Andvöku-og væmnisblogg.... skrifað sl. nótt en birt núna.

Ég var að kveikja á kerti á síðunni hans Himma hennar Röggu. Himmi hennar lést fyrir aldur fram fyrir rúmlega ári síðan og það snertir við mér þó ég hafi ekki þekkt hann. Mamma hans heldur minningu hans á lofti og gerir það svo fallega. Þegar ég kveiki á kerti á síðunni, þá hugsa ég margt. Ég hugsa til Röggu, sem ég hef bara hitt á blogginu og er ótrúlega skemmtileg á prenti og stórfyndin þegar sá gállinn er á henni. En ég finn líka sorg hennar.  

Þegar ég kveiki á kerti þá hugsa ég líka með þakklæti fyrir börnin mín og alla þá ættingja og vini sem umvefja mig, og ég fæ að hafa hjá mér. Það er ekkert sjálfsagt eða sjálfgefið í þessum heimi. Ég hugsa um nemendur mína, sem eru einmitt margir á aldrinum hans Himma og eiga, allt of margir, við erfiðleika að stríða. Glíman við lífið er oft þung.

Ég hugsa líka til þeirra sem ég sakna; pabba sem fór fyrir rúmlega 39 árum, já næstum jafnmörgum árum og hún lsystir mín sem átti fertugsafmæi afmæli í gær... úfff... nú varð ég að hætta að skrifa því ég sá allt í einu ekkert í gegnum tárin. Ótrúlegt hvað hægt er að gráta einn pabba mikið! Svo hugsa ég líka um Önnu Kristínu frænku og Unni vinkonu mína sem dóu báðar á þessu ári. Mig dreymir Unni svo mikið, og mér finnst hún alltaf vera hjá mér, enda tilkynnti ég henni það á dánarbeðinu að við yrðum alltaf saman.

Stundum fer ég í fýlu út í hana, vegna þess að hún "stakk mig af".. en ég næ henni einhvern daginn, hef alltaf gert það. Mér liggur ekkert á, hef mínum skyldum að gegna og mitt líf er gott hérna megin. Mæti í "pikknikkið" á eilífðarströndinni seinna þegar "minn tími kemur" eins og hún nafna mín Sigurðardóttir sagði í den.

Hér er svo eitt margra vasaklúta lag sem minnir mig á samband okkar Unnar...

Heart


Lotta flotta fertug í dag, 19. október 2008!

Charlotta Ragnheiður Magnúsdóttir, litla systir mín varð fertug í dag! Ég mætti til hennar um hádegið, en þá voru hún og Sara dóttir hennar og Hulda systir búnar að útbúa fullt af góðgæti.Ég mætti sem "selskabsdama" og fékk að útbúa nokkra ostapinna, féll að vísu á prófinu, þar sem ég ruglaðist á einum pinnanum á ananas og osti, svo ostapinninn varð ananaspinni með ólífu.Stelpupartý hófst síðan klukkan 14:00 en við vorum um 25 dömur á aldrinum 16 til 82 ára... og endaði uppúr klukkan 17:00 .. ferlega gaman og mikið hlegið. Óska elskulegri systur minni innilega til hamingju með afmælið!

Tók auðvitað fullt af myndum, og nokkrar sérlega flottar af henni, en enn er myndforritið að stríða mér svo ég set hér bara afmælisköku!

 

Smá myndasería frá verslunarleiðangri í USA ... þeir klipptu ekki kreditortin þar (því miður)

Florida_oktober 2008 004

Vala vopnuð vatni, hliðartösku og bíllyklum klár í verslunarleiðangur með mömmu!

Florida_oktober 2008 006

"Mamma" mætt með hliðartösku og visakort, klædd í fánalitunum til að undirstrika að ég er íslensk (eða þannig).

Florida_oktober 2008 007

GPS-ið stillt á búðina .. allt er nú hægt!

Florida_oktober 2008 011

Borðuðum Asian lunch á Pei Wei  til að hlaða batteríin ..

Florida_oktober 2008 012
Bíllinn þurfti sitt líka ..
.... hér hætti myndforritið að virka svo myndir af Mollum og mátunarklefum bíða seinni tíma! LoL
Þetta var s.s. í Ameríku í vikunni, en í kvöld er ég boðin í saltfiskveislu, nammi, namm, á morgun fer ég í óvissuferð með samstarfsfólki (sem ég reyndar veit allt um) og hinn daginn fer ég í konuafmæli til systur minnar ....  "Never a dull moment" ...
Have a nice weekend...

Frá nauðungarlögum til faðmlaga..

