Laugardagur, 31. janúar 2009
Jákvæðni-og heilsukúr ....
Í morgun vaknaði ég og ákvað að vera óhóflega bjartsýn. Veit ekki hvort það var þess vegna en mamma var orðin miklu hressari í dag og sjálfri sér lík. Sat hjá henni á spítalanumí kvöld og við horfðum saman á fréttir, spaugstofuna og söngkeppni; henni fannst Hera best! .. (fyrir þá sem ekki vita þá var sýnt atriði Heru úr Eurovisionforkeppni danska sjónvarpsins). Mamma var ein á stofunni, svo við gátum stillt sjónvarpið hátt! Hjúkrunarfólk leit inn til okkar við og við en starfsfólkið á deild 14E á Landspítala er hvert öðru yndislegra og mamma þakklát fyrir öll elskulegheitin og við aðstandendur ekki síður.
Nú ætla ég að prófa að halda áfram í "jákvæðnikúrnum" .. prófa að vísu einn dag í einu, en takmarkið er lágmark 21 dagur. Þann 21. febrúar ætlum við starfsfólkið í skólanum svo að halda okkar árshátíð, sem "by the way" mín er að skipuleggja. Svo, mánuði síðar, 21. mars ákváðum við Tryggvi að hafa svona gamaldags partý fyrir vini hans/mína/okkar. Sendum út boð með góðum fyrirvara svo fólk gæti byrjað að æfa sig fyrir húla-og limbókeppni. Slíkt er ómissandi í góðu partýi! .. ..
Reyndar er víst best ég bæti smá heilsukúr við jákvæðnikúrinn, hef aðeins dottið úr gír með mataræðið, reyndar dottið ofan í nammipoka!
Þakka innilega fyrir góðar kveðjur í síðasta bloggi..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Mánudagur, 26. janúar 2009
Dagbók 26.janúar 2009
Lífið er vissulega súrt og sætt þessa dagana. Hann Henrik minn elskulegi "svigeson" átti 35 ára afmæli í gær, 25. janúar, og voru þau Eva (og Máni) með opið hús og buðu upp á myndarlegan bakstur og brauðtertur!
Til lykke Henrik!
Í gær þurftum við líka að fara með mömmu á spítala, en hún fékk væga kransæðastíflu og glímir við ýmislegt fleira sem skerðir lífsgæði hennar.
Vala er að koma heim á fimmtudagsmorgun, og hlökkum við til að taka á móti henni.
Fjölskyldumálin hafa leitt athyglina frá umróti í pólitík, ég fer að kíkja í kringum mig.
Knús
Bloggar | Breytt 27.1.2009 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Laugardagur, 24. janúar 2009
Fáni vor sem friðarmerki, fara skalt á undan nú ..
Ég styð fólk með hvítan fána. Hvítt er litur friðar og hreinleika og þá heilinda. Heilindi er það sem við þurfumá að halda, númer eitt, tvö og þrjú, frá hverjum þeim sem taka að sér stjórnvölinn. Við viljum vita að bílstjórinn taki ekki rútuna út í glannaakstur eða ófærur. Hvítt er litur höfuðsins og andans.
Ég styð fólk með íslenska fánann. Fólk sem vill landi og þjóð gott og vill samheldna og samvinnufúsa þjóð. ,,Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér." Íslenski fáninn er fallegur, blái liturinn táknar málfrelsið okkar, fjöllin, hafið og himininn. Hvíti liturinn andann og heilindin og jöklana okkar. Rauði svo eldfjöllin og er hin mikla spriklandi lífsorka og eldmóður. Rauður er líka andans litur.
Ég styð fólk með appelsínugulan fána. Fólk sem vill mótmæla án ofbeldis. Appelsínugulur er líka orkumikill, litur sköpunargleði og íhugunar.
Allt það sem ég hef sagt hér að ofan um fánana er ekkert voðalega fræðilegt, bara mín tilfinning fyrir þessum fánum. Gaman væri að heyra hvað ykkur finnst (vitið) um fánana.
Fánarnir eru tákn einhvers, en verum þess verð að bera þá og látum þá fara á undan með friði.
Ég styð ekki fólk með svona ræningjafána. Fólk sem fer með ófriði, ofbeldi og hegðar sér eins og verstu ribbaldar. Ég hef efasemdir um réttmæti þess að stimpla þessar myndir á barnaföt sem hefur verið vinsælt lengi.
Lifum heil og störfum.
Hvítir borðar í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 19. janúar 2009
Öðruvísi "gleðipilla" ...
Hlustaði á Kompás í bílnum á leiðinni heim, eða hluta hans og var þar verið að ræða ofnotkun geðlyfja. Eða réttara sagt of mikla ávísun lyfjanna af lækna hendi, sem að hluta til er rakin m.a.til sterkrar markaðssetningar (gróðrahyggju - surprise!).
Man eftir Prozac auglýsingu í erlendu tímariti þar sem á annarri síðunni er grátt tré (og á að tákna okkar grámyglulega líf) og á hinni síðunni er litríkt tré (líf eftir Prozac).
Já, auðvitað erum við þung og líður illa vegna helv... kreppunnar, gunguháttar Geirs, hroka Davíðs, bruðls ónefndra með almannafé, morðanna í Gaza, eða bara myrkursins hér á Norðurhjara veraldar og langar í kannski flest að vera stödd á Grískri sólareyju valhoppandi í kærleikskeðju með blóm í hári ..
Hvað eigum við nú að gera í staðinn fyrir að láta ofangreint sukk og/eða geðlyfin gleypa okkur? Hmm.. komið nú með tillögur...
Mæli með þessari gleðipillu; SMILE
Kreppan gæti haft slæm áhrif á heilsuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Mánudagur, 19. janúar 2009
Mitt ágæta frændfólk styður hönd undir kinn... svona til gamans færsla!
Vilhjálmur Ingibjörg Elsa Emil Hannes
Þetta fólk á ýmislegt sameiginlegt, t.d. að vera forsíðubloggarar Mbl.is og svo tók ég eftir því í morgun þegar Ingibjörgu Elsu og Emil (myndum af þeim) var stillt upp hlið við hlið í Mogganum að þau studdu bæði hönd undir kinn, og mundi eftir að Villi gerði það líka, þá datt mér í hug að stilla þeim svona upp. Einnig eiga þau það sameiginlegt (heppin þau) að vera skyldfólk mitt!
Foreldrar Ingibjargar og Vilhjálms eru systkini föður míns og afi Emils var bróðir ömmu okkar. Ætti ég að fara að skipta um mynd og reyna að finna eina svona með hönd undir kinn?
Afsakið annars að ég skuli trufla lesendur með svona svakalega "djúpum" hugleiðingum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 17. janúar 2009
"17. júní lagið flottast" ? ..
Hjá mér í koti eru tveir ungir piltar, vel undir tíu ára. Þeir höfðu sínar meiningar með Júróvisjón t.d. fannst þeim "17.júní lagið" eins og þeir kölluðu það, flottast .. þar sem Ingó söng og tvær ungar dömur í hljómsveitarbúningi spiluðu á hljóðfæri!
Þeim fannst að stelpan í rauða kjólnum "alltof litlum kjól" .. (hann var mjög fleginn) öðrum fannst hún að vísu svolítið sæt.
Börnin skafa sko aldrei utan af hlutunum og segja hvað þeim finnst! ..
Sjálf hef ég ekki mikla skoðun á þessu, en lagið sem unga daman í doppótta kjólnum (talandi um kjóla) söng, höfðaði helst til mín. En hún söng lag ömmu sinnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 16. janúar 2009
Ísland í dag, viðtal við eineltisþola - af hverju ekki skólayfirvöld?
Ég var að horfa á Ísland í dag, á viðtal við dugnaðarlega stelpu sem sýndi það hugrekki að koma fram og tjá sig um það einelti sem hún varð fyrir. Í viðtalinu fannst mér hún draga fram svarta mynd af gamla skólanum, þar sem hún gekk út, en mjög hvíta af nýja skólanum. Það er hennar upplifun og ber að virða hana. Auðvitað eru einhverjir góðir hlutir að gerast í báðum skólum.
Gott væri að vita hver væri munurinn á stefnu skólanna í eineltismálum, ef einhver er, og rétt hefði verið að ræða við þau skólayfirvöld sem urðu fyrir mestu gagnrýninni. Vissulega getur það verið flókið, þar sem erfitt er að ræða um mál einstaklinga opinberlega, en eitthvað hefði mér Stöð2 mátt ræða við stjórnendur skólanna.
Eineltismál eru hin verstu mál, þekki þetta af eigin reynslu, frá börnunum mínum og nánum skyldmennum. Mikilvægt er að umhverfið sé stöðugt á varðbergi og bregðist við, foreldrar og einmitt skólastjórnendur - vera á varðbergi alveg eins og við krabbameini. Eftir því fyrr sem það greinist því meiri líkur er á að hægt sé að uppræta það. Fái það að grassera óáreitt, er mun erfiðara að eiga við það og getur það leitt til dauða, og svo sannarlega þekkjum við dæmi þess.
Ég óska ungu dömunni innilega til hamingju með að vera laus úr sínum aðstæðum og vera öðrum fórnarlömbum eineltis fyrirmynd í að rjúfa þögnina! Í rauninni gerði hún það eina sem hún gat, miðað við sínar aðstæður; hún gekk út úr aðstæðunum! Það þarf kjark til þess.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 15. janúar 2009
Börn sem hafa enga vörn .. á Gaza
Ég fór að sjá leikritið fólkið í blokkinni fyrir jól. Einstaklega mannlegt og fallegt stykki. Þegar Jóhann Sigurðarson söng ljóð Ólafs Hauks Símonarsonar, snerti það mig í hjartastað og kom fram á mér tárunum (mildly spoken). Það er svo erfitt að hugsa til þeirra barna sem eins og í laginu segir; "hafa enga vörn".
Erfitt líka að vera svona máttlaus hér og aðgerðalaus og vita af þessum morðum á börnum og fullorðnum á Gazasvæðinu. Helför í beinni og heimurinn er ráðalaus.
Textinn með þessu lagi er hér fyrir neðan:
Já, þegar stjörnuaugun opnast hljóð
á Ísalandi sofa börnin góð,
og þótt hrollkaldur vindur hefji upp raust,
þau búa í húsi sem er bjart og traust.
Í öðrum löndum eru önnur börn
sem eiga ekkert rúm og eiga enga vörn.
Góða nótt, góða nótt, góða nótt, góða nótt.
Góða nótt, góða nótt, góða nótt, góða nótt.
Við elskum ykkur meir en orð fá lýst.
Já, einu gildir hvernig hjólið snýst,
því ef þið eruð heilbrigð, glöð og góð
getur enginn bætt neinu í okkar sjóð.
En af hverju eru þá öll þessi börn
sem eiga í heiminum enga vörn?
Góða nótt, góða nótt, góða nótt, góða nótt.
Góða nótt, góða nótt, góða nótt, góða nótt.
Það er svo gott að sofna svæfli á
og svífa inn í draumlöndin blá.
Ef þú vaknar illa þá er einhver hér,
einhver sem hefur vakað yfir þér.
En hver á öll heimsins einmana börn
sem eiga enga hlíf, sem eiga enga vörn?
Góða nótt, góða nótt, góða nótt, góða nótt.
Góða nótt, góða nótt, góða nótt, góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Fimmtudagur, 15. janúar 2009
Fréttir úr flensubæli ..
Bíbí dóttir Tryggva, sem var að hefja nám í Kvikmyndaskóla Íslands, kom hér við í hádeginu í gær. Ég stóð ekki brosandi með túperað hár og svuntu til að taka á móti henni, heldur lá ég hér í sófanum með fína teppið sem Vala keypti í Ameríku og krakkarnir gáfu okkur saman í jólagjöf, með úfið hár og í mínum mjúka náttslopp, hálfrænulaus í minni pest. Við erum s.s. þrjú hér enn liggjandi. Tryggvi búinn að vera veikur alla vikuna, ég í tvo daga og Aggi í þrjá. Ég vonast til að komast til vinnu á morgun, ómissandi konan!
Jæja, ég byrjaði á Bíbí, en hún tilkynnti þegar hún var búin að fá sér hádegissnarl að hún væri sko farin úr þessu húsi þar sem allir væru veikir. Það var ekki mikið um knús og kossa, því þetta virðist vera bráðsmitandi fj.....! Systir hennar, hún Gunna átti afmæli í gær, en hún er akkúrat líka veik, svo afmælisdagurinn hefur farið fyrir lítið.
Eva hringdi í morgun og ég sagði henni að hún og fjölskyldan mættu sko alls ekki koma í heimsókn, það eru mikil öfugmæli við það sem ég segi venjulega því ég vil auðvitað að þau komi sem oftast og ég er farin að sakna Mána míns gríðarlega. Þau eru í húsænæðisleit að leita að nýrri leiguíbúð og vonandi fer að rofa til. Íbúfenið er minn besti vinur þessa dagana, því að ég fæ "flashback" frá hálskirtlatökunni, þar sem í minu tilfelli, er hálsinn helaumur.
Fylgdist með borgarafundi í gær og datt aðeins inn í stemmninguna, en mér finnst fólkið stundum vera svolítið dónalegt hvert við annað. Eins og þegar Halla Tómasar var að tala, ég held að hún ætti að vera einn af nýjum leiðtogum. Hef oft hlustað á hana og hún er með alls konar spil upp í erminni sem eru fjölskylduvæn í fyrirtækjum o.fl. og ég fell fyrir slíku.
Villi frændi hefur verið að brillera (enda ofurklár) á blogginu sínu og var umfjöllun um hann í Staksteinum Morgunblaðsins í gær. Hann ætti að vera fjármálaráðherra eða Seðlabankastjóri.
Ég er sko líka klár (mont, mont) en á allt öðrum sviðum, skil lítið sem ekkert í þessu Down Jones kjaftæði, hvað þá Indiana Jones! Ég er kannski skást á þessu mannlega sviði og langar helst til að vera trúmálastjóri eða eitthvað svoleiðis, sameina bara alla sem vilja gera gott undir eina kærleikans regnhlíf, gula, rauða, bláa, og græna ! .. Veit að ,,sanntrúaðir" kalla það grautartrú, en grautur getur einmitt verið góður og nærandi!
Kveðja til ykkar þarna úti! .. ég ætla mér að komast á fætur eigi síðar en á morgun.
Upp, upp mín sál og allt mitt geð! (sagði mamma á hverjum morgni þegar ég var krakki).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Mánudagur, 12. janúar 2009
Flensan sækir okkur heim ..Yes Man, góður fiskur og Gettu betur
Nú liggur maðurinn flatur, ekki fyrir mér heldur fyrir flensunni eða a.m.k. frænku hennar. Á laugardag fór ég í bíó með ungu vinkonu minni, fröken Róslín frá Hornafirði, en hún var búin að gefa mér "hint" að við gætum hist þar sem hún var í bænum. Ég veit hún les þetta; svo takk fyrir skemmtilega bíoferð!
Við skelltum okkur á Yes-Man, sem er nú bara ágætis mynd, kom á óvart. Ekki alveg boðskapslaus, bæði verið að hvetja fólk til að vera jákvæðara EN um leið að segja ekki já við öllu. Afleiðingarnar geta skilið okkur eftir nakin. Þið skiljið þetta ef þið farið á myndina. Einnig var myndin leynt og ljóst ádeila á heilaþvottatrúboð þar sem fólk hlýðir gagnrýnislaust ákveðnum leiðtoga.
Í gær komu Lotta, Már og skotturnar Ísold og Rósa, Eva, Henrik og Máni, að ógleymdri mömmu í mat. Eldaði ljúffengan fiskrétt m/broccoli, lauk, púrrlauk, papriku, rjómaosti, mango, sýrðum rjóma. Velti fiskinum upp úr hveiti og eggi, kryddaði með indversku karry, herbamare, smá tandoory sósu og pipar og steikti létt í olíu. Meðlæti voru rósmarínkartöflur, hrísgrjón og hrásalat. Framreitt með volgu ólífubrauði.
Nú bíð ég eftir að Hraðbraut byrji að keppa í Gettu betur. Þau áttu að byrja 20.30 en ég bíð bara spennt. Kemur í ljós hvað verður, þau eru mjög bjartsýn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)