 10:42
Til hamingju elsku mamma/amma mín
Fyrir mér ertu bara 27
Fyrir mér fæddist þú þegar ég fæddist...eða hvað.. er ekki sagt að börn haldi að foreldrar sínir hafi alltaf bara verið mömmur og pabbar... Þá erum við nú öll bara unglömb ennþá
Sjáumst í kvöld, LUV €v.
Eva Lind Jónsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 10:44
Takk, hehe.. Eva góð, ég kaupi það alveg að ég sé 27! ..
Takk Sunna og takk Ásthildur!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.11.2008 kl. 10:52
Mín kæra, innilega til hamingju með afmælið og njóttu dagsins.
Ég á grjón-auka- ef þú nærð svo ekki að hafa grjónagraut alla helgina...
Eva Lind er alveg með þetta !
Ragnheiður , 21.11.2008 kl. 10:55
Innilega til hamingju með daginn, Jóhanna mín. Vona að hann verði þér notalegur og skemmtilegur.
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 11:49
Til hamingju með daginn kæra afmælisbarn. Njóttu dagsins
Sigrún Jónsdóttir, 21.11.2008 kl. 12:23
Sæl og blessuð
Til hamingju með afmælið.
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.11.2008 kl. 12:39
Jóga mín, innilega til hamingju með daginn við erum eins og eðalvín; verðum bara betri með aldrinum.
Haggi?
Rut Sumarliðadóttir, 21.11.2008 kl. 12:58
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Jóga, hún á afmæli í dag, (með sínu lagi). Til hamingju með daginn og stækkandi fjölskyldu. Þú verður bara ríkari og fallegri með árunum
Hafdís Odda (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 13:29
Takk Ragga, betri helmingurinn er búinn að birgja okkur upp af grjónum fram á næsta ár a.m.k. Hann heldur nebbnilega að hann kaupi aldrei rétt grjón, svo hann keypti bara ýmsar sortir, en ég er svolítið sérvitur varðandi hrísgrjón! hehe ..
Takk líka Ásdís, Sigrún og Rósa, fyrir kveðjuna ykkar.
Jú, Rut - sammála erum alltaf að verða betri og betri!
Takk fyrir sönginn Hafdís Odda, og takk fyrir kveðjurnar og komplimentið! ..
Ég er ung í anda .. því ég gleðst eins og krakki yfir afmæliskveðjunum.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.11.2008 kl. 13:52
Til hamingju með daginn Vonandi nýtur þú hans í botn
Kv, Nana (Evu vinkona)
Nana (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 13:55
Til hamingju með daginn í annað skiptið Jóga mín..
Ég hafði hugann með þér í dag, eigum að skila ritun um einhverja áhrifamikla manneskju, en hún þurfti að vera fræg og það þyrfti fleiri heimildir um hana.. svo ég þurfti að velja aðra!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.11.2008 kl. 15:34
Þú ert dýrleg Róslín, ...takk fyrir kveðjuna og hjara- knúsið á msn-inu í morgun og takk fyrir þetta hér. Ég verð upp með mér að þér skyldi detta í ég í hug. Verst ég er ekki fræg og því ekki heimildir til um mig!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.11.2008 kl. 15:50
Það eru reyndar heimildir um þig á Wikipedia... fékk mig til að hlæja þar sem ég gat sko sýnt kennaranum að þú varst víst fræg!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.11.2008 kl. 17:15
Flott mælt hjá Rut, eldumst vel eins og eðalvín.
Til hamingju með daginn elsku vina
ljós og gleði til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.11.2008 kl. 19:54
Til hamingju með daginn og vonandi var hann góður. Eigðu gott kvöld líka.
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 21.11.2008 kl. 20:26
Innilega til hamingju með daginn, eða það sem eftir er af honum.
Hafðu það gott
Anna Guðný , 21.11.2008 kl. 21:52
Hóhó ... stelpurassinn á bara ammmæli sko! Til lukku með daginn skottið mitt! Ég reikna með því að hún hafi haldið dáltið uppá tímamótin? Fáum náttla einhverjar sögur later - og vonandi myndir af gellunni unglegu! Vonandi var dagurinn góður, kvöldið gott og nóttin enn betri ...
Sendi duglegt afmælis- og vinarknús með kram og kreisti all over!
Tiger, 21.11.2008 kl. 22:58
Takk innilega öll fyrir allar afmæliskveðjurnar, .. sit nú bara ein heima að sauma núna, eða þannig.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.11.2008 kl. 23:48
Innilega til hamingju með daginn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.11.2008 kl. 23:59
Sæl Jóhanna.
Hjartanlega hamingjuóskir til þín
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 10:10
Þakka ykkur Jenný mín og Þórarinn!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.11.2008 kl. 14:32
Til hamingju!!!
Einu ári nær Game over :)
DoctorE (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 16:56
Takk fyrir DoctorE, grallaraspói.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.11.2008 kl. 14:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.