Kom heim eftir langt ferðalag í morgun, svalur íslenskur vindur tók á móti mér, en svo komu þeir tveir:Tryggvarnir (53 og 5 ára - eins og í Séð og Heyrt) með heita faðma. Ég hafði kvatt Völu og Jake á flugvellinum og ég var búin að ákveða að grenja ekki, þó mig langaði til þess. Það er alltaf svo skrítið að kveðja börnin sín. Fékk meira að segja tár í augun þegar ég kvaddi Simba, litla hundinn þeirra, en á milli okkar kviknaði strax gagnkvæm "ást".. Ég leit á póstinn minn í morgun, eftir að Tryggvarnir héldu á brott til skóla og vinnu og sá þá að ég var búin að fá nokkur bloggfaðmlög, og eftir að ég kannaði það betur sá ég að þetta var nýr "fítus" á blog.is.

Þakka fyrir að ekki voru send á mig nauðungar-eða herlög. Það var fleira í pósthólfinu, en Inga frænka, systir pabba, sendi póst á stórfjölskylduna að núna væri tími til að hittast og auðvitað er ekkert yndislegra en að smala saman mannauðnum þegar annar auður lekur niður í ræsið (goes down the drain). Ferðin út var vel heppnuð en full stutt auðvitað miðað við langt flug. Ég svaf fulllengi í dag, þannig að ég gat ekki sofnað og er því að blogga smá. Valan mín og Jake tóku glæsilega á móti mér og létu mér líða eins og drottningunni af Saba! Skemmtileg stemmning í þessum bæ; Delray Beach, en á morgnana stökkva þau út á Starbucks með Simba í bandi, setjast niður og ræða pólitík og önnur mál með amerískum Ítölum, eða ítölskum Ameríkönum. Tounge Ekki ósvipað og í heitu pottunum hér í Reykjavík, þar eru að vísu mest Íslendingar! Ætlaði að láta hér fylgja myndir af fallega fólkinu í Ameríku og voffanum, en kerfið að stríða mér svo ég geymi það. Sendi hér eitt stykki faðmlag á alla sem lesa!


Bloggad fra USA partur III - Vid audmennirnir i Florida

Heyrst hefur ad sumur audmadurinn se farinn af landi brott. Thegar dottir min og tengdasonur sottu mig a Sanford flugvoll a fostudagskvoldid, sagdi hun mer ad hun hefdi rekist a thjodthekktan einstakling i Orlando, sa er kenndur vid Bonus.

Vid audmennirnir flyjum  s.s. til Florida. LoL Ad visu er minum audmannsferli lokid, thar sem eg versladi mer jolakjol, nattfot, sko og nokkrar gjafir i gaer. En neyddist til ad fara ad versla thar sem rigndi her kottum og hundum!

Nyja myndavelin var ospart brukud, alveg fra thvi ad vid logdum af stad i rigningunni, inn i matunarklefa i Marshalls...  endudum a ad saekja Jake i vinnuna, svo eldadi eg Paellu - lesist Paeju - ad spaenskum haetti, nammi, namm.

Solin skin i dag, skyjad med koflum en 30 stiga hiti, svo ekki vaesir um okkur. AEtlum ad rolta her um hverfid - fa okkur kaffi eda frappuchino a Starbucks og leggjast ut a patio i solbad.

Nenni ekki ad hafa ahyggjur i dag, thaer mega koma sidar. Wizard

Have a nice day.


Bloggad fra USA partur II, afmaeli tengdasonar 12.okt. og synt i sjonum

Takk fyrir kvedjurnar sem eg hef fengid herna ut, kaeru bloggvinir.

Eg finn thad thegar eg er buin ad vera her i nokkra daga, ad mer lidur eins og eg hafi verid undir thungu fargi heima, andrumsloftid er svo eitrad ad thad var ordid erfitt ad anda thvi ad ser.

Tharf ad fa mer filter adur en eg kem heim - en thad er a fimmtudagsmorgun.

Jake Nelan, tengdasonur minn vard 26. ara i gaer. Hann er bara yndi thessi drengur. Eg er svakalega heppin med tengdasyni, annar fra Danmark og hinn fra USA, held ad sonurinn muni fa ser eina islenska, en aldrei ad vita! .. ekki ad that skipti hofudmali.

Vid forum a strondina og syntum i brjaludum oldum, svo my hairdoo was kind of salty.  Heldum svo orlitla afmaelisveislu thar sem Vala eldadi Tikka Masala kjukling, nammi, namm, en svo var sukkuladikaka ur budinni og is i eftirmat.

Thessi baer, Delray Beach, er yndislegur, svona vintage feeling yfir honum. 30 stiga hiti og sol uti nuna. Eg tharf ad fara varlega i solinni, er thegar buin ad grilla adeins og mikid a mer vinstri hlidina! LoL

Versladi Olympus myndavel i gaer, that er allt og sumt, thetta verdur ekki big shopping spree, eins og gefur ad skilja.

Knus og kossar heim til Islands.


Bloggad fra USA, partur I I'm alive!

