Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Jæja .. spara og spara og svo bilar bíllinn :(
Ég er búin að vera að setja upp þvílíkt sparnaðarplan, banna Tryggva að kaupa parmaskinku, camembert og annan lúxus, því nú skuli tekinn upp sparnaður í heimilishaldi. Er komin með allt bókhaldið í Excel ... en svo....fór ég með Honduna mína (árgerð 2005 og ekinn rúml. 30 þús km) í skoðun því ég heyrði eitthvað óeðlilegt hljóð.
Þeir voru að hringja frá verkstæðinu og segja að það þurfi að skipta um legur í gírkassa. Áætlaður kostnaður viðgerðar 158.000.- krónur !!!! My God hvað má kaupa mörg parmaskinkubréf fyrir það??? eða kjúklingabringur m/40% afslætti ?? ... en það er að vísu ekki öll nótt úti, því á morgun ætla ég að tala við einhvern sem "ræður" því það er kannski ekki alveg normal hvað þetta skemmist fljótt og bíllinn svona lítið keyrður?
Kemur í ljós... verð með "follow up" ..
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Færsluflokkar
Tenglar
Bloggarar
Ýmsir sem blogga líka
Eva, Vala, Tobbi
Börnin mín þrjú - Öll stór ekkert smátt!
- Eva sæta, dóttir og djammari Eva og vinkonur blogga
- Fyrirsætan Vala í Gululínunni
Barnasíður
Börn vina og ættingja
- Ömmustrákur Ísak Máni ömmustrákur
- Ísold og Rósa
Bloggvinir
- johannavala
- lottarm
- sunnadora
- roslin
- amman
- jodua
- jenfo
- hross
- iaprag
- asthildurcesil
- biddam
- jonaa
- laufeywaage
- rutlaskutla
- liljabolla
- tigercopper
- rannveigh
- ringarinn
- skordalsbrynja
- lillagud
- lehamzdr
- ingibjorgelsa
- fjola
- danielhaukur
- gunnarggg
- ingibjorg-margret
- baenamaer
- zeriaph
- siggith
- thoragud
- arnisvanur
- orri
- geislinn
- sigrg
- svavaralfred
- toshiki
- vonin
- beggagudmunds
- ffreykjavik
- jevbmaack
- jakobk
- hallarut
- heidathord
- dapur
- goldenwings
- konukind
- aevark
- brandarar
- grumpa
- ingabaldurs
- joninaros
- gudni-is
- kaffi
- olafurfa
- alexm
- hlynurh
- krossgata
- joklasol
- liso
- malacai
- iador
- sigurdursig
- prakkarinn
- skolli
- photo
- robertthorh
- velur
- steinibriem
- perlaoghvolparnir
- veravakandi
- sms
- thordis
- svarthamar
- salvor
- konur
- vga
- vonflankenstein
- vefritid
- adhdblogg
- audurproppe
- bailey
- baldurkr
- bjarnihardar
- gattin
- bryndiseva
- cakedecoideas
- draumur
- skulablogg
- drum
- himmalingur
- holmfridurge
- h-flokkurinn
- ktomm
- katrinsnaeholm
- olimikka
- rafnhelgason
- rosaadalsteinsdottir
- sigurbjorns
- hebron
- saedishaf
- zordis
- thj41
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Aaargh, óþolandi með þessa bíla, ég er viss um að þeir segja að þetta sé AF ÞVÍ að bíllinn sé svo lítið keyrður, þeir finna alltaf einhverjar afsakanir.
Vona að þú náir samt að semja eitthvað við þá og getir keypt góðgæti fyrir mismuninn
Auður Proppé, 3.2.2009 kl. 15:58
þetta hlýtur að vera galli ......átt að fá þá í Bernharð að taka þennann kostnað....
Einar Bragi Bragason., 3.2.2009 kl. 15:59
Takk fyrir komment Einar Bragi, ég ætla að sjá hvað þeir segja á morgun.
Vona hið besta Auður, hef alltaf fengið súperþjónustu og almennilegheit hjá þeim - það hlýtur að halda áfram. ..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 3.2.2009 kl. 16:27
Takk Gunnar, gott að fá faglegt álit!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 3.2.2009 kl. 17:18
Grrrr......skelfilegt þegar bíllinn bilar hjá manni. Reyndar erum við óskaplega heppinn með okkar bíl, hann er orðinn 10 ára þessi elska og hefur ekki bilað mikið.
En ég tek undir með þeim hérna að framan, þetta er engin ending á gírkassanum í 3-4 ára gömlum bíl!
Vonandi fer þetta vel hjá ykkur
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 18:02
Getur verið að þú hafir skipt aðeins of oft um gír?
Emil Hannes Valgeirsson, 3.2.2009 kl. 18:58
Gangi þér vel
Jónína Dúadóttir, 3.2.2009 kl. 19:55
Bílar, ólukkanspamfílar...
Maður á bara að fá sér veglegt hjól með nagladekkjum og hætta að eyða í bíla..
segir sú sem lætur keyra sig allt!
Vonandi verður kostnaðurinn minni, þessvegna barasta enginn, en vá, gætir selt þennan bíl og fengið bara annan ágætis bíl í staðinn fyrir þennan pening!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.2.2009 kl. 20:31
Kannski er einhver "bílaflensa" að ganga núna Bremsurnar fóru á mínum bíl í síðustu viku
Sigrún Jónsdóttir, 3.2.2009 kl. 21:53
Þér hefði verið nær að tala við kallin minn, hann er snillingur í bílaviðverðum og tekur lítið fyrir. Kær kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2009 kl. 22:36
Málið er í skoðun hjá elskulegum þjónustustjóra - ég fæ símtal-bíð spennt...
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.2.2009 kl. 10:23
Það er eins og náttúrulögmál stundum ef maður ætlar að fara að lifa spart.
Þá klikkar eitthvað og það bigtime.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.2.2009 kl. 11:20
Veit af kallinum þínum núna Ásdís! .. Takk fyrir athugasemdir öll, tek undir þetta Jenný (er þetta "Power of Attraction"??) ..
Búin að fá símtal og verkstæðið ætlar að taka á sig varahlutapartinn um 50 þús. og ef einhver galli kemur í ljós eitthvað meira. Viðgerðamaðurinn sagði að þetta gæti ekki verið of tíðar gírskiptingar hjá mér Emil!!!!.. haha, .. ég spurði hann!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.2.2009 kl. 11:55
Jæja við fengum loksins viðgerðarreikninginn á okkar bíl. Heil 433.000
skrattans bíldruslur !
Ragnheiður , 4.2.2009 kl. 15:53
ÁI !!!
Skrítið með gírkassann.. þú sem ert soddan fyrirmynndarbílstjóri... ... frk. utanviðsig
Vertu bara hörð... eða sendu Huldu til þeirra ... haha.. þá færðu örugglega þínu framgengt.. eða allavega hennar
Eva Lind Jónsdóttir (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 15:56
Ómægod Ragnheiður!!!.. svo er ég að væla
Eva, ég veit ég keyri oft of hægt fyrir þinn smekk og gleymi stundumað skipta um akgrein og komin uppí Breiðholt áður en ég veit af ...
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.2.2009 kl. 16:08
Hrikalega er þetta dýr viðgerð! Eitthvað bogið við þetta. Ég myndi bara segja við viðgerðarmanninn.........ég borga 30 þús og málið er dautt
Margrét St Hafsteinsdóttir, 4.2.2009 kl. 19:53
Já, láttu þá hafa það Jóhanna og berðu nafn þitt með réttu.
Halla Rut , 4.2.2009 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.