Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Allir verndarenglar (ekki vítisenglar) kallaðir til...
Einkasonur minn og mömmustrákur er kominn á mótórhjól. Hann er búinn að eiga það í tja..tvær vikur og BARA búinn að fara einu sinni á hliðina, rispa hjólið, hjálminn og síðast en ekki síst sjálfan sig. ...
Ég má eiginlega ekki hugsa mikið um þetta og verð að þvinga mig til að hugsa svakalega jákvætt, EN svona ,,just in case" þá bið ég allar helgar vættir að vernda strákinn og óska að hann fari varlega og þeir sem í kringum hann aka....
..Af mér er það svo að frétta að ég er að drukkna í vinnu og mun eflaust drukkna í rigningu á Fimmvörðuhálsi um helgina.. "Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna" .. Æ samt gaman að hafa mikið að gera, heppin að geta gengið, tilfinningin eftir gönguna er ólýsanleg og svo er rigningin svo svakalega góð fyrir húðina! .. Taka jákvæðnina á þetta...
Takk fyrir skemmtileg komment hér við færsluna á undan
Ók bifhjóli á húsvegg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Mánudagur, 11. ágúst 2008
Bullað í bloggfríi....
Er að bíða eftir að verða sótt, nenni ekki að vinna lengur enda heilinn hættur að starfa. Eflaust vegna hálfsmánaðar hreyfingaleysis, en eina tilhneyging mín í átt til líkamsræktar í dag var að skoða heimasíðu Hreyfingar og vita hvort það væru ekki fleiri Barbabrellunámskeið fyrir mig. Finnst strengurinn í buxunum vera farinn að þrengja að aftur. ..
Þetta er sko alveg þúsund prósent rétt að sálin græðir á því að líkaminn hreyfi sig. Samstarf anda og líkama er pjúra snilld. Það er bara oft erfitt að segja líkamanum það, hann vill vera svo fj.... latur. .. Sálin í rokna stuði: ,,komdu, komdu, vertu svona súperdúperdugleg að hreyfa þig eins og skokkkonurnar í Elliðárdal sem þú öfundar BIG TIME .. en, stundum kemur bara allt fyrir ekki. Líkaminn haggast ekki, tja..nema kannski til að kíkja inn í eldhússkáp hvort að þar sé ekki eitthvað girnilegt.
Annars erum við að fara að ganga, ekki Einvörðuháls næstu helgi, heldur Fimmvörðuháls (sorrý lélegur húmor) hvorki meira né minna. Ég hlýt að verða sérlega vernduð á heilanum eftir næstu helgi, en veit ekki hvort að það sama muni gilda um fæturnar.
Einvörðuháls er ekki til, ekki frekar en Eyktarás. Við þekkjum öll Eyktarás úr laginu, "Einu sinni á ágústkvöldi.... " og ég var upplýst um það sl. helgi að Eyktarás væri ekki til (nema í Seláshverfi) en það væri bara þarna í textanum því það rímaði við bolabás.
Binni bróðir kom inn á MSN-ið mitt áðan og spurði hvort ég væri ,,yfirnáttúrulega" hress! ..og var augljóslega að vitna í bloggið mitt hér á undan. Köllum finnst yfirleitt allt tal um eitthvað yfirnáttúrulegt fyndið .. eða svona flestum körlum sem ég þekki.
Well.. nú er þetta að komast á það stig að það mun engin/n nenna að lesa þessa langloku. Nammmm.. talandi um langlokur slurp.. hvað ég er orðin svöng. ..
Sjáumst í Elliðárdalnum á skokkinu (eða þannig)...
Er að hugsa um að senda líkamann einan að hlaupa ... .. en nú er ,,kallið" komið eða réttara sagt kallinn svo best ég loggi mig út og pakki viðhaldinu (tölvunni) niður.
Líkamsrækt verndar heilann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Sunnudagur, 10. ágúst 2008
Hvað er yfirnáttúrulegt?
Sunnudagsmorgnar eru upplagðir bloggmorgnar, bloggfríið mitt ,,í bili" eins og ég orðaði það er liðið (3 dagar) - en ég stefni á að vera helgarbloggari (svipað og helgardrykkjumanneskja). Sjáum til með það.
Ekki vil ég gleyma að þakka ykkur yndislega krúsílega fólk sem hefur verið að lesa bloggið mitt og sérstaklega ykkur sem hafið gefið ykkur tíma til að setja inn uppbyggilegar athugasemdir. Þið eruð náttúrulega bara ekkert nema frábær og ég er þakklát að eiga svona góða bloggvini.. .. en út úr væmninni ..
Ég hugsa og vinn alltaf best og mest á morgnana, ég er ekki í vinnunni minni núna svo ég tek engan tíma frá henni, allir sofandi hér nema ,,moi".. svo það er yndislegur friður.
Það sem ég var að hugsa um í morgun þegar ég vaknaði var 1) trúmál 2) fjölskyldumynstur 3) Gay Pride 4) ,,yfirnáttúrulegir" hlutir..
Ég er með svo byltingarkenndar hugmyndir í trúmálum að ég ætla ekki að velta neinum steinum í dag og stuða fólk með því. Þær tengjast að vísu svolítið þessum umræddu yfirnáttúrulegu hlutum.
Sumir fussa og sveia þegar talað er um slíka hluti, þ.e.a.s. það að vita lengra en nef sitt nær, og þá er ég að tala um t.d. að vita eitthvað eða sjá eitthvað sem við svona ,,skynsamlega" ættum ekkert að geta vitað eða séð.
Það kannast eflaust flestir við það að hafa ætlað að fara að hringja í einhvern og þegar á að fara að pikka inn númerið þá hringir viðkomandi!
Það kannast kannski líka einhverjir við það að vera að hugsa eitthvað og viðmælandi orðar það upphátt.
Þetta minnir helst á þráðlaust netsamband og ég held að í raun sé það ágæt líking. Hver sér þær bylgjur sem ganga á milli manna?
Sjálf hef ég upplifað allt of marga hluti og séð til að trúa ekki að eitthvað sé til sem við köllum í daglegu tali ,,yfirnáttúrulegt" en kannski er það ekkert yfirnáttúrulegt. Kannski er það okkur eðlislægt að finna fyrir fólki þó það segi ekkert og sé jafnvel langt í burtu, finna það sem er að koma?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Fimmtudagur, 7. ágúst 2008
Með alla sína þekkingu og fé aldrei gæti maður skapað tré...
Ég held að nýja videóið ,,Betra líf" með Páli Óskari sé ein fallegasta trúarjátning sem ég hef séð á ævinni.
Pikkaði inn textann:
"Svo lít ég bara í kringum mig og sé, alla þessa fegurð nærri mér, ég tók því sem gefnu, staldraði aðeins við, er á réttum tíma á réttum stað, hverjum get ég þakkað fyrir það, ég opnaði augun og hjartað fann á ný betra líf .. að því að ég fór loks að trúa því, að það væri eitthvað annað eitthvað meira og miklu stærra ..Hvort sem það er stórt eða´ agnarsmátt ég skynja einhvern meiri háttar mátt, ég þarf enga sönnun. Ég finn og veit og sé, með alla sína þekkingu og fé aldrei gæti maður skapað tré, ég opnaði augun.. Fann á ný betra líf .. að því að ég fór loks að trúa því að það væri eitthvað annað eitthvað meira og miklu stærra .. "
Ég gæti ekki orðað trúartilfinningu mína betur en fram kemur í þessum texta.
Svo er gaman að segja frá því að ,,skádóttir" mín hún Bíbí er dansari í myndbandinu, en hún er í fjólubláum kjól. Hún kláraði Listdansskólann sl. jól og stefnir á framabraut í dansinum.
Ég tilkynnti mínum heittelskaða í morgun að ég væri hætt að blogga í bili, því ég er að byrja að vinna aftur og þetta tekur meiri tíma en ég ætlaði mér. Hef svo mörgu að sinna. Því verður þetta lokafærslan í einhvern tíma (nema mér verði mikið mál ) .. kíki þó "í heimsókn" til ykkar við og við.
Eigið yndislegt líf og BETRA LÍF ..
p.s. Mig langar að frábiðja mér leiðindi og í þetta sinn ætla ég að gerast svo frökk að nota rétt minn og eyða út ef athugasemdirnar eru dónalegar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Þriðjudagur, 5. ágúst 2008
Aðför að Gunnari í krossinum - eða réttlát reiði í hans garð?
Ég var að lesa bloggið hennar Þóru Guðmunds þar sem hún segir frá tilkynningu eða sem hún fékk sem bloggvinur Jóns Vals - útkallið frá honum hljóðar svona:
"Bloggvinir, það er sorglegt að sjá óbilgjarna aðförina að Gunnari í Krossinum og að jafnvel kristið fólk taki þátt í henni.
http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/598544/ "
Það virðist ekki skipta Jón Val máli þó að Gunnar í Krossinum sé með aðför að samkynhneigðum og vilji "afhomma" þá og þá eflaust "aflessa." Gæti ekki bara verið að það að þessi meinta aðför fólks, jafnvel kristins fólks, eins og Jón Valur orðar það, sé nú bara það sem kallast réttlát reiði í garð manns sem er með aðför að lífsstíl þjóðfélagshóps og telur sig þar hafa Guð sér til fulltingis. Það er einhver falsguð, því að sá Guð sem ég trúi á fer ekki í manngreinarálit...
Það eru menn eins og Gunnar og verjandi hans; Jón Valur sem eiga það á samviskunni að ungt fólk spyr: ,,Af hverju hatar Guð homma." .. Hvers konar trúboð er það hjá þessum mönnum? .. Fatta þeir ekki að þeir eru að fæla fólk frá kirkjunni og trúnni?
Jón telur rétt að verja Gunnar, það er gott að eiga sér verjanda, en á að verja Gunnar fyrir að dæma menn og konur sér óæðri vegna kynhneigðar og þá um leið setja sjálfan sig á æðra plan .... ?
Sannleikurinn mun gera okkur frjáls, frjáls til að vera þau sem við erum - samkynhneigð, gagnkynhneigð, hvít, gul eða svört. Troðum ekki lyginni ofaní kokið á fólki með því að segja því að það eigi að vera annað en það er, segja því að samkynhneigð þeirra sé röng - og það í Guðs nafni!
GÓÐUR Guð sem elskar okkur ÖLL, eins og við erum, geymi þig og verndi og heilagur andi knúsi þig góða nótt.
Bloggar | Breytt 7.8.2008 kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Þriðjudagur, 5. ágúst 2008
Stingur í kálfa.. spurning til ykkar þarna úti..
Kannast einhver við að hafa fengið stingi, næstum eins og rafstraum í kálfann ... hér á að vera spurningarmerki, en ég er í tölvunni hennar dóttur minnar og finn ekkert spurningarmerki!!..
þetta er ekki sinadráttur, heldur eins og stutt skot - mjög sársaukafullt - frá 2 - 3 sek, upp í 5-10 sek. og ekki hægt að halda ,,straight face" á meðan á því stendur. Ef þið þekkið þetta, endilega segið mér frá hvað þetta getur verið!!..
Er annars að passa, því að dóttir mín fékk slæmt gallsteinakast og er í rannsóknum! Gengur mikið á í þessari fjölskyldu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þriðjudagur, 5. ágúst 2008
Brandarar á ögurstundu hjá Morgan og Mumma ...
Ég hélt að brandarar á ögurstundu eða sjúkrabeði væru bara klisjur úr bíómyndum. Nýlega lenti Mummi í mótórsmiðjunni í því að fá hjartaáfall, og það meira að segja í fimmtugsafmæli sínu, en síðan komu fréttir að hann væri farinn að segja brandara af sjúkrabeði og átti það að sjálfsögðu að þýða að hann væri á batavegi.
"Brandarinn" sem ég hef orðið pirruðust yfir (á ögurstundu) var þegar ég fór upp á fæðingarheimili, kvalin með hríðar á fimm mínútna fresti, til að eiga eldri dóttur mína (f. tæpum 27 árum) og var klædd í svartar og gular, risastórar röndóttar nærbuxur.
Hinn tilvonandi faðir fór að skellihlæja og sagði:,,þú ert eins og býfluga" ... bzzz.. Mér var ekki hlátur í huga á þessari stundu og gaf honum eitt af mínum eitruðu lúkkum.. eeeen auðvitað var ég eins og bráðfyndin (en þjáð) býfluga. En hvers konar búningur var þetta eiginlega sem boðið var uppá??? ...
jæja, húmorinn er bráðnauðsynlegur og vonandi batnar nú bæði Mumma og Morgan og megi þeir og aðrir lengi lifa...
Gerði að gamni sínu við björgunarmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 4. ágúst 2008
TVEGGJA ÁRA SYSTUR ......
Ísold og Rósa
Rósa og Ísold
Systurdætur mínar þær Rósa og Ísold áttu tveggja ára ára afmæli í gær, 3.ágúst. Þær eru svo mikil krútt að það hálfa væri nóg...en þær eru s.s. tvöfaldur krúttskammtur..
Á efri myndinni eru þær að leika sér í fjörunni við Hreðavatn, sem okkur í fjölskyldunni finnst yndislegasti staður í heiminum, og þær eru augljóslega að komast á bragðið. Á neðri mynd eru þær augljóslega að fá sér gönguferð út í heiminn hjá Huldukoti, en þar á uppáhaldsfrænka þeirra (ég verð að játa mig sigraða þar) bústað sem þær elska líka að vera.
Sara sæta og góða stóra systir átti afmæli 15. júlí en þá var hún stödd í Frakklandi.
Sara og Ísold
Sara og Rósa
Óska frænkum mínum til hamingju með afmælin þeirra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 3. ágúst 2008
Róslín og Rhodos
Góðan dag eða kalemera eins og sagt er á grísku! Nú er konan komin í hús, eftir vikuafslöppun á grísku eyjunni Rhodos. Þakka innilega allar kveðjurnar sem ég hef fengið, við sluppum bæði við jarðskjálfta og skógarelda.. Allt tókst vel, hitinn kannski í hærra lagi, en það er sko allt í fína Þegar hægt er að velta sér af sólstólnum út í laug eða sjó!
Ferðin hófst, eins og aðrar utanlandsferðir í flugstöðinni, en þar hitti ég Róslín bloggvinkonu með meiru. Það var gaman að sjá þessa kotrosknu dömu. Hún virkar hlý og flott stelpa.
Ég fékk auðvitað betri helminginn til að mynda okkur saman:
Sjálf og Róslín á flugstöðinni, Róslín á leið að keppa í Noregi.
Flugið tók sex tíma - svo við vorum hálfmygluð þegar við mættum en sólin kyssti okkur á hverjum morgni.
Þarna eru Tryggvarnir á Akrópólishæð þeirra Rhodosbúa, sá yngri kallaði hana að vísu "Apríkósuhæð"
Svo var auðvitað borðað og borðað og drukkið og borðað og .... Tryggvar x 2, sjálf, Hulda og Doddi (kúreki) ferðafélagar okkar.
Algengasta sjónarhorn sjálfrar, tærnar mínar á sólbekknum og sá yngri að leika í barnalauginni.
Skruppum í siglingu til eyjarinnar Symi, sem er gífurlega falleg og í raun eins og sviðsmynd í bíómynd!
Og síðasta kvöldmáltíðin ...nammi, namm...(og transformersbíllinn með ,,ofcourse".. )
... Margt gerðist - allt skemmtilegt, á kvöldin var ,,mínídiskó" fyrir krakkana sem við sóttum stíft og ýmis skemmtiatriði, þar var ég, ásamt 5 öðrum, tekin upp á látin setjast á bakið á Fakír á meðan hann lagðist á naglamottu!! ...
Well.. þetta er svona fyrsta ,,homecoming" bloggið. Sá að það fór allt í mess í tækninni hér í bloggheimum á meðan ég var í burtu!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 25. júlí 2008
Ég fer í fríið og ferðast á sardínuklassanum (almennt farrými) en ekki á stórlaxasvæðinu (Saga Class) ..
Gerið nú ekkert af ykkur á meðan ég er í burtu, mínir kæru bloggvinir, .. varist umræður um trúmál, samkynhneigð, hórur, álver, feminisma, rasisma og aðra isma....
Ég fer s.s. í flugið á morgun og lendi um Verslunarmannahelgina, en þá verða eflaust margir landsmenn á ferð (ekki flugi) um landið með skuldahalana sína (felli- og hjólhýsin) ...
(heyrði þennan hjá Sigga Stormi í morgun)..
..
p.s. Systir mín var að hringja, hún var að labba Laugaveginn í mesta sakleysi sínu og mætti: MEL GIBSON!
Farþegar færa sig aftar í vélina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)