Ja, thetta eru alltaf fyrsta hugsun thegar eg er lent eftir flug, I'm alive! .. er ekki beint flughraedd, en virdist eiga erfitt med ad treysta okunnugu folki vid styri, hvad tha flugvelastyri. Crying Ferdin gekk mjog vel, sat hja vinalegum saenskum midaldra (eldri en eg) hjonum. Nyja flotta sjonvarpsgraejusaetasystemid var bilad svo ekki horfdi eg a bio a leidinni.

Las bok, 208 bls., Ut ad stela hestum, eina Viku, eitt Sed og Heyrt, eitt DV og einn Mogga og red krossgatuna i vikunni. Eg held eg lesi ovenju hratt.

I saetarodinni vid hlidina a mer, voru fullordin hjon, hann ordinn hifadur a thann mata ad flugfreyjan thurfti ad segja ad brennivinid vaeri buid. Hann for med baenirnar fyrir okkur, Nu legg eg augun aftur og hvatti flugfreyjuna til ad fara med fadirvorid, blessadi hana og hennar fjolskyldu alla! .. Kannski var thad vegna baenhita thessa manns ad svo for sem for, vid sem sagt lentum heil a hufi!

Tollarinn a Orlando var thettur saetur ungur madur, stressadri en eg. Tok samt af mer fingrafor og mynd um leid og hann kvartadi yfir hvad tolvan hans vaeri slow. 

Vala, Jake og barnabarnid, hundurinn Simbi, toku vel a moti mer, solbrun og saet - lika Simbi.

Okum i 3 tima nidur til Delray Beach, og vid toludum um efnahagsastandid og how we could make things right in Iceland. Ja, ja, engin minnimattarkennd. Vid thrju vorum eiginlega buin ad bjarga efnahagsastandinu (ad visu bara munnlega) a leidinni hingad nidur Floridaskagann.

Ibudin sem thau bua i er vaegast sagt falleg, tengdamamma i serherbergi, m sina tolvu, eins og gloggir lesendur hafa kannski tekid eftir. 

Well, love and hugs from USA .. especially to my family.

Eg missi alltaf nidur tungumalid um leid og eg er komin a erlenda grund, eda thannig.

Er farin ad sofa aftur zzzzzzzzzzzz, klukkan er bara halffimm og eg hef adeins sofid i 5 tima

Over and Out  


Frjáls og fróð þjóð ..

 

Þreyta er komin í þjóð,

því fossar blóð.

Beisk undir breskum bölmóð,

bíður hún þrautseig og þolinmóð.

Þreyjum, þraukum, missum ei móð,

þó mæði á neikvætt fréttaflóð,

sem fari um Kári í jötunmóð. 

Verum í hjarta hlý og góð

vináttu tendrum glóð

frjáls og fróð

   þjóð

Heart


Án orða ...

mörgæs

mbl.is Atburðir í Bretlandi felldu Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bros og knús í hvert hús ....áskorun!

Ég var að lesa áskorun frá Júlíusi bloggara um að blogga um eitthvað jákvætt, og hef hér með tekið áskorun.

Fann þessa sætu meðfylgjandi mynd af bleiku brosandi húsi sem er næstum með svona "fullnægingarsvip"  - hefur a.m.k. fengið nóg að borða, svo ég fari ekki út í extreme. Talandi um extreme þá horfði ég á "Home extreme makover" eða hvað sem það heitir, - leiðréttið mig endilega,  í fyrrakvöld og grét mörgum fögrum gleðitárum.

Þar hafði fjölskyldufaðirinn dáið frá sex börnum, en hann hafði einmitt verið að standsetja hús fjölskyldunnar þegar hann hafði veikst vegna myglusvepps sem lagðist á lungu hans! .. Úff..

Home makover liðið kom og byggði ekki aðeins nýtt hús fyrir mömmuna og börnin, heldur hálfgerða höll. Þetta var alveg fimm vasaklúta þáttur, ferlega kjút.

Í gærkvöldi átti ég yndislegt kvöld með kvikmyndaklúbbsvinum mínum, í kvöld fer ég í saumaklúbb með vinkonum mínum frá tja..sumum frá 13 ára aldri.

Ég er þakklát fyrir fjölskylduna mína - sem er yndisleg, þakklát fyrir vini mína sem eru líka yndislegir, og ykkur líka (ofcourse) bloggvinir sem eruð líka yndisleg, já, já þú líka Róslín.. LoL ..

Ég er ekki svöng, á þak yfir höfuðið, hef vinnu og heilsu (svona nokkurn veginn a.m.k. - það á að fara að bæta úr því með að rífa úr mér hálskirtlana til að bæta úr því) ... Á föstudag er ég að fara að heimsækja litlu stelpuna mína og gleyma mér aðeins með henni á Delray Beach Florida! úfff.. hvað ég hlakka til.

Þetta var s.s. jákvæðnibloggáskorun sem ég lýk hér með og kasta knúsinu áfram Kissing.. bros og knús í hvert hús.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband