Sunnudagsnostalgía ...lambalæri, brúnaðar kartöflur og Ora baunir ..

Erum búin að senda útkall til unganna okkar - eins og við gerum nú oft, en ,,gulrótin" í þetta skipti er LAMBALÆRI. Fengum áskorun ekki alls fyrir löngu að elda nú gamla góða lambalærið. Ég elda nú oftast kjúklingarétti m/sætum kartöflum, brúnum grjónum og/eða speltpasta og tonn af fersku og steiktu grænmeti.  Það fellur yfirleitt mjög vel í mannskapinn.

En nú er s.s.lærið (kostaði sexþúsundogeitthvað mínus 30% afsláttur) að malla í ofninum. Síðan fer ég auðvitað alla leið og geri sykurbrúnaðar kartöflur (sem ég smakka að vísu ekki í mínu alræmda sykurbindindi).

Þegar ég var stelpa var þetta einfalt. Lambalæri- eða hryggur í hádeginu á sunnudögum og svekju- eða ávaxtagrautur í eftirrétt. Það var allt einhvern veginn í svo föstum skorðum. Við gengum alltaf að lambakjötinu vísu á sunnudögum.

Eigið góðan sunnudag. Heart

Mánalingur og fimmáringurinn eru þegar tilbúnir í slaginn..

1.og 2.mars 2008 011

1.og 2.mars 2008 010

Skikkjurnar af Súpermanbúningnum ná niður undan úlpunum! ... LoL


13 ára afmæli Jónasar eða 13 x 4 = 52 29. febrúar ..

Við vorum í skemmtilegri afmælisveislu í gærkvöldi - en við vorum í  ,,surprise" afmælisveislu fyrir Jónas vin okkar sem varð 13 ára eða 52, svona eftir því hvernig á það er litið.

Snæddum í forsetastofu á Lækjarbrekku og ákváðum að dressa okkur svolítið upp fyrir það í forsetastíl. Mín varð auðvitað að fjárfesta í hárspöng með skrauti og setti á mig strútsfjaðrir..þótti það ekki leiðinlegt!

Afmæli_29.febrúar_Jónas 003Afmæli_29.febrúar_Jónas 004 

 Mín að aka með hárskrautið! .. Fimmáringurinn spenntur fékk að fara með dressaður í  jakka (keyptan í Ameríku af Ungfrú Völu)  og bindi ! Wizard

Afmæli_29.febrúar_Jónas 009

 Við vorum sko bara dívur LoL ...

Afmæli_29.febrúar_Jónas 032 Afmælis,,barnið" ásamt Kötlu dóttur sinni sem söng fallega fyrir okkur.

Afmæli_29.febrúar_Jónas 022

Aðaldívan, eiginkona afmælisbarns og formaður undirbúningsnefndar ásamt Kötlu sætu..

Bæti við fleiri myndum síðar, myndaforritið fór að stríða mér hér ! Woundering ..


"Amma strjúka, ég lúllar.. "

Mánapíslin mín er í gistingu og ég elska þetta barn svo mikið að það hálfa væri nóg. Það var ekki samkomulag milli Mánans og fimmáringsins á heimilinu svo að pabbi las fyrir fimmáringinn og amma las fyrir dóttursoninn. Þetta samband okkar er s.s. amma með pabba Shocking ....

Nóg um það Máninn fékk alla veganna allt það dekur sem hann bað um, strjúka andlit eins og amma ein kann (segir hann) og strjúka kálfana og svo loksins bakið.. Mamma hans sagði alltaf þegar hún var á hans aldri ,,mjúka bak mamma" .. nú er hann tekinn við!... svo var sungin öll syrpan af svæfingalögum ömmu og eru þau mörg ...zzzzzzzzzzz Nú er komin á ró og báðir gúbbarnir, sá fimm ára og sá næstum fjögurra ára steinsofnaðir zzzzz... krúttin


SKO ...

Hvað sem fólki fannst eða finnst - þá er eina laglínan sem ég man úr keppninni Ho Ho Ho We say Hey Hey Hey!.. og ef hann Barði hefði sett sterka söngkonu þarna fremst á sviðið, ekki endilega svona svakalega sæta, þá hefðum við rúllað upp Júróvisjón með þessu lagi...en veit ekki hvort að væmni ástardúettinn nær langt, eitthvað svo týpískur...  já, já og sveimérþá
mbl.is Vöðvabúnt vinsælli en Eurobandið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er 75% Supergirl og Wonder Woman ..65% Spider Man og Iron Man munarekkiumþað

 

 Fann þessa mjög svo ,,merkilegu og menningarlegu" könnun á síðunni hans fyrrverandi tilvonandi stjúptengdasonar míns....  (vesen með þessa titla alltaf)...  varð að prófa! .... kom út sem Súpergirl og Wonder Woman .. vissi það svosem alltaf ! LoL ...  Æ, er ekki allt í lagi að taka lífið ekki alltaf of hátíðlega ?

 Smelltu hér til að taka könnun.

 

You are Supergirl  Súper_Jóga

Supergirl75%
Wonder Woman75%
Spider-Man65%
Iron Man65%
Green Lantern60%
Hulk55%
The Flash55%
Superman50%
Robin50%
Catwoman50%
Batman15%

Ekkert kynlíf í hálfan sólarhring ...

... myndi fyrirsögnin kannski vera ef um væri að ræða Angelínu Jolie? ...og hvað er verið að tala um að "spara kraftana" - er hún eitthvað slöpp konan?

Æ - þetta er annars svona ,,ekki frétt".. 


mbl.is Ekkert kynlíf í hálft ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausn á Ráðherra og - herru vandræðum ...

Sko, þar sem orðið herra endar á -a þá er miklu eðlilegra að það sé kvenkyn - eins og t.d. kerra!  Því er eðlilegra að nota herra um kvenkyns ráðherra og herri sem er karlkynsorð um karlkyns ráðherra.

Hér er herri um herra frá herra til herra (beygist eins og perri)

Hér er herra um herru frá herru til herru (beygist eins og kerra)

Þetta ætti ekki að vera mikið flóknara að koma þessu á en hægri umferðinni á sínum tíma!... Grin 

 


Ég heppin! .....

Ég er ekki í sólarfríi á Flórída svo ekki glími ég við rafmagnsleysi!

Ég á heldur ekki peninga í hlutabréfum svo ekki tapa ég á því!Smile


mbl.is Milljónir án rafmagns í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver man berklaplásturinn? ....Ái! ...

Úff það var verið að ræða berkla í sjónvarpinu. Ég er skírð í höfuðið á afasystur minni, Jóhönnu Magnúsdóttur sem lést 17 ára úr berklum.

Við sem erum komin yfir ákveðinn aldur munum eftir berklaplástrinum (og kannski gulu lýsispillunum) .. en ég man hvað ég kveið alltaf fyrir því að plásturinn væri rifinn af- Ái...Crying .. En það sem var líka leiðinlegt var að ég kom alltaf jákvæð út úr þessu berklaplástursprófi,  veit í raun ekkert afhverju því auðvitað var ég ekkert með berkla! ... var bara með einhverja svörun við þessu sem virkaði svona!


Missti mig í amerísku ædóli ...

Komið miðnætti, Öskubuska farin að sofa og ég sit hér enn vakandi! Horfði á ALLT ameríska Ædólið í kvöld... Ég dett ekki oft í sjónvarpið en gerði það í kvöld, verð að detta í eitthvað, þar sem ekki dett ég ,,íþað" .. hehe LoL .. lifði mig þvílíkt inn í þetta..

Eldaði æðislega góða naglasúpu í kvöldmat, einn nagli og vatn,  með hvítlauk, rauðlauk, blómkáli, restinni af grjónum síðan í gær, tómötum og rest af kjöti! .. Piri, piri kryddi, smá Oscars bouillion, jurtasalti..og einhverju sem ég fann fleira í kryddskúffunni..


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband